Fréttatíminn - 12.06.2015, Side 46
að gera lítið. Þeir eru alltaf að reyna
og segjast þá jafnvel gera hlutina
eftir skandinavískum háttum en
tekst aldrei almennilega. Allt verð-
ur klossað og stórt. Gert til þess að
endast.
Þess vegna er skondið að horfa
til þess að Washington DC, höfuð-
borg Bandaríkjanna, var búin til
sem slík. Ekki bæjarstæði sem
stækkaði heldur var borgin reist frá
grunni – sem höfuðborg. Allt út frá
einum miðpunkti – þinginu. Allar
götur telja frá þinginu. Svolítið eins
og Lækjargatan í höfuðborginni
okkar – eða kannski Aðalstræti. En
munurinn er að göturnar sem fara í
gegnum þinghúsið, ef svo má segja,
telja allar frá einum. Gæta þarf þess
að tilgreina í hvaða átt gatan snýr
frá þinginu, t.d. suðvestur eða norð-
austur. Það er því eins gott að taka
þetta fram við bæði póstmenn og
leigubílstjóra.
Tökum Pennsylvaniu breiðgötuna,
þessa sem Hvíta húsið stendur við,
sem dæmi. Þá er eins gott að hafa
áttirnar á hreinu því samkvæmt óá-
reiðanlegum heimildum hýsir 1600
Pennsylvania ave í hina áttina McDo-
nald’s en ekki forsetann.
Að þessu sögðu er þó mjög einfalt
að rata um miðbæ Washington, án
þess að pæla í götuheitum. Húsin
eru ekki há og valda því ekki sams
konar skynvillu eins og margar
aðrar stórborgir. Það er ljómandi
morgungöngutúr að rölta um The
National Mall, þ.e. frá þinghúsinu
að Lincoln minnismerkinu, þessu
úr apaplánetunni, með viðkomu hjá
Washington minnismerkinu, súl-
unni í miðjunni. Þar er hægt að fara
upp í topp fyrir þá sem vilja útsýni
yfir borgina. Öll þessi helstu stríðs-
minnismerki eru á svæðinu og svo
er hægt að taka Hvíta húsið í baka-
leiðinni. Það stendur miðja vegu
milli þingsins og Lincoln. Beint upp
frá Washingtonsúlunni.
Hvíta húsið er ekki jafn stórt og
ætla mætti en er þó tignarlegt, sér-
staklega að framanverðu. Það er
þó langt frá girðingunni að húsinu
sjálfu. Sé vilji til þess að komast nær
þessu fræga húsið er um að gera að
fara á bak við. Norðanmegin eru
girðingin mun nær og jafnvel hægt
að sjá leyniskyttur á þakinu, ef vel
ber í veiði.
Svæðið löðrar af sögu
Á þessari gönguleið um The Natio-
nal Mall er líka stærsti hluti Smit-
hsonian safnsins, lista- og sögusöfn
þar sem flestir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi með geimsafninu,
National Air and Space Museum, á
toppi listans.
Georgetown er svo fallegur gam-
all bæjarhluti sem er vel þess virði
að skoða. Það eina á svæðinu sem er
eldra en höfuðborgin sjálf, staðsett
við Potomacána, jafnvel staður sem
verslunarþyrstir Íslendingar gætu
haft gaman af að skoða.
Svæðið löðrar allt í sögu Banda-
ríkjanna, þrælahaldi, borgarastríð-
inu og náttúrulega stofnun Banda-
ríkjanna sjálfra. Allt sem hægt er að
sökkva sér niður í með heimsókn í
höfuðborgina.
Svæðið í kring, ríkin Maryland
í norður og austur og Virginía
suður og vestur, hafa svo upp á að
bjóða þessa ekta Ameríku. Hvítar
girðingar utan um hús með banda-
ríska fánanum blaktandi við hún.
Alveg ekta. Svo eru það mollin,
maturinn, golfvellirnir og allt
ódýra áfengið sem Íslendingum
finnst skemmtilegast í útlöndum.
Allt er þetta að finna í og við höfuð-
borgina.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
V öldin eru nánast áþreifanleg þegar gengið er um götur Washington, höfuðborgar
Bandaríkjanna. Hvíta húsið, þing-
húsið, Pentagon og önnur ráðu-
neyti er þar að finna. En borgin
býður upp á margt annað og hana
er gaman heim að sækja. Icelandair
hefur flogið þangað um langt árabil
en fyrir skömmu hóf Wow air hóf
að fljúga beint til Washington D.C.
Flugvöllurinn tilheyrir reyndar
Baltimoresvæðinu en er nokkurn
veginn mitt á milli borganna og það
tekur enga stund að komast til höf-
uðborgarinnar þaðan.
Forsetinn eða McDonald’s
Ameríka er spes staður. Drauma-
landið í hugum margra en þyrnir í
augum annarra. En það er eitt sem
er víst og það er að það er allt stærra
í henni Ameríku. Það er bara svo-
leiðis. Ameríkaninn kann bara ekki
46 ferðalög Helgin 12.-14. júní 2015
Washington höfuðborgin í Vesturheimi
Völd og veisla
Ben’s Chili Bowl
Þegar dvalið er í Ameríku er gert eins
og í Ameríku. Skyndibitamatur er
amerískur. Það geta aðrir reynt að gera
tilkall til hans en hann var fullkomnaður
í þarna vesturfrá. En það er ekki allur
skyndibiti í Ameríku McDonald’s. Ekki
það að það sé eitthvað að McDonald’s,
hans er saknað – en það er önnur saga.
Ef kafað er aðeins dýpra í skyndibitann
er hægt að finna einstaka staði og
perlan í D.C. er Ben’s Chili. Þar er hægt
að fá þetta venjulega; ljúffengar pylsur,
hamborgara og franskar. En það þykir
ekki nóg því öllu er þar drekkt í chil-
ísósu. Ljúffengri kjöt-og baunasósu sem
er hægt að fá ofan á allt og með öllu.
Staðurinn er kennileiti í höfuðborginni
og Obama sjálfur mætti þangað eitt sinn
með leyniþjónustuna á hælunum. Þá ku
fyrsta frúin víst oft panta í „take-out“.
En það skiptir svo sem ekki máli hver
borðar þarna því maturinn er bjútífúl.
Höfuðrétturinn er hálfreykt nauta-og
svínapylsa í lungamjúku brauði með
chilísósunni góðu ofan á. Algert möst
að smakka.
Staðurinn er í einu skemmtilegasata
hverfi borgarinnar þar sem djass flæðir
út úr hverjum dyrum frá fimmtudegi til
sunnudags og fyrir þá sem hafa áhuga
á sögu borgarinnar, sérstaklega með
tilliti til sögu svartra í borginni, er þetta
hverfi byggt upp af Ameríkönum af
afrískum uppruna.
Hægt er að mæta flesta laugardaga á
Ben’s og hlusta á dr. Bernard Demczuk
fara yfir sögu svæðisins í mjög áhuga-
verðum fyrirlestri á meðan chilílöðraðri
slöngunni er troðið þangað sem hún á
heima.
Það er margt að skoða í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna. Ljósmyndir/Hari
Njóttu sumarsins með
Veiðikortinu 2015 og
búðu til þínar minningar!
38 vatnasvæði!
www.veidikortid.is
2 0 1 5
Perla skyndibitastaðanna í D.C. er Ben’s Chili Bowl.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
1.690,-
1.790,-
1.590,-
1.690,-
2.190,-
Verð frá
2.190,-
1.570,-
GÆÐASKÓFLUR
Haki
2.390,-
Malarhrífa
1.890,-
Strákústur
30cm breiður
795,-
Garðtól á góðu verði
MIKIÐ ÚRVAL
Laufhrífa
890,-
Truper 10574
1.895,- Buf PGH3161.890,-