Fréttatíminn - 12.06.2015, Qupperneq 62
Spennandi
listsmiðjur í
Viðey í sumar
fyrir 8-13 ára
L istasafn Reykjavíkur og Bandaríska sendiráðið bjóða upp á listsmiðjur í
Viðey í sumar fyrir börn á aldr-
inum 8-13 ára í tengslum við sýn-
inguna Áfangar á verkum banda-
ríska listamannsins Richard
Serra í Hafnarhúsinu. Listsmiðj-
urnar standa í viku í senn þar sem
áhersla verður lögð á samband
myndlistar við umhverfi sitt hvort
sem það er náttúra eða manngert.
Þátttakendur fá tækifæri til að
njóta íslenskrar náttúru, teikna,
mála, móta, skrá niður hugleið-
ingar sínar og tengja við aðra
myndlistarmenn sem iðka ámóta
aðferðir og vinnulag. Þeir heim-
sækja jafnframt sýningu Richard
Serra, Áfanga, í Hafnarhúsinu
og skoða samnefnt verk hans úti
í Viðey. Listamennirnir og fjalla-
leiðsögumennirnir Margrét H.
Blöndal og Ósk Vilhjálmsdóttir
sjá um smiðjurnar. Listsmiðjurnar
verða alls fjórar og fara fram frá
klukkan 8.30-16 dagana 13.-17.
júlí, 20.-24. júlí, 27.-31. júlí, 10.-14.
ágúst. Skráning fer fram á: info@
halendisferdir.is. Frekari upplýs-
ingar fást í síma 864-0412.
Unnið í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur
Listsmiðjur í Viðey:
Fatnaður: Vatnsheldur hlífðarfatnaður
(buxur og stakkur), undirföt, þunn
langerma peysa eða skyrta, lopapeysa
eða þykk flíspeysa, vettlingar, húfa og/
eða buff.
Nesti: Mikilvægt er að börnin séu vel
nestuð; með morgun-, hádegis- og
síðdegisnesti.
Innifalið í námskeiðsgjaldi: Tveir
myndlistarkennarar/leiðsögumenn. Að-
staða í Viðey. Allt efni fyrir myndlist og
náttúruskoðun. Bátsferðir daglega.
Henný María Frímanns-
dóttir, upplýsingafulltrúi
Iceland Airwaves, segir
undirbúning í fullum gangi.
Ljósmynd/Hari
TónLeikaferð Veðurskipið Líma
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hóf í vikunni mikla tónleikaferð sem stendur yfir helgina.
Henný María Frímannsdóttir, upplýsingafulltrúi hátíðarinnar, segir þetta lið í því að kynna há-
tíðina fyrir fólki á landsbyggðinni. Hún segir tónlistarfólkið sem tekur þátt i ferðalaginu hafa
tekið mjög vel í hugmyndina og lagði hópurinn af stað á miðvikudaginn. Henný segir að ákveð-
ið hafið verið að heimsækja þá staði sem eru ekki í hinum hefðbundnu plönum þeirra sem fara
í tónleikaferðir og er hún á því að það geri ferðina enn skemmtilegri.
T ónleikaferð Iceland Airwa-ves nefnist Veðurskipið Líma og áhöfnin saman-
stendur af tónlistarkonunni Dj.
Flugvél og geimskip, rapparanum
MC Gauta og hljómsveitinni Agent
Fresco. Hópurinn hóf tónleika-
ferðina á Bolungarvík á miðviku-
dagskvöldið, í gær var hópurinn í
Grenivík, í kvöld, föstudagskvöld,
verða tónleikar á Raufarhöfn,
Breiðdalsvík á laugardag og ferða-
lagið endar á sunnudagskvöldið
með tónleikum í Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ.
Henný María Frímannsdóttir,
upplýsingafulltrúi hátíðarinnar,
segir ferðalagið vera part af undir-
búningi hátíðarinnar, sem er í full-
um gangi. „Við vildum leyfa lands-
byggðinni að taka þátt í þessu með
okkur,“ segir hún. „Þetta hefur
staðið til í nokkur ár að fara í
svona ferð og nú létum við bara
verða af því. Við gætum trúað því
að fólki á landsbyggðinni finnist
það vera útundan hvað þessa hátíð
varðar, þar sem hún er mjög reyk-
vísk, en við viljum breyta því og fá
sem flesta,“ segir Henný. „Lista-
mennirnir allir voru bara mjög til
í að gera þetta með okkur og það
er gríðarlega góð stemning í hópn-
um. Við erum að fara á staði sem
eru ekki oft á kortinu hjá hljóm-
sveitum og okkur langaði að gera
eitthvað aðeins öðruvísi,“ segir
hún. „Á Breiðdalsvík er t.d verið að
standsetja nýjan tónleikastað sem
nefnist Frystihúsið og það verður
mjög gaman að koma þangað,“ seg-
ir Henný.
Iceland Airwaves fer
fram í byrjun nóvem-
ber og segir Henný
að undirbúningur
fyrir hátíðina sé í
fullum gangi. Hún
segir að hátíðin verði með svipuðu
sniði og undanfarin ár, og mikill
fjöldi erlendra gesta hafi nú þegar
skráð sig til leiks. „Við erum búin
að tilkynna listamenn þrisvar og
verðum með tvær kynningar í við-
bót, og í lok júní kemur ein stór
frá okkur. Við erum enn að taka
við umsóknum og það eru nokk-
ur hundruð blaðamenn búnir að
boða komu sína. Á síðustu hátíð
voru um 700 of-venue tónleikar
og það verður eitthvað svipað
hjá okkur á þeirri næstu,“ segir
Henný María hjá Iceland Airwa-
ves.
Frítt er inn á alla tónleikana á
ferðalaginu um landið og allar
upplýsingar um tímasetningar má
finna á Facebook síðu viðburðar-
ins, Veðurskipið Líma.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Airwaves
heimsækir
landsbyggðina
www.odalsostar.is
Íslenskur Gouda-ostur hefur verið á boðstólum
á Íslandi frá árinu 1961. Í dag sér KEA Akureyri
um framleiðsluna. Fyrirmynd ostsins er hinn
frægi Gouda, frá samnefndum bæ í suðurhluta
Hollands. Gouda Sterkur er lageraður í sex
mánuði. Mjúkur, bragðmikill og þroskaður ostur
með skörpu bragði, sveppatónum, kryddkeimi
og langvarandi eftirbragði. Hentar við flest öll
tækifæri, hvort sem er á ostabakkann eða til að
setja punktinn yfir i-ið í matargerðinni.
GOUDA STERKUR
KRÖFTUGUR
62 menning Helgin 12.-14. júní 2015