Fréttatíminn - 12.06.2015, Síða 68
Í takt við tÍmann Sif HaukSdóttir
Lúxus að borða hjá mömmu
Hildur Sif Hauksdóttir er leikmaður Breiðabliks í Pepsi deild kvenna. Hún er
nýkomin heim frá Flórída þar sem hún var að læra sálfræði en vildi koma
heim til þess að taka slaginn í sumar með Breiðabliki. Hún fer í HÍ í haust og
stefnir á að ferðast til Ítalíu. Hún er mjög oft í Nike fatnaði frá toppi til táar,
og er á því að Facebook sé búið.
Staðalbúnaður
„Á Íslandi kaupi ég föt mest í Zöru og GK
Reykjavík, en þegar ég er erlendis fer ég
mest í Urban Outfitters og Top Shop. Ég
kaupi föt mest í útlöndum því þau eru svo
dýr hérna heima. Svona dagsdaglega er ég
oftast bara í Nike frá toppi til táar, en mér
finnst mjög gaman að klæða mig upp en
hef samt mjög einfaldan fatasmekk. Svo er
ég lærður förðunarfræðingur og nota MAC
vörur daglega, og safna þeim reyndar.“
Hugbúnaður
„Það eru mjög fá skipti sem maður lyftir
sér eitthvað upp þegar maður er að spila
fótbolta á sumrin. Oftast er það bara ein-
hver hittingur með stelpunum og oftast er
bara skemmtilegast í partíunum. Stundum
fer maður á American Bar eða á B5 ef
maður kíkir eitthvað. Týpíski drykkurinn
er Mango Tango, en ef ég vil meiri lúxus
þá er Chili Mojito í uppáhaldi hjá mér. Ég
horfi á flesta þætti sem eru í umferð en
skemmtilegastir þessa stundina eru Game
of Thrones og Sons Of Anarchy, svo eru
Friends alltaf klassískir. Ég horfi samt á
allt, eiginlega.“
Vélbúnaður
„Allt sem ég á er tengt Apple. Ég er með
Apple TV sem ég horfi mikið á sjónvarp í
gegnum, það er það nýjasta hjá mér. Ég er
með iPhone 5 og er mest á Instagram (@
hildursifhauks) og Twitter (@hildursif3).
Ég nota Facebook mest fyrir „chattið“,
annars held ég að Facebook sé búið. Ann-
ars er ég ekki mikið á öðrum öppum, nema
kannski veðurappinu. Maður er alltaf að at-
huga hvenær það kemur gott veður.“
Aukabúnaður
„Ég er mikil mataráhugamanneskja. Hér
heima er ég fastagestur á Gló, og ef ég vil
hafa það mjög fínt þá finnst mér mjög gott
að borða á Sushi Samba, Grillmarkaðnum
og Coocoo´s Nest. Ég hef verið mikið að
elda sjálf og finnst mjög gaman að elda
asískan mat, ég lærði inn á það í Ameríku.
Ég er ekki mikið að skoða uppskriftir en
prófa mig mikið áfram. Ég á ekki bíl en fæ
að nota bíl kærastans þegar ég þarf. Ég bý
hjá foreldrum mínum og það er lúxus að
fá að borða hjá mömmu og forðast leigu-
markaðinn. Markmiðið í sumar er að fara á
toppinn með Breiðabliki en í haust ætla ég
í Háskólann og halda áfram í sálfræðinni.
Svo ætlum við kærastinn að fara til Ítalíu í
haust, vonandi í smá frí.“
appafengur
Watchbox
Það eru flestir
snjallsímanotend-
ur með Snapchat
í dag. Allir hafa
gaman af því að
pósta einhverju
skemmtilegu og
fyndnu á „snapp-
ið“ og sumir pósta
vídeóum af börn-
unum sínum við
sínar iðju. Nú er
komið nýtt app
sem hefur sama
t i lgang, en þó
með nok k r um
skemmtilegum
viðbótum. Watch-
box er smáfor-
rit sem einfaldar
deilingu á mynd-
um og myndbönd-
um milli hópa og
samfélaga. Virkar
á ekki ósvipaðan
hátt og Snapchat,
en með Watch-
box get ur þú
búið til grúppur
f y r i r v inahóp -
inn, v innustað -
inn, skólann eða
hvaða hóp sem þú
vilt. Þú getur svo
valið um að hafa
grúppuna opna
þar sem allir geta
póstað inn í hana
og séð efnið eða
þá lokaða þar sem
einungis samþykktir meðlimir geta póstað
og séð efni. Skemmtileg leið til þess að deila
skemmtilegu efni til ákveðinna hópa, og allir
í hópnum geta tekið þátt. Það sem er svo best
við þetta forrit er að það er íslenskt.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.
68 dægurmál Helgin 12.-14. júní 2015