Frjáls verslun - 01.02.2007, Page 39
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 39
DAGBÓK I N
16. mars
Njáll Ferguson
Niall Ferguson, prófsessor í
sögu við Harvard háskóla, var
gestur á vegum Kaupþings
á Nordica hóteli í tengslum
við aðalfund félagsins. Niall
er Skoti og var hann kynntur
sem Njáll Ferguson. Hann
hafði gaman af því og sagði
að sem betur fer hefði hann
ekki verið kynntur sem Nííaal
- menn
hefðu getað skilið það sem
ána Níl. Í stuttu máli þá var
þetta mjög frumlegur og
skemmtilegur fyrirlesari og var
einstaklega fróðlegt að sjá
hvernig hann fór hundrað ár
aftur í tímann og bar núver-
andi hagvaxtarskeið við upp-
gangstímabilið 1880-1914.
13. mars
Dönsku fríblöðin
í sumarfrí
Einhverju sinni var gert grín
að því að Ríkissjónvarpið færi
í sumarfrí, ekki væri sent út
á fimmtudagskvöldum og að
Morgunblaðið kæmi ekki út á
mánudögum.
Þetta kom óneitanlega upp í
hugann þegar sagt var frá því að
tvö af nýju dönsku fríblöðunum,
24timer og Nyhedsavisen, íhug-
uðu að gera tveggja til fimm
vikna hlé á starfsemi sinni í
sumar og reiknað væri með að
það þriðja, Dato, gerði slíkt hið
sama.
Berlingske Tidende greindi
frá þessu og sagði að Danir
losnuðu þá við yfirfulla póst-
kassa af blöðum meðan þeir
væru í sumarfríi.
En fátt er svo með öllu illt;
Berlingske segir að blöðin spari
milljónir danskra á því að loka
þar sem mikið tap sé á rekstri
blaðanna.
21. mars
CCP meðal 100
framsæknustu
Sagt var frá því að íslenska
tölvuleikjafyrirtækið CCP, fram-
leiðandi nettölvuleiksins Eve
Online, væri á meðal 100
framsæknustu tæknifyrirtækja
Evrópu, að mati viðskipta-
tímaritsins Red Herring. „Þetta
hjálpar okkur við að byggja
upp vörumerkið CCP og laða
til okkur viðskiptavini og starfs-
menn,“ segir Hilmar Veigar
Pétursson, framkvæmdastjóri
CCP.
15. mars
NÝIR FERÐASKRIFSTOFUMENN
Niall Ferguson, prófessor við Harvard. Frumlegur fyrirlesari.
Arnar Þórisson og Þórir Kjartansson.
Íslensk fjárfesting ehf., sem
er í eigu Arnars Þórissonar
og Þóris Kjartanssonar,
keypti meirihluta í ferða-
skrifstofukeðjunni Kilroy
Travels International A/S
sem rekur 25 skrifstofur á
Norðurlöndum og í Hollandi
og er leiðandi í sölu einstakl-
ings- og hópferða fyrir ungt
fólk og stúdenta. Kilroy velti
12 milljörðum króna á síð-
asta ári. Starfsmenn eru um
300.