Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 89
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 89
Stafakubbar í pakkningum utan af andalifur var
sá markpóstur sem best þótti heppnast á síð-
asta ári, að mati dómnefndar Ímark. Pósturinn
var hluti af umfangsmiklu verkefni sem AP
almannatengsl og auglýsingastofan ENNEMM
unnu saman að og fólst í að finna nýtt merki
og nafn fyrir SÍF hf., sem kynnt var snemma á
síðasta. Nafnabreytingin þótti nauðsynleg og í
samræmi við nýja stefnu. SÍF, sem hafði áður
einkum fengist við útflutning á saltfiski, en var
nú orðið framleiðandi fullunninna matvæla fyrir
neytendamarkað í Evrópu. Nafnið SÍF þótti
ekki endurspegla starfsemi og markmið félags-
ins og niðurstaðan varð Alfesca.
Þegar boðið var til hátíðar þar sem nýtt
nafn og merki var kynnt, kom sú hugmynd
frá Þór Ingólfssyni, hönnuði hjá ENNEMM, að
nýta umbúðir utan um framleiðsluvöru félags-
ins í boðskort. „Þetta var í raun sáraeinföld
hugmynd. Í lítilli umbúðaöskju frá fyrirtækinu
voru kubbar með stöfunum ALFESCA. Fengu
boðsgestir þannig tækifæri til að leysa gátuna
um hvert hið nýja nafn yrði. Ef ég man rétt þá
var enginn sem hitti á rétt nafn. Það dugði ekki
einu sinni til þó færustu excel-sérfræðingar
fengjust við gátuna og settu þessa stafi saman
á allan mögulegan máta. Gátan óleysanlega
varð samt til að vekja athygli og forvitni gesta
og til þess var leikurinn líka gerður.“
Alfesca-nafnið er sett saman úr tveimur
grískum orðum, alfa og esca, og gæti í lauslegri
þýðingu þýtt: fæða í fyrsta sæti. „Við kynningu
á nýju nafni fyrirtækis þarf að huga að mörgu
og var markpósturinn einn af mörgum liðum
í þeirri vinnu. Í raun gengur öll auglýsingavinna
út á þetta sama; að finna nýjar útfærslur á
þekktum viðfangsefnum og þegar starfið
heppnast jafn vel og við kynninguna á nafni
Alfesca veit maður að til nokkurs hefur verið
unnið,“ segir Þór Ingólfsson.
Gestaþrautin sló í gegn
MARKPÓSTUR
Stafakubbar Alfesca voru
markpóstur sem virkaði vel.
Heiti auglýsingar: Þú fellur í stafi
Auglýsandi: Alfesca
Framleiðandi: Ennemm
Þór Ingólfsson.
var hluti af herferð þar sem settar voru fram
vangaveltur námsmanna um peninga og lífið
með húmor sem sterkan undirtón. Botnað var
svo með skilaboðum um betri vaxtakjör, fríar
færslur og aðra kosti við Námsmannaþjónustu
Glitnis.
„Auglýsingin var hluti af stærri herferð
þar sem sjónvarp var í aðalhlutverki. Fram-
leiddur var fjöldi leikinna sjónvarpsauglýsinga
um tvo námsmenn sem leigja saman og þurfa
að ráða fram úr ýmsum fjárhagsvandræðum.
En allt talar þetta saman. Útvarpið er einn
miðill af miðlaflórunni sem er notuð til að ná
árangri. Þessa herferð unnum við hjá Glitni
með auglýsingastofunni Jónsson og Le’macks
og það samstarf var mjög gott. Fólk náði
að ganga í takt og skilja strax í upphafi hver
markmiðin ættu að vera. Eftir því var hug-
myndavinnu og framleiðslunni hagað,“ segir
Áki sem bætir við að mikilvægt sé að keyra
auglýsingaherferð í mörgum tegundum miðla
á sama tíma.
„Hugmyndin verður líka að skila sér. Þegar
um er að ræða herferð í mörgum miðlum, t.d.
dagblöðum, sjónvarpi og útimiðlum, getur oft
verið erfitt að gera hugmynd herferðarinnar
almennileg skil í útvarpi, sérstaklega ef hug-
myndin hreinlega snýst um ákveðið myndefni
eða myndmál. Oft getur verið betra að finna
nýtt sjónarhorn á hugmyndina fyrir útvarp
sem eykur þá á fjölbreytnina án þess þó að
skilaboðin missi marks.“
Myndmál í útvarpi