Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 95
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 95
Hvalfjarðargöngin:
Styttri og betri leið
Stórskemmtilegt Öndverðarnes
Guðmundur Hallsteinsson er formaður Múr-
arameistarafélags Íslands. Félagið á helmingshlut
í gríðarlega fallegu og fjölbreyttu sumarhúsa-
svæði á móti Múrarafélaginu í Öndverðarnesi.
Þetta er stórskemmtilegt svæði með golfvelli,
sundlaug, leiksvæði fyrir börn og stangaveiði.
Golfvöllurinn í Öndverðarnesi þykir
skemmtilegur, vinalegur og nokkrar brautir þar
eru svolítið öðru vísi en menn eiga að venjast;
spilað er inn í gamlar réttir þar sem flatirnar
eru.
„Hér er búin að vera alveg gríðarleg upp-
bygging bæði í húsum og afþreyingu,“ segir
Guðmundur. „Nú eru hér um 300 byggðar
sumarhúsalóðir og stefnir í meira enda höfum
við tekið þann pólinn í hæðina að úthluta
lóðum til múrara og múrarameistara en hver
sem er getur hins vegar keypt af þeim sumarhús
á svæðinu.“
Fjölbreyttir afþreyingamöguleikar einkenna
svæðið og er þar viðamestur 9 holu golfvöllur.
„Við erum að stækka völlinn í 18 holur og mun
því verki verða lokið árið 2008. Þetta var fyrsti
golfvöllurinn á Íslandi, sem búinn var til á sum-
arhúsasvæði, en nú hafa fleiri tekið við sér,“
bæti Guðmundur við.
„Hér er líka hægt að stunda stangveiði og
aðgangur er að sundlaug og mjög skemmtilegu
leiksvæði fyrir börn. Síðast en ekki síst má
nefna að hestaeigendur sem bústað eiga á svæð-
inu geta haft hesta sína á beitilandi þar yfir
sumarið.“
Hluti af golfvellinum við sumarbústaðasvæði Múrarafélagsins í Öndverðarnesi.
Guðmundur Hallsteinsson er
formaður Múrarameistarafélags
Íslands.
Það breyttist margt með Hvalfjarðargöngunum. Ferðir þeirra
sem þurftu að fara Hvalfjörðinn styttust verulega og stór sum-
arbústaðalönd, sem áður höfðu þótt heldur langt frá Reykja-
vík, voru nú í þægilegri akstursfjarlægð. Afleiðingin er sú að
sumarbústöðum hefur fjölgað mjög og einnig hafa göngin
orðið til þess að nú þykir lítið mál að vinna á Akranesi og búa
á Reykjavíkursvæðinu og öfugt.
„Göngin tóku af verulega erfiðan kafla á leiðinni vestur
og norður um, kafla sem var seinfarinn og oft sérlega erf-
iður á föstudags- og sunnudagseftirmiðdögum. Að maður
tali nú ekki um þegar hvassviðri og hálka var á leiðinni, sem
var nokkuð oft, einkum að vetrarlagi,“ segir Gylfi Þórðarson,
framkvæmdastjóri Spalar.
Ljóst er að göngin eru vinsæl þó að sumir kvarti undan
kostnaði við að fara þau en í upphafi var umferðin um 1500
bílar á sólarhring. „Nú er meðalumferðin um 5100 bílar á sól-
arhring og á álagstímum getur hún farið í um 10.000 bíla á
sólarhring,“ segir Gylfi sem segir að ætlunin sé að skila göng-
unum skuldlausum til ríkisins árið 2018.
Stórskemmtilegt leiksvæði er fyrir
börn í Öndverðarnesi.