Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 47
Meðal nemanda í meistaranámi í Alþjóðlegri bankastarfsemi og fjármálum við Háskólann á Bifröst er Guðmundur Þ. Guð-mundsson, sem starfar hjá Reiknistofu bankanna þar sem hann
er verkefnisstjóri yfir innleiðingu á sameiginlegu verkefni bankanna,
vörnum gegn peningaþvætti. Guðmundur var áður fyrr ein sterkasta
stoðin í íslenska landsliðinu í handbolta, þjálfaði landsliðið með góðum
árangri og er nú þjálfari Fram í 1. deild. Ætla mætti að lítill tími sé hjá
Guðmundi fyrir námið en með lagni og skipulagningu hefur honum
tekist að láta marga þætti í lífi sínu ganga farsællega upp:
„Ég hafði um skeið haft áhuga á að mennta mig enn frekar. Þegar
ég sá auglýsinguna um meistaranámið í alþjóðlegri bankastarfsemi og
fjármálum sá ég strax nám sem gæti nýst mér vel í starfi og það hefur
komið á daginn að námið er sniðið fyrir starfsmenn í fjármálafyrir-
tækjum og fyrirtækjum sem starfa í alþjóðlegu umhverfi. Háskólinn á
Bifröst á hrós skilið fyrir að vera fyrstir með markvisst nám sem nýtist
eins vel og raunin er og er ég mjög ánægður með hvernig námið er
skipulagt og það stenst allar kröfur sem ég gerði til þess.“
Námið krefst góðrar skipulagningar Guðmundur segir að þegar
farið sé út í nám með vinnu þurfi að velta hlutunum vel fyrir sér áður
en lagt er af stað: „Fyrirfram vissi ég að námið tekur mikinn tíma og
verður að hafa fjölskylduna með í ráðum sem og vinnuveitendur og
ég er mjög þakklátur fyrir þann skilning sem ég hef mætt hjá yfir-
mönnum mínum á Reiknistofu bankanna. Ekki gerir það dæmið
einfaldara að vera þjálfari í handbolta. Segja má að ég sé alltaf að leita
að klukkutímum til að læra, finna tíma á kvöldin eða um helgar og
þegar skipulagningin er í lagi þá tekst það.
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst
býður upp á alþjóðlegt meistaranám
í fjármálum og viðskiptum. Um er að
ræða tvær námsleiðir sem byggja á
hagnýtri þekkingu og traustum fræði-
legum grunni og er mið tekið af bestu
erlendum fyrirmyndum. Kennarar koma
frá erlendum háskólum, innlendum
sem erlendum fjármálafyrirtækjum og
Háskólanum á Bifröst og er námið allt
á ensku.
Meistaranám í alþjóðlegri banka-
starfsemi og fjármálum – International
Banking and Finance – höfðar til þeirra
sem starfa eða hafa áhuga á að starfa
í alþjóðlegu banka- og fjármálaumhverfi.
Lögð er áhersla á að nemendur geti að
námi loknu tekist á við flókin stjórnunar-
og sérfræðistörf á sviði alþjóðlegrar
banka- og fjármálastarfsemi. Boðið er
upp á námsferð til New York á náms-
tímanum.
Meistaranám í alþjóðlegum viðskiptum
– International Business – er góður
undirbúningur fyrir stjórnendur og starfs-
menn fyrirtækja sem tengjast alþjóð-
legum viðskiptum og eru með starfsemi
sína hér á landi og erlendis. Námið
mætir vaxandi þörf í samfélaginu fyrir
vel menntað fólk með yfirgripsmikla
þekkingu á öllum sviðum alþjóðlegra
viðskipta.
Sími: 433 3000 • bifrost@bifrost.is • www.bifrost.is
Guðmundur Þ. Guðmundsson
er í meistaranámi í alþjóðlegri
bankastarfsemi og fjármálum:
Krefjandi nám
sem gaman er að
Meistaranám í alþjóðlegri banka-
starfsemi, fjármálum og viðskiptum
Námið hófst með staðnámi í júlí í
fyrra og þá var kennt í mánuð og síðan
erum við í fjarnámi yfir veturinn og á
hverri önn eru tvær vinnuhelgar á Bif-
röst. Í sumar verður aftur staðnám.“
Í góðu sambandi við kennarana
Að sögn Guðmundar var ekkert sem
kom honum beint á óvart í náminu:
„Ég vissi fyrirfram að námið yrði
mikil vinna, en þegar hægt er að vera
í góðu sambandi við kennarana eins
og reyndin hefur verið þá auðveldar
það námið. Kannski má segja að það sem kom mér á mest á óvart hafi
verið hversu ánægður ég var með fyrirkomulag kennslunnar.“
Guðmundur mælir eindregið með náminu fyrir starfsmenn fjár-
málafyrirtækja og fyrirtækja sem starfa í alþjóðlegu umhverfi: „Ég
held að allir sem fara í meistaranám á þessu sviði séu að gera það
vegna mikils áhuga, annars gengi það ekki upp. Ég er í krefjandi
námi fyrir sjálfan mig og hef mjög gaman að. Það var sagt við mig
þegar ég var að íhuga námið á Bifröst að slíkt væri ekki hægt með
öllu öðru sem ég geri, að ég væri að ætla mér um of. Annað hefur
komið á daginn og allt hefur gengið upp, en ég er fyrsti maður til að
viðurkenna að aðeins er tímabundið hægt að leggja á sig slíkt nám
með fullri vinnu,“
Undirbýr nemendur vel fyrir fjölbreytt verkefni Hvað varðar fram-
tíðina þá telur Guðmundur námið gefa mörg tækifæri. „Skilning-
urinn á alþjóðlegu bankaumhverfi og alþjóðaviðskiptum eykst til
muna og námið undirbýr okkur vel fyrir fjölbreytt verkefni. Síðan
verður hver og einn að nýta þau tækifæri sem bjóðast.“
Guðmundur Þ. Guðmundsson.