Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
heiminum, og fjármagnar verkefni einkum
tengd skólum og menntun.
Tom Hunter hefur sagt að sín helsta
fyrirmynd í lífinu sé landi hans Andrew
Carnegie sem fluttist bláfátækur á barnsaldri
til Bandaríkjanna og varð einn auðugasti
maður heims. Carnegie sagði að það væri
skömm að deyja auðugur
og eins og allar þær stofn-
anir sem við hann eru
kenndar sýna þá reyndi
hann af fremsta megni
að nýta peningana í þágu
annarra. Sama vill Hun-
ter gera. Þegar hann var
einhvern tíma spurður að
því af hverju hann hefði
sett stofnunina á fót sagði
hann að sumir biðu með
það fram á dánardægur
að koma einhverju frá
sér, „en það er algjör
misskilningur að fara að
deyja auðugur.“ Þetta er
hans útgáfa af hugsun Carnegie.
Liður í barnastarfinu er fjárframlag upp
á 5 milljónir punda til Kelvingrove lista-
safnsins í Glasgow, sem er eitt af merkari
listasöfnum Evrópu. Framlagið hefur verið
notað til að innrétta The Campbell Hunter
Education Wing – en álman er skírð eftir
föður Hunters sem Sir Tom segir að hafi
alltaf verið sér innblástur í lífinu.
Á þessu ári verður opnuð margmiðlunar-
miðstöð í álmunni sem á að veita krökkum
bestu kynningu á listum og safninu sjálfu
sem völ er á. Þarna er hvergi til sparað og
sjálfur vildi Hunter að álman og aðbún-
aður þar jafnaðist á við Smithsonian safnið í
Washington DC.
Írinn Bob Geldof hefur einnig látið mikið
til sín taka í mannúðarmálum og þar hafa
þeir Hunter einnig starfað saman. Stofnun
hans gaf milljón punda í Make Poverty
History-herferðina og studdi Live 8-tón-
leikana sem voru haldnir til að styðja her-
ferðina fyrir leiðtogafund átta helstu iðnríkja
heims í Skotlandi 2005 þegar skuldaafskriftir
fyrir þriðja heiminn voru baráttumál.
Í kjölfar tónleikanna tók Hunter upp
samstarf við Bill Clinton, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, og stofnun Clintons í þróun-
armálum. Hunter leggur 55 milljónir punda
í The Clinton-Hunter
Development Initiative
– takmarkið er að gefa
fólki tækifæri til að bæta
hag sinn.
Hunter hefur sagt að
hann trúi ekki á að rétta
svöngum manni bara fisk
– hann vill gefa honum
veiðistöng og kenna
honum að veiða. Líkt og
nú heyrist gjarnan í þró-
unarstarfi álítur Hunter
að efnahagslegar framfarir
séu byggðar á þekkingu
og kunnáttu. Það skipti
því öllu máli að hafa það
að leiðarljósi að ýta undir þessa þætti og
að því vill Hunter vinna. Stundum skellir
hann þó fram fé á annan hátt: Í símasöfnun
BBC fyrir bágstödd börn í nóvember í fyrra
hringdi hann inn og gaf eina milljón punda
á einu bretti.
Önnur ástæða fyrir gjafmildi Hunters er
að þau hjónin kæra sig ekki um að börnin
þeirra tvö erfi einhver ósköp. Hann hefur
sagt að hann líti á það sem bagga fyrir börn
að erfa mikið og þó þau verði ekki skilin eftir
á neinu flæðiskeri verði þau sjálf að finna sér
viðfangsefni og tilgang í lífinu. Peningarnir
einir dugi þar ekki. Hunter vill sjá vel fyrir
fjölskyldu sinni en það sem er umfram vill
hann gefa til uppbyggilegra mannúðarmála.
Firna seigur fjárfestir
Þótt Hunter sjá ekkert takmark í því að deyja
auðugur maður og hafi látið háar upphæðir
af hendi rakna í mannúðarmál er hann
ekki síður öflugur fjárfestir: það sjatnar því
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
HUNTER OG JÓN ÁSGEIR
Á INDLANDI
Í byrjun mars voru Tom Hunter og
Jón Ásgeir Jóhannesson saman á ferð
um Indland til að stofnsetja fjár-
festingarsjóð í samvinnu við HBOS
bankann, á vegum fasteignafyrirtæk-
isins Catalyst Capital. Sjóðurinn
nemur 100 milljónum dala, um 7
milljörðum króna, og mun fjárfesta í
fasteignum, nýbyggingum og landi.
Fjárfestingarnar eru hluti af viðleitni
Hunters til að dreifa fjárfestingum
sínum en hann hefur þegar fjárfest
nýlega í gegnum West Coast Capital, í
fasteignum í Bandaríkjunum og Kína.
Frá Indlandi fóru þeir Hunter og
Jón Ásgeir til Bangladesh þar sem þeir
hittu Muhammad Yunus sem í fyrra
hlaut friðarverðlaun Nóbels. Grammi-
bankinn, sem Yunus stofnaði, sérhæfir
sig í svokölluðum örlánum (micro-
lending). Heimsóknin er rökréttur
liður í stuðningi Hunters við þróun-
arstarf en það verður fróðlegt að sjá
hvort Jón Ásgeir tekur Hunter sér
til fyrirmyndar og fer inn á svipaðar
brautir í viðbót við stuðning Baugs
við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Hunter ólst upp í
skoskum námubæ,
sonur kaupmanns þar.
Þegar námunum var
lokað breyttist lífið í
bænum. Hunter hefur
síðar sagt að þessi
reynsla hafi gert hann
ákveðinn í að vera ekki
öðrum háður.