Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 112

Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 112
112 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 K YN N IN G TJARNABYGGÐ: Búgarðabyggðin hefur reynst eftirsótt Í sveitarfélaginu Árborg er að rísa 600 ha búgarðabyggð sem ber nafnið Tjarnabyggð. Þetta er nýjung í íslensku skipulagi en á sér nokkra fyrirmynd í eftirsóttum hverfum í grennd við borgir og bæi erlendis,“ segir Jörundur Gauksson, framkvæmdastjóri Búgarðabyggðar. Á síðustu árum hefur orðið mikil viðhorfsbreyting hér á landi og fólk sækist eftir því að búa á jaðarsvæðum þéttbýlis þar sem landrými er meira og auðveldara að stunda áhugamál eins og hestamennsku. Fram að þessu hefur lítið framboð verið á landskikum í grennd við Reykjavík þar sem fólk fær notið fullrar þjónustu þótt það sé komið út í sveit. Einstök staðsetning Í Tjarnabyggð verður til nýtt samfélag. Fólk getur eignast þar landskika þar sem búið er að leggja alla vegi og tryggja þjónustu frá einu öflugasta sveitarfélagi landsins, Árborg. Má þar nefna að hitaveita verður á svæðinu, skólaakstur og allur rekstur og viðhald vega verður í höndum Árborgar. Staðsetning Tjarnabyggðar er einstök, hún er mitt á milli Eyr- arbakka og Selfoss eða um 4 km frá Selfossi og 55 km frá Reykjavík. Byggðin liggur vestan Eyrarbakkavegar og um ósnortið valllendi sem tengist óbyggðu víðerni sveitarfélagsins, þ.á m. fuglafriðlandinu og öðrum svæðum sem eru á náttúruminjaskrá. Friðsæld, fegurð og fuglalíf Landskikarnir eru 1-4 ha og vinsælt er að kaupa samliggjandi lóðir enda ekki skilyrði að byggt sé á þeim öllum. Skipulagið byggir á sexhyrndum klösum þar sem 6 lóðir liggja saman. Helstu einkenni svæðisins eru friðsæl sveit með fallegum tjörnum, góðu ræktunar- og beitilandi og fuglalífi. Sérstaða Tjarnabyggðar liggur ekki síst í frelsi í hönnun húsa og þeirri staðreynd að þar má byggja íbúð- arhús, skemmu og hesthús allt að 1500 fm. Samkvæmt skipulagi eru rúmar heimildir til húsdýrahalds og léttari atvinnustarfsemi tengdrar búgarðabyggð svo svæðið er m.a. tilvalið fyrir hestamenn. Byggðir verða 16 km af reiðstígum innan svæðisins og verður hluti þeirra upplýstur. Stígarnir tengjast síðan þéttu reiðleiðakerfi sveitarfélagsins. Í vor verður búið að leggja reið- stíga um tvo fyrstu áfangana. Gatnagerð er lokið í tveimur og hálfum áfanga af sex og allar lagnir komnar í fyrstu tvo áfangana, m.a. fyrir hitaveituna. Þegar er búið að selja tæpar 100 lóðir og er kaupendahópurinn fjölbreyttur, þ.á.m yngra fjölskyldufólk. Kaupendur hafa verið sáttir við verð landskikanna en þeir hafa verið seldir á föstu verði, gatnagerðargjöld innifalin. Líklegt er talið að miklar verðhækkanir verði á svona búskaparkostum á næstu misserum enda breytist lífsstíll fólks og áhugi orðinn meiri á þeim lífsgæðum sem felast í íslenskri náttúru. Enn eru skikarnir seldir á sama verði og í upphafi þegar sala hófst í lok mars í fyrra. Tjarnabyggð er með heimasíðuna www. tjarnabyggd.is en Jörundur Gauksson er í fyrirsvari fyrir verkefnið og er með síma 898-0343 Tæpu ári eftr að byrjað var að selja lóðir í Tjarnabyggð hafa verið selda tæpar hundrað lóðir og þegar er byrjað að byggja þar á annan tug húsa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.