Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 74
KYNNING74 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
LEX lögmannsstofa er ein stærsta lögmannsstofa landsins og þar
vinna hátt í 30 lögmenn með víðtæka þekkingu og reynslu á öllum
helstu sviðum lögfræðinnar. Meðal viðskiptavina LEX eru mörg af
stærstu fyrirtækjum landsins, íslensk stjórnvöld og fjöldi erlendra
aðila.
LEX hefur stofnað nýtt svið, Auðlinda- og orkunýtingarsvið, og
bætist það við þau svið sem fyrir eru hjá LEX. Er Auðlinda- og
orkunýtingarsviði ætlað að svara sívaxandi eftirspurn eftir lögfræði-
þjónustu fyrir þennan málaflokk. Áhersla á auðlindamál hefur farið
sífellt vaxandi á síðustu misserum, ekki bara hérlendis heldur um
heim allan. Þá verða umhverfismál og löggjöf á því sviði ekki skilin frá
auðlinda- og orkunýtingu og er bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum
nauðsynlegt að geta leitað sér traustrar ráðgjafar á þessum sviðum.
Aukinni áherslu á auðlindamál fylgja breytingar á lagaumhverfi
Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á lagaumhverfi því
sem gildir á sviði auðlinda-, orku- og umhverfismála; má nefna
auðlindalög, vatnalög, lög um kolvetni, raforkulög, lög um mat á
umhverfisáhrifum og lög um umhverfismat áætlana. Með þessum
lagabreytingum hafa verið gerðar ýmsar grundvallarbreytingar, t.d.
á raforkulögum, þar sem raforkukerfið var markaðsvætt, og á fram-
kvæmd mats á umhverfisáhrifum, auk þess sem leyfakerfi vegna
auðlindanýtingar og starfsemi, sem henni tengist, hefur sífellt orðið
flóknara og umfangsmeira. Ýmsar frekari lagabreytingar eru í farvatn-
inu í samræmi við að vaxandi áhersla er lögð á þennan málaflokk.
Þátttaka Íslands í hinum sameiginlega markaði EES hefur líka sett
varanlegan svip á setningu laga og framkvæmd þeirra.
Fjölbreytt verkefni
Á undanförnum árum hefur LEX tekið að sér fjölbreytt verkefni á
sviði auðlinda-, orkunýtingar- og umhverfismála, bæði fyrir opinbera
aðila og einkaaðila, og hefur byggst upp mikil sérþekking innan LEX
á þessum sviðum. Þar að auki hefur LEX veitt stjórnvöldum sér-
fræðiráðgjöf við lagasetningu er varðar þessa málaflokka.
Hæfir lögmenn sem þekkja lagaumhverfið - þjónusta hér heima
og við útrásarfyrirtæki
LEX hefur yfir að ráða hæfum lögmönnum sem þekkja lagaum-
hverfið á auðlinda- og orkunýtingarsviði, lögmenn sem geta brugðist
hratt við þegar á þarf að halda. LEX er í stakk búið að sinna alhliða
og heildstæðri lögfræðiþjónustu fyrir viðskiptamenn sína, hvort sem
starfsemi þeirra er hérlendis eða hugur stendur til útrásar. Reynslan
sýnir að því fyrr sem leitað er lögfræðiráðgjafar vegna stærri verkefna
á þessu sviði því auðveldara verður að fyrirbyggja vandamál sem upp
geta komið.
Auðlinda- og orkunýtingarteymi LEX skipa Dýrleif Kristjáns-
dóttir hdl., Eva Margrét Ævarsdóttir hdl. LL.M., Garðar G. Gíslason
hdl. og Karl Axelsson hrl. og lektor við lagadeild HÍ.
Auðlinda-
og orkunýtingarsvið
Meðal verkefna sem Lex hefur sinnt er ráðgjöf vegna mats á umhverfisáhrifum vegna efnistöku Björgunar, m.a. í Kollafirði, og vegna starfsleyfis
fyrirtækisins og lögfræðileg ráðgjöf og verkefni fyrir ýmsa aðila, t.d. Orkustofnun, Jarðboranir, Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða.
Lex ehf. Lögmannsstofa