Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
ÁLTAK:
Gæðin ávallt í fyrirrúmi
Áltak er þekktast fyrir gæða-utanhúsefni, einkum fyrir álklæðningar frá Alcan-Novelis og undirkerfi úr áli. Auk álklæðninga býður Áltak heildarlausnir í Zink og kop-
arklæðningum.
Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri Áltaks, segir að vörurnar,
sem Íslenska verslunarfélagið var með, falli vel
að vöruframboði Áltaks. „Viðskiptavinirnir eru að
miklu leyti þeir sömu, fyrst og fremst verktakar,
og nú getum við boðið þeim það sem þeir þurfa á
að halda innan dyra eða utan. Vörur Íslenska versl-
unarfélagsins hafa verið í fremstu röð hvað gæði
snertir en Áltak hefur einmitt alltaf verið þekkt fyrir
gæði og við viljum ekki slaka á þeim kröfum. Við
höfum aldrei verið ódýrastir, en seljum líka aðeins
gæðavörur sem endast.“
Auknar kröfur um hljóðeinangrun Meðal nýjunga hjá Áltaki eru
sænsku Ecophon kerfisloftin og kerfisveggir frá ABCD. Menn gera
nú meiri kröfur en áður til hljóðeinangrunar, t.d. í skrifstofu- og
fundarhúsnæði, og miklu máli skiptir að veggir og loft uppfylli
ýtrustu kröfur um hljóðísog svo að mál manna heyrist ekki milli
herbergja. Í Ecophon-plötunum er glerull en til þessa hefur steinull
aðallega verið notuð til einangrunar í veggi og loft. Reyndar selur
Áltak einnig þýskar plötur með steinull og eru þær ódýrari, enda
hljóðísogið ekki það sama og í sænsku plötunum.
Reyklosunarbúnaður skilyrði Önnur nýjung í vöruúrvali Áltaks er
reyklosunarbúnaður og allt sem tengist eldvörunum enda seldi Íslenska
verslunarfélagið heildarlausnir á sviði eldvarna.
Magnús segir að kröfur um eldvarnir og reyklosun
séu mun strangari en áður var og reyklosunarbún-
aður verði að vera í öllum stigagöngum nýrra fjöl-
býlishúsa sem og í verslunar- og iðnaðarhúsnæði.
Búnaðurinn er opnaður anna hvort með rafmagni
eða CO2 skynjurum og er framleiddur í samræmi
við gildandi Evrópureglugerðir. Auðvelt er að koma
reyklosunarbúnaðinum fyrir í stigagöngum eldri
húsa, enda vilja margir auka öryggi íbúanna.
Áltak leggur sem fyrr áherslu á sölu álklæðninga
á veggi og þök. Álið er m.a. valsað hérlendis. Álklæðningarnar fást
í mörgum þykktum og gerðum, með litaðri PVDF- eða polyest-
erlakkhúð sem upplitast ekki og viðhald er í algjöru lágmarki. „Við
höfum líka verið að færa okkur yfir í sölu á samlokueiningum fyrir
stálgrindahús sem gjarnan eru notaðar í lager- og verslunarhúsnæði.
Innan í samlokunum, sem eru mjög vandaðar, er steinullareinangrun
og uppfylla þær öll skilyrði brunasamþykkta.
Áltak selur hágæða-
vörur sem henta
jafnt innan húss
sem utan og sér-
hæfir sig m.a. í
reyklosunarbúnaði.
SUMARHÚS
Magnús Ólafsson framkvæmdastjóri, lengst til vinstri, ásamt starfsfólki Áltaks.