Frjáls verslun - 01.02.2007, Qupperneq 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
GLORIA CASA:
Útsýni yfir Miðjarðarhafið
úr öllum íbúðum
F ólk á öllum aldri sækir til Spánar og nú geta þeir sem eru 55 ára og eldri fest kaup á sérstökum íbúðum í fjölbýlishúsum sem eru sérhönnuð fyrir „heldri borgara“ á hinu svokallaða
Costa Blanca svæði. Það er fasteigna- og leigumiðlun Íslendinga á
Spáni, Gloria Casa, sem annast sölu íbúðanna, spænska fyrirtækið
Esfera Internacional reisir húsin, en Guðmundur Gunnlaugsson
arkitekt teiknaði þau.
Hallur Ólafur Agnarsson, framkvæmdastjóri
Gloria Casa, segir að Palace Saradon íbúðirnar verði
búnar öllum þeim þægindum sem við þekkjum hér
heima. Þær séu hannaðar af íslenskum arkitekt með
það í huga að þær henti sérstaklega eldri borgurum.
Þar kann Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt vel til
verka enda hefur hann áður hannað m.a. Skúlagötu
20 þar sem eru íbúðir ætlaðar eldra fólki, hann hefur hannað hátt í
700 íbúðir af því tagi á Íslandi.
Öll þjónusta í göngufæri Palace Saradon er um þrjá km frá ströndinni
og í göngufæri við alla þjónustu, veitingastaði, verslunarmiðstöðvar og
golfvöll auk þess sem fleiri golfvellir eru ögn lengra í burtu. Í fyrsta
áfanga verða reistar tvær blokkir með 20 íbúðum hvor. Þær standa
á hæð þar sem útsýni er mikið og fallegt. Þess var gætt við hönnun
húsanna að allar íbúðir snúi í átt að sól og flestar með útsýni út á
hafið. Blokkirnar eru á lokuðu svæði sem er vaktað af öryggisverði svo
öryggi íbúanna sé vel tryggt. Milli blokkanna er yfirbyggð sundlaug
og samkomusalur. Sundlaugin er upphituð og auk þess hægt að loka
sundlaugarsvæðinu að vetrinum ef eitthvað kólnar í veðri. Við laugina
eru saunabað, aðstaða fyrir nudd og sitthvað fleira sem gerir íbúunum
lífið þægilegt. Þarna verður einnig aðstaða fyrir hjúkrunarfræðing og
þar sem allt bendir til að íbúar húsanna verði flestir ef ekki allir íslenskir
má reikna með að hjúkrunarfræðingurinn verið íslenskur.
Íbúðirnar eru 70 og 85 fermetrar. Þar við bætast að 25-45 fermetra
svalir og fyrir framan íbúðir á jarðhæð verður 45
fermetra einkagarður. Sérinngangur af svölum er
í allar íbúðir. Gert er ráð fyrir tveimur svefnher-
bergjum en í íbúðartýpu C má fjölga þeim í þrjú með
aukaveggjum, ef fólk vill. Á svölum er nuddpottur
fyrir tvo. Allar innréttingar eru úr gegnheilum viði og
granít á borðum í eldhúsi. Loks má nefna að hugsað
hefur verið fyrir auðveldu aðgengi og umferð, bæði
innan dyra og utan, fyrir fólk í hjólastólum. Bílakjallari fylgir hús-
unum og þar eru bílastæði í samræmi við íslenska staðla en ekki eins
þröng og víða er á Spáni.
Íbúðir afhentar sumarið 2008 Palace Saradona íbúðirnar verða
afhentar eftir 18 mánuði, sumarið 2008. Hallur Ólafur segir að verið
sé að byggja sýningaríbúð sem fólk getur skoðað og fari það til Spánar
og festi síðan kaup á íbúð verður ferðakostnaðurinn endurgreiddur
við afsal. Hægt er að fá allt að 80% óverðtryggð lán á Spáni og vextir
eru um 5%. Hallur Ólafur bendir einnig á að mun ódýrara sé að lifa
á Spáni en hér heima og þar sé lækniskostnaður ókeypis á opinberum
sjúkrahúsum og lyfjakostnaður um 15% af því sem hér gerist.
Íbúðir á Spáni
hannaðar með
þarfir íslenskra
eldri borgara í
huga.
Húsin eru falleg og svalirnar stórar og spennandi með heitum potti.
SUMARHÚS
Dæmi um íbúð í Palace Saradona.