Frjáls verslun - 01.02.2007, Síða 128
128 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
AVH ARKITEKTÚR - VERKFRÆÐI - HÖNNUN:
Töluverða athygli vakti nú fyrir skömmu þegar Sparisjóður Svarfdæla
á Dalvík ákvað að gefa sveitarfélaginu heilt menningarhús! AVH
– arkitektúr – verkfræði – hönnun á heiðurinn af hönnun hússins.
AVH er framsækið fyrirtæki á sviði hönnunar og er með vinnustöðvar
á Akureyri og í Reykjavík. Hjá AVH hefur verið hannaður fjöldinn
allur af byggingum, stórum og smáum, ekki bara á Akureyri heldur
um allt land. Auk þess hefur AVH hannað húsnæði fyrir nokkur fyrir-
tæki í Englandi, Frakklandi og Þýskalandi.
Haukur Haraldsson tæknifræðingur stofnaði Teiknistofu Hauks
Haraldssonar sf. árið 1974 sem varð AVH – arkitektúr – verkfræði
– hönnun árið 2003. Starfsmenn eru um 10 talsins. Yfirarkitekt
er Fanney Hauksdóttir og yfirverkfræðingur Anton Örn Brynj-
arsson. Þau eiga fyrirtækið auk Hauks Haraldssonar, Önnu Margrétar
Hauksdóttur arkitekts og Halldóru Ágústsdóttur tækniteiknara.
„AVH veitir alhliða hönnunar- , verkfræði- og skipulagsþjónustu,
sem og þrívíddarþjónustu,“ segir Fanney, „og óhætt er að fullyrða að
hjá okkur starfar frábært og velmenntað fólk. Auk þess höfum við lagt
mikið upp úr að starfa með listafólki og öðrum hönnuðum þannig
að verk þeirra verði hluti af arkitektúrnum, enda er spennandi að láta
verk listafólksins og arkitektúrinn renna saman í eitt.“ Helstu sam-
starfsaðilar AVH á því sviði hafa verið Jóhanna Kristín Ólafsdóttir
innanhúsarkitekt, Margrét Jónsdóttir leirlistarkona, Sigurður Árni
Sigurðsson myndlistamaður og Vala Melstað fatahönnuður.
Þrívíddarlíkön Að sögn Fanneyjar eru hönnuðir farnir að útbúa í
auknum mæli þrívíddarlíkön eða módel af hugmyndum sínum. Það
gerir þeim mun auðveldara að kynna hugmyndirnar á skýran og
einfaldan hátt. Um leið eiga viðskiptavinirnir mun auðveldara með að
sjá fyrir sér hvernig verkin munu líta út, fremur en með því einu að
skoða af þeim teikningar. AVH gerir slík þrívíddarlíkön fyrir þá sem
þess óska. Sem dæmi má nefna að hægt er að fella módel inn í myndir,
sýna hús bæði innan og utan á myndbandi, fella vega- og brúarmann-
virki inn í fyrirhugað umhverfi og sitthvað fleira.
Verkefni erlendis AVH hefur nýlokið við skrifstofur fyrir XL UK,
XL France og XL Germany. Fanney segir að þetta hafi verið mjög
skemmtileg verkefni og
hafi íslenskir listamenn
komið að þeim. Hluti af
afgreiðsluborði hjá XL
UK er verk Margrétar
Jónsdóttur leirlistarkonu
og Sigurður Árni Sigurðs-
son myndlistamaður sá
um listaverk á glervegg-
ina hjá XL France í París.
XL UK 2005 XL France 2006 XL Germany 2006
Eiga verk bæði hérlendis og erlendis
Menningarhúsið á Dalvík 2007.