Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 147
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 147
LÖGREGLA OG BLAÐAMENN
Í LEIT AÐ RAÐMORÐINGJA
frægan hjá Propaganda Film þegar Sigurjón Sig-
hvatsson var þar við völd. Fyrsta kvikmynd hans var
þriðja Alien myndin, sem þá var dýrasta kvikmynd
sem gerð hafði verið þar sem leikstjóri stýrði sinni
fyrstu mynd. Fincher átti ekki góða daga við gerð
Alien 3 að eigin sögn.
Næsta mynd hans, Seven (1995), sló eftirminni-
lega í gegn. Hún skildi engan eftir ósnortinn, enda
einstaklega grimm lýsing á leit tveggja lögreglu-
manna að raðmorðingja sem byggir morð sína á
dauðasyndunum sjö. The Game (1997) fylgdi í
kjölfarið. Í henni fær viðskiptajöfur afmælisgjöf frá
bróður sínum sem hann seint gleymir. Ekki fékk
The Game sömu frábæru viðtökurnar og Seven. Það
gerði heldur ekki næsta kvikmynd hans, Fight Club
(1999), sem fjallar um tvo menn og ástríðu þeirra
á hnefaleikakeppni með berum höndum. Viðtökur
gagnrýnenda áttu þó eftir að breytast og sumir þeirra
sem í fyrstu fundu allt að myndinni völdu hana sem
eina af bestu myndum ársins. Næst kom frá Fincher
hin ágæta sakamálamynd Panic Room (2002) og
síðan líða fimm ár þar til Zodiac er frumsýnd.
Miðað við afköst Fincher er stutt í næstu mynd
hans, The Curious Case of Benjamin Button, sem gerð
er eftir smásögu F. Scott Fitsgerald. Í henni leika aðal-
hlutverkin Brad Pitt og Cate Blanchett og er það í
þriðja sinn sem Brad Pitt leikur undir stjórn Fincher,
en tvö af bestu hlutverkum, sem Pitt hefur tekist á
við, eru í Seven og Fight Club.
Zodiac var frumsýnd í Bandaríkjunum í byrjun
mars og fékk yfirleitt góðar viðtökur hjá gagnrýn-
endum. Hér á landi verður Zodiac frumsýnd 20.
apríl.
BÍÓMOLAR
Pompeii
Undirbúningur er hafinn að gerð
dýrustu kvikmyndar sem tekin hefur
verið í Evrópu. Um er að ræða
kvikmyndagerð eftir skáldsögunni
Pompeii eftir Robert Harris, en
sagan hefur verið á metsölulistum
um heim allan og hlotið góða
dóma. Áætlaður kostnaður er 100
milljónir sterlingspunda eða um 1,4
milljarðar íslenskra króna. Í sög-
unni segir frá endalokum Pompeii
þegar Vesúvíus gaus árið 79.
Aðalpersónan er Marcus Attilus
Primus, sem er nokkurskonar
vatnsveituverkfræðingur í Pompeii.
Roman Polanski mun leikstýra
myndinni og hefur fengið Robert
Harris til að skrifa handritið. Harris
segir að frá því bókin kom út
fyrir þremur árum hafi Hollywood
verið að keppast við að kaupa
kvikmyndaréttinn, en það var ekki
fyrr en hann hitti Polanski í París
og heyrði hugmyndir hans að hann
fékk áhuga á að láta kvikmynda
söguna. Hvað varðar leikara til að
leika Primus þá er allt óráðið í þeim
efnum en Harris segir að Polanski
hafi mikinn hug á að fá Russell
Crove í hlutverkið.
Roman Polanski við tökur á óskars-
verðlaunamyndinni The Pianist.
Sólskin
Fyrir nokkrum árum leikstýrði
Danny Boyle (Trainspotting, The
Beach) framtíðarmyndinni 28 Days
Later sem fékk mjög góða dóma.
Í Sunshine er Boyle aftur í framtíð-
inni. Gerist myndin eftir fimmtíu ár,
sólin er að brenna upp og mann-
kynið að eyðast. Síðasta vonin er
geimskip með átta manna áhöfn
og tæki sem getur hugsanlega
blásið nýju lífi í sólina. Fer geim-
skipið í kjölfar geimfars sem hvarf
sjö árum fyrr. Á miðri leið taka
óhöpp og mistök að gerast og brátt
er áhöfnin farin að berjast fyrir lífi
sínu og um leið að reyna að halda
sönsum. Í aðalhlutverkum eru Chris
Evans, Cillian Murphy, Rose Byrne
og Michelle Yeoh.
Þess má svo geta að væntanleg er
í bíó framhald myndarinnar 28 Days
Later, sem heitir 28 Weeks Later.
Danny Boyle er einn framleiðenda
en leikstjórn er í höndum spænska
leikstjórans Juan Carlos Fresnadillo.
Dularfullir atburðir gerast um borð í
geimfari, sem er á leið til Sólarinnar.
Hvað gerðist?
Í byrjun mánaðarins hófust tökur á
What Just Happened? með Robert
De Niro í aðalhlutverki. Handritið
skrifar Art Linson, sem er þekktur
kvikmyndaframleiðandi. Byggir
hann handritið á eigin reynslu
sem framleiðandi í Hollywood og
dvelur sérstaklega við tvær vikur
þegar hann var að reyna að koma
kvikmynd í framleiðslu. Leikstjóri er
Barry Levinson. Mótleikarar De Niro
eru Stanley Tucci og John Turturro.
Einnig koma fram í myndinni Bruce
Willis og Sean Penn sem leika
sjálfa sig. Næsta kvikmynd þar
sem við munum sjá Robert De Niro
er Stardust. Sú mynd er stjörnum
hlaðin og meðal leikara eru Claire
Danes, Michelle Pfeiffer, Sienna
Miller, Ricky Gervais, Peter O´Toole,
Rupert Everett og Ian McKellan.
Eitt af bréfunum sem Zodiac sendi til San Francisco
Chronicle.