Frjáls verslun - 01.09.2008, Síða 44
44 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
Er fall krónunnar og hlutabréfa að und-
anförnu versta krísa sem þú hefur upp-
lifað sem stjórnandi?
Þetta er vissulega mikil áskorun, enda fylgir
því mikil ábyrgð að stýra fé annarra. En
þrátt fyrir aðstæður þá hafa viðskiptavinir
Auðar notið góðrar og öruggrar ávöxtunar og
okkur tekist að forða þeim frá því að tapa fé
í þeim hremmingum sem nú ganga yfir.
Hvaða lærdóm getum við dregið af
þessari krísu?
Við þurfum nýjar áherslur í fjármálaþjónustu.
Það hefur verið lögð allt of mikil áhersla á
áhættusækni og skammtímagróða. Ég tel
að þær áherslur sem Auður capital hefur
haft að leiðarljósi séu það sem koma skal,
þ.e.a.s. óhað fjárfestingaráðgjöf, aukin
áhættumeðvitund, víðari skilgreining á
arðsemi og mannlegri nálgun í fjármálaþjón-
ustu.
Hvað hefur staðið upp úr hjá fyrirtæki
þínu á árinu?
Þrátt fyrir einstaklega erfitt árferði þá lok-
uðum við fagfjárfestasjóði að upphæð 3,2
milljarðar á árinu, fengum starfsleyfi og
höfum byggt upp árangursríka eignastýr-
ingu. Síðast en ekki síst verður það að
teljast afrek í þessu árferði að reksturinn sé
að skila hagnaði.
Telur þú að krónan sé búin að vera
sem gjaldmiðill Íslendinga?
Já, ef stjórnvöld taka ekki af skarið þá munu
fyrirtækin og fólkið í landinu sjálf skipta um
mynt.
Ert þú hlynnt(ur) því að Ísland gangi í
Evrópusambandið ef það er eina leiðin
til að taka upp evru?
Aðild að Evrópusambandinu er forsenda
þess að taka upp evru og þess vegna er ég
fylgjandi því.
Hefur þú trú á að hin alþjóðlega láns-
fjárkreppa leysist á næstu mánuðum?
Nei, ég tel að við eigum töluvert eftir áður
en við sjáum viðsnúning í því erfiða ástandi
sem nú ríkir.
Ef þú ættir að gefa Geir H. Haarde for-
sætisráðherra eitt gott ráð, hvaða ráð
yrði það?
Leitaðu ráða og aðstoðar hjá þeim sem hafa
horfst í augu við sambærilega hluti áður, t.d.
hjá Noregi og Svíþjóð.
KRISTÍN pÉTuRSdóTTIR, FORSTJóRI AuðAR cApITAL:
Þurfum nýjar áherslur
í fjármálaþjónustu
„Aðild að Evrópu-
sambandinu er forsenda þess
að taka upp evru og þess
vegna er ég fylgjandi því.“
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital.
FV0808X.indd 44 10/28/08 2:27:42 PM