Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 112
KYNNING112 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
F
lugstöðvarbyggingin hefur gengið í gegnum
gífurlegar breytingar á tiltölulega stuttum
tíma. Auk þess sem hún hefur verið stækkuð
um 2200 fermetra hefur öll norðurbyggingin,
sem opnuð var 1987, verið endurgerð og nú er aðeins
eftir tollleitarsvæðið, sem verður vonandi farið í að
endurgera síðar í vetur. Það sem er mest áberandi við
stækkunina er innritunarsalurinn sem hefur gjörbreyst
og er aðstaðan þar orðin
mun betri en áður. Vopna-
leitarsvæðið var stækkað til
muna þegar auknar örygg-
iskröfur og mikil fjölgun
farþega kölluðu á slíkt og
eftir að skrifstofur voru
komnar í nýtt húsnæði á
þriðju hæð er nýtingin á því
svæði þar sem eru verslanir
og veitingaaðstaða orðin
mun betri.“
Afslappað umhverfi
Elín segir rekstur flugstöðvarinnar hafa breyst mikið.
Markmiðið sé samt sem fyrr að þjónusta þá farþega sem
koma í flugstöðina, greiða götu þeirra á sem bestan hátt
og koma til móts við þarfir þeirra.
„Hvað vill farþeginn þegar hann kemur í flugstöð,
jú hann vill góða þjónustu í innritun og leit, vill fá val
um hvað hann getur verslað og val um veitingar og það
er okkar að koma til móts við þarfir hans svo að hann
geti átt afslappaða og þægilega stund. Áður fyrr voru
rekstraraðilar fimm en nú erum við komin með fjórtán
rekstaraðila, bæði á sviði verslunar og veitingaþjónustu.
Þá höfum við verið að setja inn afþreyingu fyrir börn,
þjónustu fyrir fatlaða, tengingu við Internetið og list og
hönnun til að lífga upp á viðveruna því það er kannski
ekki það skemmtilegasta að gera ekkert annað að bíða.
Þá má ekki gleyma að margir eru stressaðir við að fara
upp í flugvél og er reynt að hafa andrúmsloftið gott
og bygginguna þannig að auðvelt sé að rata um hana.
Margir kannast við það í erlendum flugstöðum að finna
ekki hliðið sem á að fara í gegnum, slíkt eykur á stressið
og það erum við að forðast.“
Í hópi bestu flugstöðva
Mikil vinna var lögð í að ákveða hvers konar verslanir
og veitingastaðir skyldu vera í flugstöðinni og fór fram
forval 2004, þar sem auglýst var eftir aðilum sem hefðu
um Flugstöð leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli fer mestallt farþegaflug til og frá landinu. Vegna
stöðu Íslands er flugvöllurinn opinn allan sólarhringinn. Flugstöð leifs Eiríkssonar leggur áherslu
á að þar þrífist fjölbreytt verslun og þjónustustarfsemi sem taki mið af hinu sérstaka umhverfi.
megináhersla er á hátt þjónustustig með hraðri afgreiðslu vegna hins skamma tíma sem farþegar
dvelja í stöðinni. Hluti af sérstöðu viðskiptaumhverfisins er sveigjanlegur afgreiðslutími, allt eftir því
hvenær farþegar eru á ferð um flugstöðina. lögð er rík áhersla á að verslunar- og þjónustustarfsemi
sé opin þegar farþegar eru á ferð um flugstöðina, en það getur verið á ólíkum tímum eftir svæðum
og árstíðum. Elín árnadóttir er forstjóri Flugstöðvarinnar.
Börnin hafa sitt afdrep
í Flugstöðinni.
Markmiðið er góð
þjónusta og að koma til
móts við þarfir farþega
FV0808.ok.indd 112 10/29/08 11:58:15 AM