Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 115
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 115
sem hann hefur lært af og vinna við hlið
hans. Hann er sagður hrósa sínu fólki
mikið fyrir vel unnin störf. Einn vett-
vangur fyrir hrósið sem hann nýtir sér
óspart eru ársskýrslur og árlegur hluthafa-
fundur Berkshire Hathaway. Í ársskýrsl-
unni auglýsir Buffett jafnan eftir álitlegum
fjárfestingakostum en þær auglýsingar hafa
oftar en ekki skilað góðum árangri.
Maðurinn Buffett
Það er augljóst af lestri bókarinnar að Buf-
fett sjálfur hefur mikinn aga og gildi hans
eru sterk. Hann fyrirlítur hvers kyns bruðl
og óhóf og tiltekur þá sérstaklega fégræðgi
og kaupréttarsamninga stjórnenda stór-
fyrirtækja. Hann sjálfur hefur ekki kaup-
réttarsamninga og skammtar sjálfum sér
enn um 100 þúsund dollara í árslaun sem
jafngildir um 12 milljónum króna. Gildi
Buffetts um heiðarleika og einfaldleika
skína í gegnum allt það sem hann tekur
sér fyrir hendur. Hann krefur stjórnendur
sína um hið sama og segir sjálfur: „Þegar
að mati á einstaklingum kemur skal leitað
eftir þremur kostum: Heiðarleika, gáfum
og krafti. Ef þann fyrsta vantar munu hinir
tveir ganga af þér dauðum.“ Heiðarleikinn
og einfaldleikinn þarf líka að koma fram í
rekstri fyrirtækjanna og Buffett fyrirlítur
hvers kyns bókhaldsbrögð og -brellur.
Krafa hans um siðferði stjórnenda er
óhagganleg og án efa eitt af því sem skýrir
árangur hans í fjárfestingum. Buffett hefur
gjarnan verið kallaður Spámaðurinn frá
Omaha en árangur hans hefur ekkert með
spámennsku að gera heldur aga, visku og
heiðarleika.
Fyrir hverja
Bókin um Warren Buffett aðferðina er
fyrir alla sem vilja læra af ríkasta manni
veraldar. Til að ná árangri er góð leið að
læra af þeim sem náð hafa meiri árangri
en maður sjálfur. Buffett er klárlega einn
af þeim sem læra má af, ekki bara fjárfest-
ingum hans heldur ekki síst stjórnand-
anum og manninum Buffett. Bókin er
bæði fyrir vana og óvana fjárfesta, þá sem
stunda einfaldar fjárfestingar og flóknar
fjárfestingar. Allir geta lært af Buffett.
Því ber sérstaklega að fagna að bókin hafi
verið þýdd á íslensku. Allt of lítið er um
þýðingar á vönduðum viðskiptabókum
og veit þessi vonandi á fleiri í framtíð-
inni.
Velgengni hefur ekkert með
greindarvísitölu að gera, svo
framarlega sem fólk býr yfir
meðalgreind. Þá þarf bara að
sýna sterka skapgerð og stillingu
til að stjórna þeim hvötum sem
koma öðru fólki í ógöngur hvað
fjárfestingar þeirra varðar.
- Warren Buffett, 1999
Er fyrirtækið einfalt og skiljan- •
legt?
Á fyrirtækið samfellda rekstr-•
arsögu?
Hefur fyrirtækið hagstæðar fram-•
tíðarhorfur?
Skoðun á stjórnendum.•
Er stjórnunin rökvís?•
Eru stjórnendurnir hreinskilnir við •
hluthafa?
Spyrna stjórnendur við stofn-•
anaþróun fyrirtækisins?
Skoðun á fjármálum•
Hver er arðsemi eigin fjár?•
Hverjar eru „tekjur eigenda“ •
(owners earnings) fyrirtækisins?
Hvert er hagnaðarhlutfallið?•
Hefur fyrirtækið búið til í það •
minnsta kosti einn dollar fyrir
hvern dollar sem haldið er eftir
innan fyrirtækisins?
Skoðun á virði.•
Hvert er virði fyrirtækisins?•
Er hægt að kaupa það með •
umtalsverðum afslætti af virði
þess?
B æ k u r
Warren Buffett aðferðin
Skoðun á fyrirtæki
Warren Buffett.
FV0808X.indd 115 10/28/08 2:49:07 PM