Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 132
132 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
Kvikmyndir
Í W ætlar Oliver Stone að segja okkur hvernig drykk-
felldur ónytjungur, George W. Bush, fór að því að
verða valdamesti maðurinn í heiminum og hvernig
honum hefur farnast í forsetaembætti í átta ár.
Stiklur
í lífi forseta
TExTI:
hilmar Karlsson
e
f nýjasta kvikmynd Olivers Stones, W, fær slæma dóma þegar
hún verður frumsýnd vestan hafs 17. október þá er víst að hún
fær ekki jafnslæma dóma og George W. Bush þegar gert verður
upp átta ára tímabil hans sem forseti Bandaríkjanna. Það ætti
samt engum að koma óvart að mikið moldviðri hefur orðið í kringum
kvikmynd Stones, sem heitir einfaldlega W. Öll stóru fyrirtækin í
Hollywood neituðu að koma nálægt henni og er W gerð að miklu
leyti með erlendu fjármagni. Skiljanlega eru hörðustu repúblikanar
brjálaðir yfir gerð myndarinnar og demókratar hrifnir, ekki síst vegna
þess að myndin verður frumsýnd þremur vikum áður en forsetakosn-
ingar fara fram í Bandaríkjunum. Þar eru repúblikanar í varnarstöðu
og frambjóðandi þeirra John McCain minnist varla á Bush.
Oliver Stone, sem er demókrati og yfirlýstur andstæðingur veru
Bandaríkjanna í Írak, er þó ekki á því að viðurkenna að hann hafi lagt
upp með gerð W vegna þess að honum sé illa við Bush og segist vera
að gera heiðarlega kvikmynd um forsetann. Ekki taka allir undir þessa
staðhæfingu, minnugir þess að Stone hefur gert tvær aðrar kvikmyndir
um forseta Bandaríkjanna, JFK og Nixon, þar sem hann fór frjálslega
með staðreyndir. Einn blaðamaður orðaði það svo að þegar Stone tali
um að vera heiðarlegur gagnvart Bush þá sé það eins trúverðugt og ef
Donald Trump segðist ætla að vera hæverskur og auðmjúkur.
Leiðir Bush og Stones lágu saman á háskólaárunum án þess að þó
að hvor vissi af hinum, en þeir eru jafngamlir og stunduðu báðir nám
í Yale. Stone hætti og tók þátt í Víetnamstríðinu og reynsla hans þar
hjálpaði honum við gerð tveggja óskarsverðlaunamynda, Platoon og
Born on the Fourth of July. Bush gat komist undan Víetnamstríðinu og
lauk herþjónustu sinni sem þjóðvarðliði á heimaslóðum í Texas.
Þrír kaflar í ævi Bush
„Staðreyndirnar tala sínu máli,“ segir Stone. „Í skóla var George W.
Bush drykkfelldur aumingi sem enginn tók mark á, var tekinn ölv-
aður undir stýri, kom sér undan herþjónustu í Víetnamstríðinu, átti í
miklum útistöðum við föður sinn, náði síðan að hætta að drekka og
koma undir sig fótunum með aðstoð trúarinnar og trúir því statt og
stöðugt að guð persónulega hafi valið hann í embætti forseta Banda-
ríkjanna og leiðbeint honum þegar innrásin var gerð í Írak.“
Eftir að hafa horft á tvö sýnishorn úr W er ljóst að Oliver Stone
er ekki að verja Bush og gerðir hans. Í upphafi annars sýnishornsins
sjáum við Bush, blindfullan með mikil læti uppi á barborði og akandi
drukkinn. Í bakgrunninum er rödd Bush eldri: „Ef ég man rétt þá
varstu ekki hrifinn af vinnu í íþróttaverslun, ekki heldur í trygg-
ingabransanum og því síður í olíubransanum. Og „junior“, ekki er
hægt að segja að þú hafir yfirgefið þjóðvarðliðið með sæmd.“ Síðan
er skipt yfir á gamla manninn þar sem hann þrumar yfir syninum:
„Í hverju ertu góður; eltandi stelpur, vera í drykkjuveislum, akandi
fullur? Hvað heldur þú að þú sért, Kennedy? Þú ert Bush og farðu að
haga þér eins og Bush.“ Ekki beint hrifning á syninum og því síður
á Kennedy-ættinni.
Oliver Stone segir W vera í þremur hlutum þótt farið sé fram og
aftur í tíma. Það eru skólaárin og drykkjutímabilið, árin sem hann
nær sér á strik og gerist trúaður og árin í Hvíta húsinu, en bak-
grunnurinn er samskipti hans og föður hans. Þeir gátu ekki hist án
þess að fara að rífast. Þetta breytist þegar sonurinn hættir að drekka
og Bush eldri verður forseti.
Ef við erum að fylgjast með Bush í baráttu við sjálfan sig og fyrir
viðurkenningu föður síns í fyrri hluta myndarinnar, þá er allt annað
upp á teningnum þegar kemur að árunum í Hvíta húsinu. Þá fyrst fer
að færast fjör í leikinn og verður spennandi að sjá hvernig Stone tekur
á málunum þar. Ekki skortir fræg nöfn og fá margir þekktir leikarar
að spreyta sig á persónum sem við lesum um daglega.
Stone vel undirbúinn
Gerð W gekk mjög fljótt fyrir sig. Oliver Stone vann ásamt handrits-
höfundinum Stanley Weiser, sem samdi handritið að Wall Street með
Stone, að handritinu í nokkurn tíma. Stone hafði þó áður en kom að
W ætlað að gera enn eina kvikmynd úr Vietnamstríðinu, Pinkville,
Eitt af plakötunum sem notað verður við að auglýsa W.
FV0808X.indd 132 10/28/08 2:51:29 PM