Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 138
138 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8
Þ
að hefur verið undarleg tilfinning að sjá öll
blöð hér full af greinum um Ísland og heyra
landið rætt í öllum ljósvakamiðlunum dag
eftir dag hér í Bretlandi. Ímynd Íslands er
að verða hinn „eldfimi íslenski kokteill“. Og
„eldfimi íslenski kokteillinn“ er á góðri leið
með að verða alþjóðleg viðmiðun um það hvernig eigi ekki
að gera hlutina. Reiðin hér í Bretlandi í garð Íslendinga er
mikil og íslenskt viðskiptalíf er rúið trausti og það verður
langt og strangt verk að fríska upp á ímyndina.
Það var undarlegt að opna Financial Times fyrstu tvær
vikurnar í okótber og rekast á hverjum einasta degi á allt
að fimm greinar þar sem annaðhvort var verið að gera
íslenskum málefnum skil eða að Ísland var tekið með í
almenna umfjöllun um kreppuþróunina.
Þegar fréttin um neyðarlögin á Íslandi og eignarnám
ríkisins á Landsbankanum og Glitni magnaðist athyglin
um allan helming því Icesave-reikningarnir urðu aðal-
fréttaefnið.
Við þetta breiddist umfjöllunin um Ísland frá við-
skiptasíðum yfir á almennar fréttasíður og forsíðurnar. Ein
BBC-útvarpsrásin, 5 live, er byggð á spjallþáttum þar sem
fólk getur hringt inn. Á þeirri rás voru Icesave-reikning-
arnir teknir fyrir og fólk var endalaust að hringja inn. Sama
var á öðrum ljósvakamiðlum, bæði sjónvarpi og útvarpi, að
ógleymdum blöðunum. Allt snerist um Icesave.
En þá var komið að þætti Gordons Brown, forsæt-
isráðherra Bretlands, og Alistairs Darling, fjármálaráðherra
Bretlands. Við erum að ræða um þriðjudaginn 7. október.
Þann dag ræddi Árni Mathiesen fjármálaráðherra við hinn
enska starfsbróður sinn, Alistair Darling – og um kvöldið
var viðtal í Kastljósi við Davíð Oddsson seðlabankastjóra
þar sem hann lýsti því yfir að íslenska þjóðin, almenn-
ingur á Íslandi, myndi ekki greiða upp og ábyrgjast erlend
lán sem bankar á Íslandi og auðmenn hefðu tekið og ættu
sjálfir að greiða til baka.
Davíð nefndi aldrei einu nafni skuldbindingar við
erlenda sparifjáreigendur en ræddi um erlend lán. En
ummæli hans virtust túlkuð af erlendum blaðamönnum
þannig að Íslendingar ætluðu ekki að standa við skuldbind-
ingar við erlenda sparifjáreigendur.
Sprengja sprakk síðan miðvikudagsmorguninn 8. októ-
ber. Þá létu Gordon Brown og Alistair Darling til skarar
skríða. Tilkynnt var að breska stjórnin hygðist stefna
BRESKA UMFJöLLUNIN UM ÍSLENSKU BANKAKREPPUNA:
Gordon Brown hefur farið hamförum gegn Íslendingum. En það er sama hvort
mönnum finnst það réttlátt eða ranglátt, íslenskt viðskiptalíf stendur eftir rúið
trausti hér í London – og það verður erfitt verk að fríska upp á þá ímynd.
eldFim
ímynd íslands
TExTI: sigrún davíðsdóttir
p i S t i L L S i g R ú n A R
FV0808X.indd 138 10/28/08 2:52:20 PM