Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 145

Frjáls verslun - 01.09.2008, Page 145
Fólk F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 8 145 marinus ehf. er markaðs- og aðflutn-ingsfyrirtæki og er hluti af Ice-landic Group. Marinus ber meðal annars ábyrgð á öflun aðfanga fyrir Japans- skrifstofu Icelandic og er einnig í miklum viðskiptum við Kína og önnur lönd í Aust- urlöndum fjær. Framkvæmdastjóri Mar- inus er Jónas Engilbertsson: „Undirstaðan í starfsemi fyrirtækisins er í Japan þar sem við seljum afurðir sem koma frá Íslandi, Kanada og Rússlandi. Í Japan starfa tólf manns á skrifstofu okkar og þar af er einn Íslendingur, Kári Sturlaugsson.“ Jónas, sem nýtekinn er við starfi fram- kvæmdastjóra Marinus, hefur unnið hjá Icelandic Group í níu ár, var bæði í Úganda og Þýskalandi á vegum fyrirtæk- isins áður en hann hóf störf hjá Marinusi, fyrst sem sölustjóri. „Starfið er þannig vaxið að við þurfum að vera í góðum sam- böndum við birgja okkar og er því nokkuð um ferðalög. Ætli ég fari ekki til dæmis að meðaltali fimm til sex sinnum á ári til Asíu, en þar skiptir sérlega miklu máli að vera í góðu sambandi við viðskiptavini okkar. Í þeirri stöðu sem nú er komin upp i efnahags- málum okkar mun reyna enn meira á góð viðskiptasambönd. “ Jónas bjó sem barn og unglingur mikið erlendis og gekk þar í skóla. „En ég lauk þó stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á Akra- nesi og síðan stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Meðfram námi var ég mikið á sjó. Nú er ég í MBA-námi við Háskóla Reykja- víkur, en verð því miður að fresta því námi núna þegar ég hef tekið við nýrri stöðu.“ Eiginkona Jónasar er Lilja Benónýsdóttir og eiga þau þrjú börn. „Lilja er kennari og er í framhaldsnámi við Kennaraháskóla Íslands. Það er því nóg um að vera á heim- ilinu. Það er ekki mikill tími fyrir áhugamál, en ég hef mikinn áhuga á stjórnmálum og reyni að fylgast eins vel með á þeim vettvangi eins og kostur er. Fótboltinn er einnig áhugamál og ég er sjálfsagt einn af fáum Skagamönnum sem ekki hafa stundað fótbolta en hef þeim mun meiri ánægju af að fylgjast með honum. Þegar ég bjó í Þýsklandi var ég mikill stuðn- ingsmaður Hamburger Sportverein og fylgist vel með gengi þess, sem er gott um þessar mundir.“ Hvað varðar ferðalög fjölskyldunnar þá segir Jónas þau mikið tengjast því að hitta ættingja á erlendri grund: „Margir mínir nánustu búa í útlöndum, meðal annars búa foreldrar mínir núna í Sierra Leone í Vestur- Afríku og reynum við að hittast þar sem því verður við komið.“ Jónas Engilbertsson: „Ætli ég fari ekki að meðaltali fimm til sex sinnum á ári til Asíu, en þar skiptir sérlega miklu máli að vera í góðu sambandi við við- skiptavini okkar.“ framkvæmdastjóri Marinus ehf. Jónas enGilbertsson Nafn: Jónas Engilbertsson Fæðingarstaður: Kaupmannahöfn, 31. október 1973 Foreldrar: Ingunn Anna Jónasdóttir og Engilbert Guðmundsson Maki: Lilja Benónýsdóttir Börn: Vaka Lind, 13 ára, Kári,7 ára, Pálmi, 3 ára Menntun: Stjórnmálafræðingur frá HÍ. Er í MBA-námi við HR FV0808X.indd 145 10/28/08 2:53:28 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.