Frjáls verslun - 01.10.2009, Page 15
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 15
T ö LV u p ó S T u R I N N
Svar:
„Þegar á móti blæs gildir að halda ró sinni
og huga að áfangastað, enda ber „hugurinn
þig hálfa leið“ var mér oft sagt í æsku. Ef
við horfum til forgöngumanna liðinna
kynslóða, s.s. Abrahams Lincoln, þá er
ljóst að þrautseigja og æðruleysi eru besta
veganesti á vandrötuðum vegi. Lincoln
lenti í hverju áfallinu á fætur öðru áður en
hans var minnst á fimm dollara seðli fyrir
afrek sín í borgarastyrjöldinni og fyrir fram-
lag hans til að enda þrælahald í landi hinna frjálsu. Leið hans var
mörkuð af ástarsorg, missi, pólitískum ósigrum og gjaldþrotum –
en uppgjöf var aldrei í boði og hann einbeitti sér að viðfangsefnum
sínum af einstökum vilja og virðingu.
Leið okkar Íslendinga er vörðuð af sömu eiginleikum – dugn-
aði og vinnusemi, festu og heiðarleika, og allra gullnu ráðanna sem
við finnum í Hávamálum. Einnig er gott að hafa hugfast nokkrar
lexíur fræðimanna um árangur. Að sögn meistara, eins og Collins og
Coveys, skiptir viðhorf okkar til viðfangsefnisins höfuðmáli – að sjá
tækifærin í kreppunni, að sjá möguleikana í því ómögulega.
Ábyrgð okkar, kraftur og virkni er forsenda allra framfara.
Fagmennska og skýr framtíðarsýn munu ávallt þjóna langtíma-
árangri.
Kjarkurinn til að skilja kjarnann frá hisminu og getan til að ein-
beita okkur að mikilvægustu verkefnum dagsins gerir okkur kleift
að nýta tímann vel og forgangsraða í takt við setta stefnu.
Að koma auga á sameiginlega hagsmuni þeirra sem deila eða
þeirra sem semja er leiðin að sigri beggja. Slíkt „win-win“ hugarfar
er lykilatriði í öllum samningaviðræðum.
Skilvirk hlustun er leiðin að skilningi, hún er forsenda þess að
vinna með fólki á grunni gagnkvæmrar virðingar.
Að sammælast um að leita að bestu leiðum og að beita sköpunar-
gleði við úrlausn viðfangsefna, málamiðlun þjónar ekki tilgangi – er
önnur leið en „mín leið“ eða „þín leið“.
Að lokum ber að hlúa að sjálfum sér og standa vörð um lík-
amlega, andlega og félagslega vellíðan þína og annarra.
Guðríður Þorbjarnardóttir sigldi með föruneyti sínu til Vínlands
löngu áður en Covey skrifaði sína metsölubók. Leiðangrar Guðríðar
einkenndust af svipuðum gildum og lífssýn og nútímahöfundar rita
um. Erfiðleikar hennar, ástvinamissir, áskoranir á láði og legi, og
menningarárekstrar drógu ekki úr forvitni hennar eða lífsgleði og
stöðugri leit að nýrri upplifun og fróðleik. Ferðir Guðríðar frá Snæ-
fellsnesi til Grænlands, til Hóp við Hudson Bay, aftur til Íslands og
þaðan fótgangandi á fund páfa í Rómarborg einkenndust af dugn-
aði og krafti og ferskri sókn eftir nýjum sannleika. Sóknin endaði í
Skagafirði þar sem hún miðlaði komandi kynslóðum af sýn sinni.
Þegar á móti blæs gilda sömu viðhorf og hafa þjónað okkar for-
göngumönnum – dugnaður í bland við auðmýkt, skýr sýn, næmt
auga fyrir sameiginlegum hag og kjarkurinn til að ná settum mark-
miðum. Vinir okkar við MIT-háskólann hafa sett þetta fram með
sýnum hætti: 1) Staldraðu við og skildu nýjar aðstæður (Make sense
of the new world) og náðu til allra hagsmunaaðila með þessum
skilningi. 2) Miðlaðu stöðugt (Communicate constantly) vertu sýni-
legur, segðu sannleikann, segðu bæði það sem þú veist – og veist
ekki. Og segðu það aftur og aftur. 3) Skapaðu heillandi sýn (Create
a compelling vision) og byggðu framtíð okkar á tærum gildum og
sýn og tilgangi.“
Til: Guðrúnar Högnadóttur,
framkvæmdastjóra Opna Háskólans:
Efni:
Þú varst nýlega með námskeiðið Að laða fram það besta í lífsins ólgusjó. Þar kynntir
þú aðferðafræði „coaching“, þjálfun. Hver er galdurinn við að laða fram það besta?
Laða fram það besta
TöLVupóSTuRINN