Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
krónan
skellti
mcdonald’s
það varð hamborgarafár þegar sagt var frá því að fyrirtækið lyst
hefði sagt upp samningi við mcdonald’s vegna falls krónunnar.
En hvernig er staðan hjá öðrum helstu „franchise“ fyrirtækjunum
á skyndibitamarkaðnum, eins og Pizza Hut, subway, dominos,
kentucky Fried Chicken, taco bell, Quiznos og fleirum?
skyndibitamarkaðurinn:
tExti: vilmundur hansEn ● myndir: gEir ólaFsson
hvað með hina „franchise“ staðina á skyndi-bitamarkaðnum? Staði eins og Pizza Hut, Subway, Dominos, Kentucky Fried Chicken, Taco Bell og Quiznos? Þannig
spurðu margir þegar sagt var frá því að McDonald’s
væri að hætta á Íslandi vegna þess að leyfishafinn,
Lyst hf., gafst upp á samstarfinu við keðjuna úti
vegna falls krónunnar. Eigandinn skipti um nafn á
stöðunum; Metró varð fyrir valinu.
En hvað gerðist hjá Lyst? Hráefnisverðið
rúmlega tvöfaldast í verði eftir bankahrunið en
Lyst hefur undanfarin ár orðið að flytja inn allt
hráefni í borgarana að kröfu McDonald’s; eins og
kjöt, ost, grænmeti og brauð. Núna er allt hráefnið
í borgarana ættað frá Íslandi.
Fréttin um McDonald’s væri að loka á Íslandi
fór sem eldur í sinu hjá erlendum fréttastofum
sem lögðu út af þessu á þann veg að meira að segja
McDonald’s hefði gefist upp á Íslandi. Ja, hver
fjárinn, nú var það orðið svart á Íslandi því enginn
staður í veröldinni er svo aumur að bjóða ekki upp
á Makk.
Það greip um sig hamborgarafár eftir fréttina og
svo mikið var að gera á McDonald’s síðustu dagana
að næstum eitt hundrað þúsund hamborgarar
seldust síðustu vikuna fyrir lokun.
En hvað er sérleyfi eða „franchise“ eins og Lyst var
með frá McDonald’s? Með sérleyfi eða „franchise“
fær sérleyfistaki leyfi til að reka fyrirtæki samkvæmt
uppskrift að viðskiptahugmynd sem þegar hefur
fengist reynsla af og sannað gildi sitt. Kúnninn á að
geta gengið að bragðinu og gæðunum vísu; bitinn á
að bragðast nákvæmlega eins úti um allan heim.
Þau er nokkur fyrirtækin á skyndibitamarkaðnum
sem eru með „franchise“ eða þessa tegund sérleyfis.
Fjöldi slíkra fyrirtækja hérlendis hefur aukist mikið
undanfarin ár, sérstaklega í veitingarekstri, og
gróflega áætlað má reikna með að heildarvelta
þeirra sé 5,5 til 6 milljarðar króna á ári.
Meðal þessara staða eru Pizza Hut, Subway,
Dominos, Kentucky Fried Chicken, Taco Bell,
Quiznos og fleiri. Fall krónunnar hefur gert sumum
þessara fyrirtækja erfitt fyrir, sérstaklega þeim sem
flytja inn mikið af hráefni. Skýrasta dæmið er
auðvitað fyrirtækið Lyst sem sá sig knúið að hætta
með McDonalds. Það hætti starfsemi vegna þess að
erlenda keðjan var með ófrávíkjanlegar kröfur um
að allt hráefni væri innflutt.