Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
Fólk
Íris Hera Norðfjörð.
„Ég held að ég sé fædd
með þeim ósköpum að
þurfa alltaf að búa til
hollan og góðan mat.“
Íris Hera Norðfjörð
veitingamaður á Kryddlegnum hjörtum
Kryddlegin hjörtu er við Skúlagötu, með útsýni yfir Esjuna og fjallahring-inn í norðri. Veitingastaðurinn sér-
hæfir sig í heilsusamlegum og næringarríkum
súpum, heimabökuðum brauðum og fjöl-
breyttum salatbar. Daglega eru fjórar gerðir
af súpum í boði. Á Kryddlegnum hjörtum
ræður ríkjum Íris Hera Norðfjörð: „Þetta er
heilsustaður fyrir alla. Ég hef átt mér þann
draum að opna slíkan stað eftir að ég tók mat-
aræði mitt í gegn fyrir fimm árum. Þá fannst
mér hvergi vera staður þar sem ég gæti farið
út að borða með fólki sem hefði kannski ekki
sama smekk fyrir mat og ég, vildi fá kjötrétti
meðan ég var í allt öðru. Það var svo í fyrra
rétt fyrir hrunið, nánar tiltekið 29. ágúst, sem
ég opna staðinn í þessu líka fína húsnæði. Var
varla búin að opna þegar kreppan skall á og
satt best að segja fékk ég nánast áfall.“
Íris þurfti samt ekki lengi að vera með
hnút í maganum því fljótt spurðist út að
þarna væri veitingastaður með góðan og
hollan mat sem hentaði öllum. „Fyrstu níu
mánuðina var eingöngu um hádegisverð-
arstað að ræða. Þegar ég svo stóð í undirbún-
ingi fyrir næsta dag á kvöldin var alltaf að
koma fólk og banka og spyrja hvort ekki væri
opið og á endanum ákvað ég að opna einnig
á kvöldin. Nú er staðan þannig að yfirleitt
er alltaf fullt í hádeginu og smátt og smátt
er staðurinn að vinna sér sess í bæjarlífinu á
kvöldin. Þessi þróun hjá mér sýnir að þegar
boðið er upp á heilsusamlegan mat sem fer
vel í fólk, þá spyrst það út.“
Íris Hera hefur komið víða við í atvinnu-
lífinu. „Mín menntun er skóli lífsins, ég var
búin að eignast eldri dóttur mína 17 ára
gömul þannig að það var ekki mikill tími
til að mennta sig, en ég hef verið duglega að
sækja námskeið hér heima og erlendis sem
hafa nýst mér vel. Meðal annars starfaði ég
við stjörnuspeki í tólf ár og gaf út heilsurækt-
arblað, Heilsurækt og næring, um tíma ásamt
fyrrverandi eiginmanni mínum. Ég hef aldrei
lært neitt sérstaklega í matargerð en hef verið
að elda síðan ég var átján ára gömul. Ég held
að ég sé fædd með þeim ósköpum að þurfa
alltaf að búa til hollan og góðan mat.
Hvað varðar starf mitt hér, þá geri ég allt
sem þarf að gera og er búin að vera hér nán-
ast alla daga í rúmt ár í allt að 16 tíma á dag.
Nú er ég að flytja í nágrenni staðarins og það
auðveldar mér að hlaupa í vinnuna þegar allt
fyllist og ég farin úr vinnunni.“
Íris Hera er í sambúð með Hafþóri Gest-
syni nuddara sem kemur oft til aðstoðar á
Kryddlegnum hjörtum þegar mikið er um að
vera. Hún á tvær dætur, Dagbjörtu Norðfjörð
og Brynju Norðfjörð. Íris Hera sameinar
vinnu og áhugamál, en hún er einnig mikill
tónlistarunnandi. „Ég keypti græjur upp á
eina og hálfa milljón til að geta boðið tónlist-
armönnum að spila hjá mér og draumurinn
er að vera reglulega með blús- og djasskvöld.
Við höfum tvisvar haft blúskvöld og trommu-
kvöld þar sem allir voru velkomnir að koma
með slagverk. Andleg málefni hafa einnig átt
sterk ítök í mér og ég hef sótt mörg nám-
skeiðin í þeim efnum. Þetta er búið að vera
mikil og löng törn og hef ég ekkert farið í frí
en stefni á að komast í smáfrí til útlanda í
febrúar á næsta ári.“
Nafn: Íris Hera Norðfjörð.
Fæðingarstaður: Reykjavík
16. júlí 1958, ólst upp í
Mosfellsbæ.
Foreldrar: Jón Norðfjörð og
Svava Gunnarsdóttir.
Maki: Hafþór Gestsson.
Börn: Dagbjört, 33 ára og
Brynja, 23 ára.