Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 69
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 69
jólin koma
„Mér finnst mikilvægt að undir-
búa jólin vel svo ekki verði of
mikið stress þegar stóra stundin
gengur í garð,“ segir Bjarni
Gunnar Kristinsson, yfirmat-
reiðslumaður á Radisson Sögu.
„Hægt er að gera ýmislegt
kvöldið áður eða á aðfangadags-
morgun svo sem að skræla
kartöflur og skera grænmeti og
jafnvel er hægt að gera grunn
sósunnar sem bara á eftir
að smakka til. Það er hluti af
jólastemmningunni hjá mér að
geta haft aðeins rólegt á jól-
unum eftir jólavertíðina á veit-
ingahúsum.“
Bjarni bendir á að margt geti
farið úrskeiðis á jólunum og að
þá sé eins gott að hafa „plan
b“.
„Ein jólin átti ég von á allri
fjölskyldunni og hafði verið
að undirbúa. Við höfðum gert
upp eldhúsið nær ári áður og
fengið okkur fína gaseldavel svo
kokkurinn gæti aðeins motað
sig við eldamennskuna. En þá
kláraðist gasið rétt fyrir klukkan
sex og það slokknaði á allri
eldamennskunni. Sem betur fer
var hægt að grafa í snjóskafl
og finna smáleifar af gasi undir
útigrilli og fengu þá allir eitt-
hvað að borða og þurfti ekki að
„fresta“ jólunum það árið.“
Villisveppasúpa
(fyrir 10 manns)
Innihald:
2 stk. laukur
500 g kjörsveppir
100 g þurrkaðir villisveppir
100 ml portvín
20 ml madeira eða sérrý
1 l Kjúllasoð (vatn og kraftur)
1 l rjómi
100 ml þeyttur rjómi
1 búnt saxaður graslaukur
maizenamjöl eftir þörfum
kryddað með:
krafti eftir smekk
truffluolíu
salti og pipar
Aðferð:
Þurrkaðir sveppir lagðir í 1.
bleyti í heitt vatn og látnir
mýkjast vel í um ½ klst.
Svo eru þeir skolaðir í
2-3 skipti í miklu köldu
vatni þar til allur sandur og
steinar eru farnir úr.
Villisveppir, kjörsveppir og 2.
laukur er saxað fínt og
svissað í olíu á pönnu.
Víni bætt í og soðið um 3.
1/3 og svo er soði og
rjóma bætt í og látið sjóða
rólega í 1-2 klst.
Þykkt með maizenamjöli og 4.
kryddað með krafti, salti,
pipar og truffluolíu.
Borið fram með þeyttum 5.
rjóma og söxuðum gras-
lauk.
Exótískur ananas- og hun-
angs-dijongljáður hamborg-
arhryggur
(fyrir 6-8)
Hráefni:
1 hamborgarhryggur
Gljái:
2 msk engifer-appelsínu-
marmelaði
2 msk dijon-hunangssinnep
2 msk hrásykur (púður sykur)
1 tsk saxaður engifer
ferskur ananas
Hægt er að krydda hamborgar-
hrygg með því að bæta við
ferskum og framandi brögðum
án þess að brjóta fjölskyldu-
hefðirnar.
Aðferð:
Eldið hamborgarhrygginn eftir
leiðbeiningum framleiðenda.
Hagkaupshrygginn á t.d. að
setja beint í ofn en SS-hrygginn
er gott að láta í pott, láta
suðuna koma upp og leyfa
honum að liggja í soðinu.
Svo er hryggurinn gljáður
með exótíska gljáanum okkar
sem gott er að hræra saman
kvöldið áður.
Ananasinn er skorinn þunnt
og lagður ofan á hrygginn.
Ekki er ráðlagt að hækka hit-
ann í botn því þá brennur
hryggurinn, best er að setja
hann örstutt undir grill fyrir
framreiðslu.
Bjarni Gunnar Kristinsson. „Mér finnst mikilvægt að undirbúa jólin
vel svo ekki verði of mikið stress þegar stóra stundin gengur í garð.“
Gott að hafa „plan b“