Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
e n d u r m e n n t u n
Betra seint en aldrei
Davíð Pétur Steinsson, landfræðingur og verkefnisstjóri upplýsinga-
mála hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur, hóf nám í land-
fræði við Háskóla Íslands árið 2004 en þá var hann 35 ára. Fyrir
þann tíma hafði hann unnið margvísleg störf svo sem verkamanna-
störf, hann var sjómaður um tíma en um afleysingar var að ræða,
hann var í afgreiðslustörfum, vann við tölvugrafík og margmiðlun
og hann rak myndbandaleigu í sex ár. Þá vann hann á landupplýs-
ingadeild hjá Orkuveitu Reykjavíkur og síðar verkfræðideild með
háskólanáminu.
„Ég byrjaði í háskóla kannski 14 árum of seint en betra er seint
en aldrei og ég sé ekki eftir því í dag.“
Landfræðingurinn segist ekki hafa verið tilbúinn til að hefja
háskólanám um tvítugt. „Ég þekki sjálfan mig betur og veit hvað ég
vil læra. Ég fann mjög seint út hvað mig langaði til að læra og ég
vil helst vinna við eitthvað sem ég hef áhuga á næstu 30 árin. Það
var annaðhvort landfræði eða öldrunarsálfræði en þar sem svo
margir hafa lært sálfræði fannst mér landfræðin vera praktískari.“
Davíð hóf í haust meistaranám í upplýsingafræði við sama
háskóla en hann er jafnframt í fullri vinnu hjá borginni. „Það eru
ekki margar rannsóknir gerðar á Íslandi innan þess geira upplýs-
ingafræðinnar sem ég hef áhuga á, sem er Internetið, og hvernig
það tengist félagsfræði og landfræði.“
Davíð segir það hafa verið stórt stökk að hefja háskólanám
á sínum tíma. „Það tók eiginlega heilt ár að komast í gírinn – að
læra að læra aftur. Það var erfiðara heldur en þegar ég hóf meist-
aranámið því núna þekki ég hvernig vinna innan háskólans fer
fram. Fyrsta árið var ég meðal annars að kynnast fólki og
læra að vinna í hóp en í dag veit ég hvert hlutverk mitt innan
hópsins er og hvernig fólk getur unnið saman sem heild. Ég
hafði oft það hlutverk í hópavinnu að vera málamiðlari og fá
fólk til að vinna sem ein heild. Það tók tíma að koma sér í
gang. Þetta er vinna. Hörkuvinna. Spurningin var hvort maður
ætti að nenna þessu og eyða kvöldunum og helgunum í
þetta. Fróðleiksþorstinn er það sterkur að hann yfirvinnur
þetta. Stór hluti af þessu er að vera fyrirmynd 10 ára sonar
míns. Ég vil sýna honum að menntun borgi sig þegar upp
er staðið og lauma því inn í undirmeðvitundina á honum að
maður getur öðlast betra líf með því að vera vel upplýstur.“
Aðspurður hvað það gefi honum að vera í skóla segir
Davíð: „Það er örvandi og ég slekk fróðleiksþorsta með
því. Mig langar til að vita meira um Internetið, meðferð
upplýsinga og félagslega þáttinn tengdan því. Mér líður
betur að hafa náð helmingnum af því takmarki sem ég ætl-
aði að ná en það er að klára meistaranám í einhverju sem
ég hef áhuga á. Mér finnst ég vera að ganga inn á nýtt
svið og útvíkka þekkinguna. Ef fólk vill mennta sig meira
og er tilbúið að vinna þá vinnu sem þarf þá mæli ég hik-
laust með þessu. Þetta gefur mér mikið. Þetta víkkar sjón-
deildarhringinn.“
Aftur í skóla
Davíð Pétur Steinsson. „Ég þekki sjálfan mig betur og veit hvað ég vil læra. Ég fann mjög seint út hvað
mig langaði til að læra og ég vil helst vinna við eitthvað sem ég hef áhuga á næstu 30 árin.“