Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
n æ r m y n d
á píanó og hann leggur mikið upp úr því
að eiga góð hljómflutningstæki til að geta
heyrt dýptina í tónlistinni. Í stofunni er
hann með stúdíó-hátalara sem heita Genelec
og í vinnuherberginu eru hátalarar sem heita
B&W 801. Þeir eru samskonar og í Isl-
and hljóðverinu og Bítlarnir sögðu að væru
„reference of sound“. Guðjón þurfti að beita
þó nokkrum nördaskap til að verða sér út um
þá, sérstaklega þar sem hann var að leita að
sérstakri árgerð.
„Ég hef ofboðslega gaman af því að fylgjast
með nýjustu straumum og stefnum í tónlist
og þá ekki síst því sem er að gerast í heimi
raftónlistarinnar sem ég hef mikinn áhuga
á. Hljómsveitin Depeche Mode heillaði mig
mikið á sínum tíma og ég er reyndar mjög
hrifinn af henni enn og tel hana hafa haft
mikil áhrif. Tónlist er orðin mjög aðgengileg
á netinu í dag og í kjölfar þess er ég hættur
að fylgjast með einstökum böndum og fylgist
því meira með nýjungum.“
alþjóðleg viðurkenning
Í starfi sínu hefur Guðjón ferðast mikið og
núna í nóvember var honum boðið til Túnis
á vegum JCI-hreyfingarinnar til að taka á
móti verðlaunum sem hann var tilnefndur
til á vegum JCI og Sameinuðu þjóðanna.
Hann segist vera mjög ánægður með þessa
viðurkenningu þar sem ekki ómerkari menn
en John F. Kennedy og Elvis Presley hafi
fengið verðlaunin á sínum tíma.
„Ég er búinn að koma mjög víða og ferðast
til flestra heimsálfa í tengslum við starfið
og hef komið til margra landa í Evrópu,
verið víða í Bandaríkjunum, Kína, Tælandi,
Japan og Skandinavíu, og tel mig hafa verið
heppinn að fá að anda að mér kúltúr ólíkra
menningarheima.
Ég er alinn upp við að fjölskyldan fór
reglulega hringinn í kringum landið og hún á
sumarbústað í Skorradal þar sem við komum
saman til að slappa af og njóta lífsins.“
Guðjón hefur einnig mikinn áhuga á
arkitektúr og átti um tíma þrjú áberandi
og falleg hús. Gamla borgarbókasafnið, hús
Osta- og smjörsölunnar við Snorrabraut og
Næpuna.
Fjarskiptamarkaðurinn heillandi
Eftir heimkomuna frá Bandaríkjunum 1998
stofnaði Guðjón, ásamt fleirum, Íslandssíma
sem síðar varð Vodafone. Auk þess sem hann
hefur í gegnum fyrirtækið Industria, sem
hann stofnaði 2003 og er stjórnarmaður í,
byggt upp fjögur önnur fjarskiptafyrirtæki
bæði erlendis og hér heima.
„Undanfari hefur allur minn tími farið í
undirbúning Þjóðfundarins og það verður
áhugavert að sjá hvað kemur út úr honum.
Fjármálakrísan hefur haft mikil áhrif á
þjóðlífið, margir hafa farið illa út úr henni.
Sjálfur lenti ég í fjármálakrísu 2002 og
það var mikil reynsla. Ég tók engan þátt
í hlutabréfaævintýrinu, enda ekki þannig
þenkjandi, og hef aldrei átt hlutabréf í
öðrum fyrirtækjum en þeim sem ég hef
rekið sjálfur. Fyrir mér er nýsköpun það
sem skiptir mestu máli og ég hef lítinn
áhuga á peningum sem slíkum. Ég bjó
í London í nokkur ár en flaug reglulega
heim til að kenna kúrsa í nýsköpun við
Listaháskólann en í október í fyrra ákvað ég
að flytja heim í kjölfar hrunsins og taka þátt
í uppbyggingunni sem er óneitanlega mjög
krefjandi verkefni.
Um síðustu áramót stofnaði ég
Hugmyndaráðuneytið með það að markmiði
að nýta þekkingu úr viðskiptalífinu og
samstarf ólíkra einstaklinga í grasrótinni við
nýsköpun. Næsta skref hjá mér er að setja
á markað, í gegnum fyrirtæki sem heitir
Medizza, tæki sem gerir fólki kleift að eiga
samskipti svipuð og á Facebook í gegnum
sjónvarp.
Að mínu mati felst auður Íslendinga í
smæðinni og þeim tækifærum sem hún veitir
til breytinga á lýðræðismódelinu og að gera
þjóðina virkari í lýðræðinu. Ólíkt því sem er
að gerast annars staðar, þar sem leiðtogadýrkun
er við lýði, geta Íslendingar skapað sína
framtíð sjálfir í gegnum virkt lýðræði því að
með sameiginlegri sýn og átaki getum við
framkallað galdra,“ segir Guðjón Már
Guðjónsson frumkvöðull að lokum.
Guðjón Már Guðjónsson stofnaði Oz aðeins sautján ára að aldri.
Nafn: Guðjón Már Guðjónsson
Fæddur: 16. febrúar 1972.
Sambýliskona: Anna Ólafsdóttir
kennari.
Börn: Jason daði Guðjónsson
níu ára.
Starf: Frumkvöðull og
athafnamaður.
Guðjón situr í stjórn
eftirtalinna fyrirtækja:
Industria og Medizza.•
Rekur Hugmyndaráðuneytið •
sem samfélagsverkefni.
með
sameiginlegri
sýn og átaki
getum við
framkallað
galdra.