Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2009, Side 20

Frjáls verslun - 01.10.2009, Side 20
20 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 f e r ð a m á l Site samtökin eru alþjóðleg regnhlífa-samtök með um 2000 ferðaþjón-ustuaðila í 87 löndum. Árlega veita þau Crystal verðlaunin í sjö flokkum og eru þetta meðal eftirsóttustu verðlauna í ferðaþjónustu í heiminum. Practical og Reykjavík Hilton Nordica hlutu verðlaun í flokknum framúrskarandi hvataferð, ásamt bandarískum viðskiptavini þeirra, Harith Productions. Voru verðlaunin veitt fyrir ferð bandarísks lyfjafyrirtækis til Íslands í maí sl. Harith sá um undirbúninginn í Bandaríkj- unum og Practical hér á landi. Marín Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Practical og nýkomin frá eyjunni Arúba í Karabíska hafinu þar sem hún, ásamt Ingólfi Haralds- syni, hótelstjóra á Hilton Reykjavík Nordica tók á móti verðlaununum. „Ég fór út á fimmtudegi og var alla helgina á ráðstefnunni og þar sem Practical er í Site-samtökunum nýtti ég tímann vel til að kynna fyrirtækið og Ísland sem áfangastað fyrir hvataferðir og viðburði. Mér fannst áhugi kollega minna mikill og við höfum verið í sambandi við nokkra aðila í kjölfar ráðstefnunnar sem eru áhugasamir um að kynna Ísland fyrir viðskiptavinum sínum. Ég tók mér svo frí á mánudeginum og spókaði mig á ströndinni í 30 stiga hita og sól áður en ég hélt heim.“ Marín segir verðlaunin mikilvæg fyrir Practical og Ísland sem áfangastað fyrir við- burði af þessu tagi. Practical er meðlimur fékk CryStal verðlaunin eftirSóttu Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical tók við verðlaununum í Arúba. Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical og Anita Ólafsdóttir sem var verkefnisstjóri yfir verkefninu með Crystal verðlaunin sem fyrirtækið fékk ásamt Hilton Reykjavík Nordica hóteli fyrir bestu hvataferðina 2009. texti: hilmar karlsson ● Mynd: geir ólafsson o.fl.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.