Frjáls verslun - 01.10.2009, Síða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
H
ann var einn af forsvarsmönnum
Þjóðfundarins. Hann er löngu
þekktur í viðskiptalífinu sem
Guðjón Már í Oz en það fyrirtæki
stofnaði hann aðeins 17 ára gamall.
Hann rekur Hugmyndaráðuneytið og
á dögunum var hann heiðraður af JCI
samtökunum fyrir að vera framúrskarandi
ungur Íslendingur – ásamt þeim Páli Óskari
Hjálmtýssyni og Völundi Snæ Völundarsyni.
Í viðurkenningarskjalinu var m.a. sagt að lögð
væri áhersla á að verðlauna unga einstaklinga
sem hafa gefið af sér til samfélagsins og eru
góðar fyrirmyndir ungs fólks.
Guðjón Már er frumkvöðull af lífi og sál.
Hann er fæddur í Reykjavík 16. febrúar 1972.
Hann er sonur hjónanna Helgu Jónsdóttur,
sem starfar við Læknasetrið, og Guðjóns
Hafsteins Bernharðssonar, stofnanda og
framkvæmdastjóra Tölvubankans.
Þegar Guðjón fæddist bjuggu foreldrar
hans í Breiðholtinu en fjölskyldan flutti
fljótlega í Skipasund þar sem Guðjón ólst
upp. Systkini hans eru Guðrún Líneik, sem
rekur Óðinn Design ásamt manni sínum,
og Jón Atli, sem rekur kvikmyndafyrirtækið
Rec Studio.
„Það var mikið af börnum í Sundahverfinu
á þessum tíma og frábært að alast þar
upp. Ég man eftir því að það var verið
að sprengja fyrir Sundahöfninni á þeim
tíma og okkur krökkunum þótti gaman að
leika okkur þar í klettunum. Ég og félagi
minn, níu eða tíu ára gamlir, þóttumst vera
miklir náttúruverndarsinnar og fórum oft á
nóttinni til að klippa á dínamítstrengi sem
var búið að leggja í jörðina. Við földum líka
dínamítkassa sem við fundum og héldum
okkur vera að vinna mikið hugsjónastarf og
vernda náttúruna,“ segir Guðjón.
stofnaði Gr international fjórtán ára
Skólaganga Guðjóns hófst í leikskólanum
Brákarborg við Skipasund og að eigin sögn
fór hann yfirleitt sjálfur í leikskólann. Eftir
það gekk hann í Langholtsskóla og lauk
samræmdu prófunum þar. „Síðan fór ég
í Verslunarskólann en hætti þegar ég átti
eina önn eftir í stúdentinn og þar með lauk
formlegri skólagöngu minni.“
Guðjón byrjaði ungur að bera út
Morgunblaðið og var það hans fyrsta
starf. Fimmtán ára fór hann að vinna hjá
tölvuverslun sem afgreiðslu- og sölumaður.
Hann hafði að vísu stofnað lítið óformlegt
tölvufyrirtæki, þar sem hann var ekki fjárráða,
ásamt félaga sínum á meðan hann var í
n æ r m y n d a F G u ð j ó n i m á G u ð j ó n s s y n i
texti: Vilmundur hansen ● MyNdiR: geir ólafsson
Fólk á að
treysta á
sjálFt siG
Guðjón Már Guðmundsson var fjórtán ára þegar hann
stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki og sautján ára stofnaði hann
OZ. Í dag rekur hann Hugmyndaráðuneytið og hann var einn
af forsvarsmönnum Þjóðfundarins. Guðjón á litríkan feril að
baki og er langt frá því að vera uppiskroppa með hugmyndir.