Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
Bakkus ehf. er einn af þremur stærstu léttvínsinnflytjendum landsins. Við-skiptavinir fyrirtækisins eru fyrst og
fremst Vínbúðirnar, Fríhöfnin og veitinga-
hús. Fókusinn er á að vera bara með einn
framleiðanda í hverju landi og t.d. einn úr
hverju héraði í Frakklandi.
Fyrirtækið Bakkus var stofnað 16. mars
árið 2003. Ástæðan fyrir vali dagsins teng-
ist fjölskyldusögu annars eigandans, Birgis
Hrafnssonar: „Dag nokkurn, á fyrri hluta
20. aldar, vestur í Ísafjarðardjúpi, var kind-
unum hennar ömmu hleypt út í góðviðrið.
Skyndilega skall á blindbylur sem varði í
tvo sólarhringa og féð hvarf. Ef það hefði
ekki fundist hefði framundan verið sultur
og seyra en þann 16. mars (Guðmund-
ardagurinn, kenndur við Guðmund hinn
góða biskup) birti upp öll él og kindurnar
fundust. Þá skellti amma hangikjöti í pott
og hafði alltaf fyrir sið á þessum degi meðan
hún lifði.“
Heppnir með viðskiptasambönd
Að sögn Sverris Eyjólfssonar, annars eiganda
Bakkusar, er höfuðáherslan lögð á léttvín:
„Við höfum verið heppnir með viðskipta-
sambönd þar sem við verslum aðallega við
fjölskyldufyrirtæki sem eru í einkaeigu. Það
myndast óneitanlega persónulegri tengsl en
ella og á þessum tímum sem við lifum í dag
er mun betra að vera í viðskiptum við slík
fyrirtæki en stórar keðjur.
Einn af okkar stóru birgjum, argentískt
fyrirtæki sem framleiðir vínin Alamos og
Catena, var að lækka umtalsvert verðið til
okkar þannig að við gátum lækkað verð til
neytenda. Því gerir fólk frábær innkaup í
þessum tegundum í dag. Og vonandi verður
sú þróun áfram hjá framleiðendum að þeir
bjóði okkur betra verð. Það hefur ekki verið
hægt að hagga verði síðastliðin tíu ár. En nú
hefur útflutningur minnkað verulega, í bæði
gamla og nýja heiminum, og framleiðendur
sitja uppi með fullt af vínum sem þeir geta
ekki selt.“
Birgir: „Argentínubúarnir segja okkur
að þeir skilji hvernig efnahagslandslag
við Íslendingar glímum við núna því
þeir upplifðu svipaða tíma árið 2002.
Framleiðendur fara að átta sig á aðstæðum.“
Sverrir: „Við sjáum greinilega breyt-
ingar á neysluvenjum fólks; það hefur fært
sig niður um einn flokk í verði og talsverð
hreyfing er á ódýrari vínum. Þessi flokkur er
að taka við betri vínum. Sala á vínum í fínni
kantinum, frá Ástralíu og Spáni, svo dæmi
sé tekið, hefur dregist mikið saman í krepp-
unni. Sala í kassavínum hefur aftur á móti
aukist.“
Í hvaða verðflokki eru þokkaleg vín?
Sverrir: „Fyrir hrun drukku Íslendingar mest
vín í 1.490 króna flokknum, sem er í dag á
bilinu 1890-1990 krónur, og það eru bestu
kaupin í dag í verslunum. Það þarf ekki að
bæta nema 2-300 krónum við og þá ertu
kominn í mjög góð vín. ÁTVR er með einar
glæsilegustu vínbúðir í heiminum þar sem
allar flottustu tegundirnar eru til. Ekki má
gleyma Fríhöfninni í Keflavík sem státar
einnig af frábæru úrvali góðra vína. Þjóðin
er mjög góðu vön hvað þetta varðar.“
Hefur matar- og vínmenningin breyst
mikið á undanförnum árum?
Birgir: „Gríðarlega, sérstaklega á síðustu
10-15 árum, sem gerðist í kjölfar meira
upplýsingaflæðis og því að áhugi fólks á
vínum jókst. Í dag les fólk sér til um vín á
netinu og gefin eru út vönduð fagtímarit.
Góð vín hluti af
jólakræsinGunum
Þessi vín eru
fáanleg
í Vínbúðunum
og kosta frá
1.500 til 2.500 kr.
Bakkus ehf.
texti: hrund hauksdóttir ● MyNdiR: geir ólafsson