Frjáls verslun - 01.10.2009, Page 71
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9 71
jólin koma
Gjafabréf á nudd og dekur
Fátt er þægilegra en að mæta á NordicaSpa,
láta dekra við sig í fallegu umhverfi, finna
þreytuna og streituna líða úr líkamanum og
ganga út ný og betri manneskja.
Ragnheiður Birgisdóttir framkvæmda-
stjóri segir að um þessar mundir leggi þau
áherslu á gjafakort Nordica Spa og þau vilji
beina athygli að því hversu vel til fundin gjöf
þau eru. Allir kunna að
meta slíka gjöf, hvort
sem um er að ræða vini,
vandamenn, starfsfólk
eða viðskiptavini. Ragn-
heiður segir gjafakortin
hitta beint í mark, nú
meira en nokkru sinni
fyrr. „Það er mjög vel til fundið að gefa þeim
sem þú vilt gleðja vellíðan, slökun og ánægju.
Verðið hefur ekki hækkað hjá okkur og því
fær fólk mikið fyrir peningana með gjafakorti
í þjónustuna sem NordicaSpa hefur upp á að
bjóða; í heilsulindinni, nuddi, snyrtingu eða
í sjálfri heilsuræktinni.“
Ótal möguleikar
„Nordica Spa býður upp á vandaða og fjöl-
breytta þjónustu þar sem markmiðið er endur-
næring og slökun í afslappandi umhverfi.
Hægt er að leita til faglærðra snyrtifræðinga
og nuddara sem geta gert lítil kraftaverk.
Ótal möguleikar og
meðferðir eru í boði
þar sem mögulegt er
að eyða jafnvel heilum
degi í að láta dekra við
sig. Mæðgur, hjón og
vinkonur taka sig oft
saman og gera sér glaðan
slökunardag í friðsælu umhverfi NordicaSpa.
Heilsulindin okkar hér á NordicaSpa býður
upp á fjölbreytt úrval nudd- og snyrtimeð-
ferða fyrir karla og konur. Nuddaðstaðan er
einstaklega góð í rúmgóðum herbergjum og
stendur valið um ýmsar gerðir af nuddi, svo
sem klassískt nudd, slökunaranudd, leirmeð-
ferð með íslenskum hveraleir og steinanudd,
svo eitthvað sé nefnt. Innifalið í öllum snyrti-
og nuddmeðferðum er aðgangur að heilsu-
lindinni þar sem boðið er upp á herðanudd í
heitu pottunum, handklæði og sloppur.“
Jólagjöf golfarans
Golfarar landsins geta glaðst því Nordica
Spa býður þeim upp á spennandi nám-
skeið. „Gjafabréf á Golf-fitness er tilvalin
jólagjöf handa öllum golfurum í ár, en
námskeiðin byrja í janúar. Golf-fitness er
hannað með það í huga að gera líkamann
kraftmeiri, sveigjanlegri og koma honum í
betra jafnvægi svo golfsveiflan nái nýjum
hæðum. Golf-fitness er fyrir alla golfara
sem vilja bæta leik sinn og er sérhannað
fyrir alla golfara af fremsta fagfólki golf-
íþróttarinnar.“
„Ótal möguleikar og
meðferðir eru í boði þar
sem mögulegt er að eyða
jafnvel heilum degi í að
láta dekra við sig.“
HEILSA oG HAMINGJA
NordicaSpa
Ragnheiður Birgisdóttir framkvæmdastjóri NordicaSpa.