Frjáls verslun - 01.10.2009, Blaðsíða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
Kvikmyndir
Danska kvikmyndin Brødre er
komin í bandaríska endurgerð með
Jake Gyllenhaal, Tobey Maguire og
natalie Portman í aðalhlutverkum
Bræður í Blíðu og Stríðu
TEXTI:
hiLmar KarLsson
d
anska verðlaunakvikmyndin Brødre, sem Susanne Bier
leikstýrði, vakti verðskuldaða athygli hvar sem hún var sýnd
fyrir fáeinum árum og ekki síst í Bandaríkjunum. Myndin
fjallar um tvo bræður og er sá eldri orðum prýddum frá danska
hernum. Hinn hefur komist upp á kant við lögin. Hermaðurinn er
sendur til Afghanistan þar sem þar sem hann hafnar í klóm talíbana
og fjölskyldan í Danmörku, sem samanstendur af eiginkonu og
tveimur dætrum, telur að hann hafi verið drepinn. Brødre varð til þess
að Susanne Bier fékk tilboð um að leikstýra bandarískri kvikmynd,
Things We Lost in Fire, sem frumsýnd var seint á árinu 2007. Ekki
er laust við að söguþráðurinn í henni sé í líkingu við Brødre, en
myndin fjallar um ekkju sem býður vini eiginmanns síns, sem hefur
átt í miklum vandræðum, að búa hjá sér. Í aðalhlutverkum eru Halle
Berry, Benicio Del Toro og David Duchovny. Things We Lost in Fire
fékk yfirleitt góða dóma hjá gagnrýnendum en aðsókn var ekki mikil.
týndur í Afganistan
Fljótlega eftir að Brødre var sýnd í Bandaríkjunum var farið að huga
að endurgerð hennar og var Sigurjón Sighvatsson þar fremstur í flokki
og fór það svo að hann er einn aðalframleiðandi Brothers. Eins og
við var að búast var dönskum persónum breytt í bandarískar, en að
öðru leyti er atburðarásin mjög lík. Bandarískur hermaður er týndur
í Afganistan þegar hann er í fjórðu ferð sinni til Afganistan og Íraks.
Er það hald manna að hann hafi verið drepinn.Yngri bróðir hans sem
fáir hafa mikið álit á og er nýsloppinn úr fangelsi tekur að sér að sjá
um eiginkonu hermannsins og tvær dætur þeirra. Ekki vantar hann
sjarmann og er hann fljótur að aðlagast fjölskyldulífinu og heillar
dæturnar tvær, sem og eiginkonuna. Þegar hermaðurinn snýr óvænt
aftur, en hann hefur verið í haldi talíbana, er ekki laust við að titringur
fari um bróður hans og eiginkonu sem hafa náð ágætlega saman.
Í hlutverkum bræðranna eru Tobey Maguire, sem leikur her-
manninn Sam, og Jake Gyllenhaal, sem leikur svarta sauðinn, Tommy.
Natalie Portman leikur eiginkonuna Grace og í hlutverkum foreldra
bræðranna eru Sam Shephard og Mare Winningham.
Vonast eftir óskarstilnefningum
Í upphafi átti að hefja sýningar á Brothers um mitt árið en því var
frestað fram í desember til að vera með í óskarsslagnum. Nú verða
tíu kvikmyndir tilnefndar til óskarsverðlauna sem besta kvikmynd
á næsta ári í stað fimm og Sigurjón og félagar eru bjartsýnir á að
Brothers fái tilnefningar. Ekki ætti leikstjóri myndarinnar að slá á þær
vonir en það er Írinn Jim Sheridan, sem meðal annars leikstýrði My
Left Foot og In The Name of the Father, sem báðar voru tilnefndar
til óskarsverðlauna sem besta kvikmynd. Handritið skrifar David
Benioff eftir handrit Susanne Biers. Benioff skrifaði meðal annars
handritið að Flugdrekahlauparanum (The Kite Runner).
Jim Sheridan er ekki afkastamikill leikstjóri. Brothers er sjöunda
kvikmyndin sem hann leikstýrir frá árinu 1989 þegar hann sendi frá
sér My Left Foot. Aðrar kvikmyndir hans eru The Field (1990), In the
Name of the Father (1993), The Boxer (1997), In America (2002) og
Get Rich or Die Trying (2005). Sheridan er óvenju sprækur um þessar
mundir og er með tvær myndir í takinu fyrir utan Brothers. Önnur er
Black Mass, sem byggð er á sannri sögu og fjallar um bræðurna
William Bulger og James „Whitey“ Bulger, en annar varð mikilsvirtur
stjórnmálamaður, hinn mafíuforingi. Hin myndin er Emerald City
sem fjallar um írska glæpamenn í New York. Ekki er ljóst á hvaða
stigum þessar myndir eru en víst er að Black Mass seinkar þar sem hún
átti að fara í tökur á þessu ári en ekkert hefur enn gerst í þeim efnum.
Þess má svo geta að dóttir Jim Sheridans, Kirsten Sheridan, hefur
fetað í fótspor föður sín og leikstýrði síðast hinni tilfinningaþrungnu
August Rush. Hún ásamt föður sínum og systur, Naomi Sheridan,
voru tilnefnd saman til óskarsverðlaunanna árið 2003 fyrir handritið
að In America.
Tommy Cahill (Jake Gyllenhaal) ásamt eiginkonu bróður síns (Natalie Portman)
og dætrum.