Frjáls verslun - 01.10.2009, Síða 96
Fólk
96 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 9
Margrét Reynisdóttir.
„Eitt eftirminnilegasta
skíðafríið var á Akureyri
um síðastliðin áramót.
Við gistum í íbúð á
Akureyri og skíðuðum
flesta dagana. Á gaml-
ársdag var að sjálfsögðu
verið á skíðum og svo
borðuðum við á Hótel
KEA um kvöldið með
eintómum útlendingum.“
framkvæmdastjóri Gerum betur
MARGRÉT REYNISDÓTTIR
margrét Reynisdóttir rekur ráðgja-farfyrirtækið Gerum betur, sem sérhæfir sig í námskeiðum, ráðgjöf
og útgáfu á kennsluefni um þjónustu. Á
vormánuðum gaf fyrirtækið út fyrstu íslensku
kennslumyndböndin um þjónustu. Í þjónus-
tumyndböndunum Þjónustan er fjöreggið sýnir
Örn Árnason leikari, ásamt fleirum, hvernig
hægt er að gera góða þjónustu framúrskara-
ndi og hvað ber að varast. Fjallað er um
mikilvæga þætti í þjónustu svo sem hvernig
eigi að taka á móti viðskiptavinum, samskipti
við óánægða viðskiptavini og símaþjónustu.
Einnig hefur Margrét skrifað fyrstu íslensku
bókina um þjónustu sem ber heitið Þjónusta
– fjöregg viðskiptalífsins og rit um sama efni.
„Ástæðan fyrir því að ég hef unnið að því
að gefa út íslenskt efni er sú að starfsmenn
vilja efni sem miðast við aðstæður sem þeir
þekkja og eiga auðvelt með að samsama sig.
Íslenskt efni sem miðast við veruleika starfs-
manna og menningu er talið best fallið til að
bæta þjónustuna. Kennslumyndböndin Þjó-
nustan er fjöreggið og bókina Þjónusta - fjöregg
viðskiptalífsins má einnig nota til að efla innri
þjónustu fyrirtækja því það er gömul saga og
ný að þjónustan verður aldrei betri en hún er
innandyra.“
Margrét fékk Fulbright-styrk til BS-náms
í Oregon í Bandaríkjunum og lauk þar námi
árið 1987. „Ég settist aftur á skólabekk í
Glasgow og lauk þar masters-prófi í alþjóða-
markaðsfræði árið 1991. Fróðleiksþorstinn
gerði aftur vart við sig og lauk ég masters-
prófi í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla
Íslands árið 2004.“
Stjórnun hefur lengi verið áhugamál Mar-
grétar. „Ég hef verið virkur þátttakandi í starfi
Stjórnvísis í fimm ár, sem er félag um fram-
sækna stjórnun. Ég er núna formaður Stjórn-
vísi og var áður formaður þjónustustjórnu-
narhópsins innan Stjórnvísi í fimm ár. Ég
mæli eindregið með því að vera félagsmaður í
Stjórnvísi. Um 700 áhugamenn um stjórnun
eru skráðir í félagið og á þriðja hundruð
fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Þarna er
mikil gróska og hef ég kynnst gríðarlega mör-
gum hæfileikaríkum einstaklingum innan
félagsins. Stjórnvísi er langbesta tengslanetið
á sínu sviði og er einnig mikið um áhugav-
erða fyrirlestra hjá íslenskum fyrirtækjum á
vegum félagsins.“
Margrét segir fjölskylduna hafa gaman af
að fara á skíði. „Eitt eftirminnilegasta skíða-
fríið var á Akureyri um síðastliðin áramót.
Við gistum í íbúð á Akureyri og skíðuðum
flesta dagana. Á gamlársdag var að sjálfsögðu
verið á skíðum og svo borðuðum við á Hótel
KEA um kvöldið með eintómum útlend-
ingum. Við hjónin fengum okkur saltfisk og
börnin pasta. Fórum svo á glæsilega brennu
þar sem allir Akureyringar virtust samankom-
nir. Þessi áramót voru alveg einstök upplifun,
við vorum næstum eins og í skíðafríi erlendis
en vorum laus við ferðaþreytuna enda voru
allir endurnærðir á líkama og sál.“
nafn: Margrét Reynisdóttir
fæðingarstaður: Reykjavík,
18. febrúar 1963
foreldrar: Guðrún E. Bergmann
og Reynir A. Sveinsson
maki: Karl Axelsson
Börn: Sigríður, 13 ára og
Stefanía Ásta, 10 ára
menntun: BSc í matvælafræði,
MS í alþjóða markaðsfræði og
MS í stjórnun og stefnumótun.
TEXTI:
hiLmar
KarLsson
MynDIR:
GEir ÓLaFsson