Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 4
344 LÆKNAblaðið 2015/101
F R Æ Ð I G R E I N A R
7./8. tölublað 2015
347
Kristján Orri Helgason
Sýklalyfjaónæmi
– síðustu vígin
falla
Útbreiðsla karbapene-
masa-myndandi baktería
um allan heim er slík að
það er ekki spurning
hvort slíkur sjúklingur
greinist hér á landi
heldur hvenær.
351
Björn Már Friðriksson, Steinn Jónsson, Guðrún Nína Óskarsdóttir,
Andri Wilberg Orrason, Helgi J. Ísaksson, Tómas Guðbjartsson
Árangur skurðmeðferðar við Pancoast-
lungnakrabbameini á Íslandi
Pancoast-æxli vaxa út frá lungnatoppum í þak fleiðruhols og valda einkennum frá
ífarandi vexti í aðlæg líffæri. Tólf sjúklingar gengust undir aðgerð á þeim 20 árum sem
rannsóknin náði til.
357
Gunnar Guðmundsson
Bráð versnun á langvinnri lungnateppu
– yfirlitsgrein
Langvinn lungnateppa er algengur sjúkdómur með mikilli sjúkdómsbyrði og hárri
dánartíðni. Þar skipta bráðar versnanir höfuðmáli. Markviss meðferð þeirra er mikil-
væg og ekki er síður mikilvægt að reyna með öllum ráðum að fyrirbyggja endurteknar
versnanir því þær skerða mjög lífsgæði sjúklinga og auka dánartíðni. Þessir sjúklingar
koma víða við í heilbrigðisþjónustunni og því nauðsynlegt fyrir íslenska lækna að
þekkja vel til þessa vandamáls. Þá er rökvíst val sýklalyfja mikilvægt til að minnka
líkur á sýklalyfjaónæmi með tilheyrandi þjáningum og kostnaði.
363
Anna Stefánsdóttir, Áskell Löve, Sóley Guðrún Þráinsdóttir, Pétur Lúðvígsson
Brátt blóðþurrðarslag hjá unglingsstúlku
– sjúkratilfelli
Fimmtán ára stúlka fann fyrir skyndilegum verkjum vinstra megin í hálsi og hneig
niður á knattspyrnuæfingu. Reyndist hún vera með hægri helftarlömun og tjáningar-
málstol við komu á bráðamóttöku. Tölvusneiðmynd með skuggaefni vakti í fyrstu
grun um flysjun í vinstri innri hálsslagæð.
Stúlkan hafði aldrei fengið mígreni og ekki tekið nein lyf. Engin saga var um áverka
eða mikla áreynslu heldur aðeins væga upphitun við upphaf einkenna.
349
Dagur B. Eggertsson
Frú Ragnheiður
– skaðaminnkun
í Reykjavík
Undir þessu spennandi
nafni er unnið merkilegt
starf sem á að stuðla
að minni skaðlegum
afleiðingum lífsstíls og
hegðunar, hvort sem hún
er leyfileg eða ólögleg.
L E I Ð A R A R
árgangar að baki