Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 12
352 LÆKNAblaðið 2015/101 Tafla I. framhald Stigun fyrir aðgerð var ekki stöðluð en alltaf var gerð röntgen- mynd af lungum, ísótópaskann af beinum auk tölvusneiðmyndar (TS) af brjóstholi og efri hluta kviðarhols. Í völdum tilvikum var einnig gerð segulómun af brjóstholi og tölvusneiðmynd af höfði. Miðmætisspeglun var framkvæmd fyrir brjóstholsskurð hjá þrem- ur sjúklinganna (25%). Excel var notað við tölfræðilega úrvinnslu. Upplýsingar um lífs- horfur voru fengnar úr Dánarmeinaskrá Landlæknisembættisins og miðuðust útreikningar á lifun við 1. október 2014. Upplýsingar fengust um afdrif allra sjúklinga og var meðaleftirfylgdartími 27,5 mánuðir (bil: 4–181). Niðurstöður Tólf sjúklingar gengust undir skurðaðgerð vegna Pancoast-æxlis á rannsóknartímabilinu: 9 karlar (75%) og þrjár konur. Yfirlit yfir sjúklinga má sjá í töflu I. Meðalaldur var 57,5 ár og var sá yngsti 42 ára og sá elsti 84 ára. Allir sjúklingarnir höfðu sögu um reykingar, þar af voru 10 sem reyktu innan fimm ára fyrir aðgerð. Fjórir sjúk- lingar höfðu sögu um langvinna lungnateppu og voru tveir þeirra einnig með kransæðasjúkdóm. Tveir aðrir sjúklingar höfðu sögu um hjartsláttaróreglu. Algengustu einkenni voru verkur í herðablaði eða öxl (n=5) og/ eða brjóstverkur (n=3). Önnur algeng einkenni voru hósti (n=6), oftast með uppgangi en blóðhósti hjá einum, megrun (n=5), mæði (n=4), og hiti (n=1). Einn sjúklingur var án einkenna lungnakrabba- meins og greindist fyrir tilviljun á röntgenmynd af lungum. Enginn sjúklinganna reyndist hafa Horners-heilkenni, rýrnun á handarvöðvum eða bjúg á griplimum. grunni rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði. Klínískar upp- lýsingar fengust úr sjúkraskrám og vefja sýni allra sjúklinga voru endurskoðuð af meinafræðingi (H.J.Í.). Skráð var vefjagerð æxlis, gráða, mesta þvermál og staðsetning og hvort skurðbrúnir voru án æxlisvaxtar. Úr sjúkraskrám voru skráðar rúmlega 80 breytur í tölvuforritið Excel, meðal annars hvaða einkenni leiddu til grein- ingar, tímalengd frá upphafi einkenna til greiningar, legutími í dögum, fylgikvillar aðgerðar, og skurðdauði (dánartíðni innan 30 daga). Tíðni endurkomins krabbameins var könnuð sérstaklega en sjúklingar sem greindust með fjarmeinvörp innan þriggja mánaða frá aðgerð voru skilgreindir með útbreiddan sjúkdóm (stig IV) við greiningu. Öll æxlin voru stiguð samkvæmt 7. útgáfu af TNM- stigunarkerfi frá 2009 og byggði hún að mestu á upplýsingum eftir aðgerð (pTNM).4 R a n n S Ó k n Tafla I. Yfirlit yfir sjúklinga sem gengust undir skurðaðgerð við Pancoast-krabbameini á Íslandi á árunum 1991-2010. Númer sjúklings (ár) Aldur/ kyn Einkenni Reykinga- saga (pakkaár) Aðrir sjúkdómar Vefjagerð Stærð æxlis í cm pTNM stigun Ífarandi vöxtur við greiningu 1 (1992) 42/kvk Verkur í herðablaði með leiðni í handlegg 20 - Stórfrumugerð 5,5 T4N0M0 Hryggjarbolir/ armflækja/ neðanviðbeinsslagæð 2 (1994) 53/kk Brjóstverkur með leiðni í handlegg 40 - Kirtilfrumugerð 3,2 T3N0M0 Fleiðra 3 (1996) 48/kvk Brjóstverkur með leiðni í handlegg 33 - Kirtilfrumugerð 3,7 T3N1M0 Rif/millirifjavöðvar 4 (1997) 52/kk Hósti/uppgangur/megrun 40 - Flöguþekjugerð 12,5 T3N1M0 Fleiðra 5 (1997) 57/kk Verkur í herðablaði /hósti/ uppgangur/mæði/megrun/ hiti/lungnabólga 50 Lungnateppa + kransæðasjúkdómur Stórfrumugerð 15 T3N0M0 Fleiðra 6 (1999) 84/kk Tilviljunargreining 42 Hjartsláttartruflun Kirtilfrumugerð 8 T3N0M0 Fleiðra 7 (2004) 56/kk Verkur í öxl 40 - Kirtilfrumugerð 2,8 T3N0M0 Fleiðra 8 (2005) 69/kk Hósti/mæði 60 Lungnateppa Flöguþekjugerð 6,8 T3N1M0 Fleiðra 9 (2006) 62/kk Hósti/blóðhósti 35 Lungnateppa + kransæðasjúkdómur + hjartsláttartruflun Flöguþekjugerð 6,7 T4N0M0 Armflækja 10 (2006) 65/kvk Verkur í öxl með leiðni í handlegg /hósti/ uppgangur/mæði/megrun/ lungnabólga 40 Lungnateppa Blönduð flöguþekju -og kirtilfrumugerð 5,8 T3N0M0 Fleiðra 11 (2008) 50/kk Brjóstverkur með leiðni aftur í bak/megrun 42 - Flöguþekjugerð 4 T4N0M0 Armflækja/ hryggjarbolir/rifbein 12 (2009) 52/kk Verkur í öxl/hósti/mæði 40 - Kirtilfrumugerð 6 T4N0M0 Armflækja/ neðanviðbeinsslagæð Mynd 1. Vefjagerð 12 sjúklinga sem gengust undir aðgerð við Pancoast-lungna- krabbameini á Íslandi á árunum 1991-2010. Kirtilfrumugerð Flöguþekjugerð Stórfrumugerð Blönduð flöguþekju- og kirtilfrumugerð 1 5 2 4

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.