Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 38
378 LÆKNAblaðið 2015/101
Ritstjórn stærsta og virtasta læknis-
fræðitímarits veraldar, New England
Journal of Medicine, hélt ritstjórnarfund
í Reykjavík á dögunum. Ritstjórnin,
sem er skipuð á fjórða tug sérfræðinga
í hinum ýmsu greinum læknisfræði og
raunvísinda, hefur undanfarin ár valið
sér fundarstað einu sinni á ári utan
heimahaganna og í ár varð Ísland fyrir
valinu. Hingað komu um 70 manns
á vegum blaðsins til fundahalda og
fyrirlestrahalds dagana 18. – 23. júní.
Það kom þeim skemmtilega á óvart að
Læknablaðið íslenska skyldi einmitt
fagna 100 ára afmæli sínu á árinu og
mátti því segja að fundarstaðurinn væri
sérlega vel valinn.
New England Journal of Medicine er
útbreiddasta læknisfræðitímarit í veröld-
inni. Höfuðstöðvar þess eru í Boston og
saga blaðsins nær rúmlega 200 ár aftur í
tímann er Massachusetts Medical Association
hóf útgáfu tímarits sem hefur komið út
óslitið síðan en gengið í gegnum nokkrar
nafnabreytingar. Útgefandinn og eigand-
inn hefur þó alla tíð verið hinn sami.
Að sjálfsögðu nýttu íslenskir læknar
sér þessa heimsókn til hins ítrasta og Vís-
indadeild ásamt fræðslunefnd Læknaráðs
Landspítalans fékk aðalritstjóra NEJM,
NEJM í heimsókn
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Jeffrey M. Drazen aðalritstjóri NEJM fræddi og skemmti áheyrendum á vel sóttum fyrirlestri í Hringsal Landspítalans föstudaginn 19. júní.
Richard Wenzel einn ritstjóra NEJM heimsótti ritstjórnarskrifstofu Læknablaðsins og ræddi útgáfumál
læknisfræðilegra tímarita við ritstjórn blaðsins og ábyrgðarmann, Engilbert Sigurðsson.
Það fór vel á með þeim Richard Wenzel og Védísi Skarphéðinsdóttur
ritstjórnarfulltrúa Læknablaðsins.