Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 46
386 LÆKNAblaðið 2015/101 Audi A3 e-tron Nýir tímar kalla á nýja tækni. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · www.audi.is A3 Sportback e-tron, 204 hö, 7,6 sek 0-100 km/klst., CO2 35 g/km, eyðsla: 1,5 l. í blönduðum akstri. Verð frá 5.190.000 kr. Audi A3 e-tron sameinar helstu kosti raf- og bensínbíla. Raforkan ein og sér dugar í flestar ferðir innanbæjar, eða allt að 50 kílómetra. Í lengri ferðum gengur sparneytin bensínvél til liðs við e-tron rafdrifið svo samanlögð akstursdrægni er 940 kílómetrar. Með Audi A3 e-tron eru þér allir vegir færir. Hefur gegnt lykilhlutverki í sóttvörnum Þórólfur Guðnason rakti feril Haraldar í máli og myndum. Árni Friðrik Ólafarson færði Haraldi þakklætisvott frá Alnæmissamtökunum á Íslandi. Læknablaðið færir Haraldi góðar kveðjur við starfslok og þakkar hans góða skerf til blaðsins fyrr og síðar. Vinir og velunnarar og samstarfsmenn Haraldar Briem sóttvarnalæknis, efndu til málþings honum til heiðurs mánudaginn 22. júní í Hringsal Landspítalans. Tilefnið var væntanleg starfslok Haraldar en hann lætur af starfi sínu um næstu áramót og við embættinu tekur einn nánasti samstarfsmaður hans til margra ára, Þórólfur Guðnason. Fundarstjóri málþingsins var Birgir Jakobsson landlæknir en erindi fluttu Þórólfur Guðnason, Sigurður Guðmunds- son, Magnús Gottfreðsson, Unnur A. Valdimarsdóttir og Richard Wenzel. Þórólfur sagði frá ætt, uppruna, námi og starfsferli Haraldar undir yfirskriftinni Haraldur Briem – hver er maðurinn? Kom þar fram að Haraldur er vel ættaður, hlaut gott uppeldi, stundaði nám sitt af kost- gæfni og hefur átt merkan og gifturíkan starfsferil. Bar Þórólfur Haraldi í hvívetna vel söguna og vitnaði í Hávamál þar sem segir efnislega að meira mark sé takandi á því sem sagt er um menn lifandi en eftir að þeir eru horfnir yfir móðuna miklu. Þórólfur kvaðst aðeins einu sinni hafa orðið fyrir vonbrigðum með Harald, þegar hann komst að því að hann vissi engin deili á þeim merka gítarleikara Eric Clapton. Þarna var semsagt slegið á létta strengi í bland við alvarlegri tóna. Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir og samstarfsmaður Haraldar til margra ára rakti sögu alnæmis á Ís- landi og var þáttur Haraldar eigi alllítill. Spannar sú saga ríflega 30 ár. Nefndi Sigurður fyrirlesturinn HIV og alnæmi á Íslandi fyrstu árin – þáttur Haraldar Briem. Að loknu erindi Sigurðar færðu Alnæmissamtökin á Íslandi Haraldi blóm- vönd í þakklætisskyni fyrir stuðning hans við alnæmissjúka frá upphafi. Magnús Gottfreðsson sérfræðingur í smitsjúkdómum flutti erindi á ensku er nefndist What can we learn from old data? Measles epidemic in 19th century Iceland. Lýsti Magnús rannsókn sinni og sam- starfsmanna á mislingafaraldri er gekk yfir þjóðina árið 1882 og hvernig sjá mætti dánartíðni og útbreiðslu sjúkdómsins útfrá kirkjubókum þar sem fjöldi látinna, aldur þeirra og kyn væri skilmerkilega skráð. Benti hann á greinileg tengsl ónæmis þess hluta þjóðarinnar er var fæddur árið 1846 er annar mislingafaraldur reið yfir og því hafi faraldurinn 1882 komið harðast niður á þeim er yngri voru en 36 ára. Sérstaklega hafi börn og konur á barnsburðaraldri orðið fyrir barðinu á sjúkdómnum. Sagði Magnús mikilvægt að hafa þetta í huga núna þegar ýmsar ranghugmyndir eru uppi um mikilvægi bólusetninga gegn mislingum og öðrum lífshættulegum smitsjúkdómum. Unnur A. Valdimarsdóttir flutti erindið Haraldur Briem and public health preparedness in Iceland og rakti hún þátt Haraldar í að koma á fót Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Síðastur á mælendaskrá var Richard Wenzel, sérfræðingur í smitsjúkdómum og einn ritstjóra NEJM en hann ræddi samspil sýkingavarna og aukins ónæmis gegn sýklalyfjum undir yfirskriftinni The co-evolution of infection control and antibiotic resistance. Wenzel er heimsþekktur á sviði sýkingavarna og ritstjóri handbókar um efnið sem margir hafa nýtt sér í gegnum tíðina. M Á l Þ i n G T i l H E i ð U R S H a R a l D i b R i E M ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.