Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2015/101 367
Fyrir nokkrum dögum fletti ég í sjúkra-
skrá konu sem fara átti í aðgerð í svæfingu
næsta dag. Ég fann ekki neina svæfinga-
skýrslu um þessa konu, enda ekki von, því
hún hafði aldrei farið í neina aðgerð. Ég
fann hins vegar skrá hennar frá því fyrir
um 50 árum þegar hún eignaðist hér barn.
Ég hafði því í raun engar upplýsingar
um konuna á þessu 50 ára tímabili aðrar
en þær sem hún gat sjálf gefið mér. Þessi
kona var annars við býsna góða heilsu svo
þetta varð ekkert vandamál. Raunveru-
leikinn gat verið annar.
Enn er það svo að jafnvel lífsnauðsyn-
legar heilsufarsupplýsingar geta verið
óaðgengilegar því fagfólki sem annast
þarf bráðveikan sjúkling. Búseta fólks
skiptir til að mynda máli því ef Akureyr-
ingar veikjast í Reykjavík eða öfugt er ekki
víst að upplýsingar um viðkomandi fáist
auðveldlega nema með mörgum símtölum.
Læknir á Landspítala hefur enn ekki að-
gang að sjúkraskrárkerfi Sjúkrahússins á
Akureyri. Upplýsingar um heilsufar, lyf og
meðferð sjúklings á einkastofum eru ekki
alltaf aðgengilegar ef viðkomandi leggst
svo inn á sjúkrahús. Tölvukerfin tala
nefnilega ekki alltaf saman. Við bíðum
enn eftir sameiginlegri sjúkraskrá eða að
minnsta kosti samtengdri sjúkraskrá fyrir
heilbrigðisstofnanir landsins en þó að slík
skrá komi er björninn ekki endilega unn-
inn. Þau skráningarkerfi sem notuð eru á
einkareknum lækningastofum eru nokkur
og mismunandi og stundum ósamrýman-
leg sjúkraskrárkerfum spítalanna. Lækna-
bréf eru því nauðsynleg. Það er hins vegar
skoðun margra heilsugæslulækna að
mikill misbrestur sé á því að læknabréf
berist, hvort sem er frá sjúkrastofnunum
eða læknastofum. Ef slík bréf eru yfir-
höfuð send koma þau oft fleiri vikum eftir
útskrift viðkomandi sjúklings. Auðvitað
flækir það oft málið ef sjúklingur hefur
ekki fastan heimilislækni og slíkt verður
æ algengara á höfuðborgarsvæðinu. Það er
því ekki alltaf ljóst hvert senda á upplýs-
ingar. Þetta er hins vegar minna vandamál
ef sjúklingur býr á landsbyggðinni því að
jafnaði má senda læknabréf á viðkomandi
heilsugæslustöð.
Auðvitað hefur margt áunnist í þessum
málum. Ýmis konar skráningarhugbúnað
er verið að þróa, einkum innan Land-
spítalans, sem væntanlega verður til bóta.
Rafræn svör vegna vefjagreiningar og
sýklarannsókna má nú nálgast í heilsugátt
Landspítalans. Við hér á Vesturlandi höf-
um nú til að mynda aðgang að heilsugátt-
inni og getum þannig nálgast ákveðnar
upplýsingar um fólk sem hefur legið á
Landspítalanum. Við getum séð þær rann-
sóknir sem gerðar hafa verið, bæði blóð-
rannsóknir og myndgreiningarannsóknir.
Þær rannsóknir sem við framkvæmum
hér á Akranesi fara sömuleiðis inn í kerfi
Landspítalans. Allt þetta veitir ákveðið
öryggi og kemur í veg fyrir að endurtaka
þurfi rannsóknir að nauðsynjalausu. Með
„Flex-lab“ kerfi Landspítalans hefur náðst
að tengja saman rannsóknastofur heil-
brigðisstofanana víðsvegar um landið.
Mikið hefur einnig áunnist hvað mynd-
greiningu varðar og þau tengsl sem hafa
skapast til dæmis við röntgenstofuna í Do-
mus eru til fyrirmyndar. Nú getur læknir,
hvort sem er á Landspítalanum eða á
sjúkrahúsinu á Akranesi, flett upp þeim
röntgenrannsóknum sem gerðar hafa verið
í Domus. Aðgangur að lyfjagagnagrunni
í umsjá Embættis landlæknis er nú smátt
og smátt að komast í gagnið og þannig má
fylgjast með lyfjanotkun og sjá til dæmis
óútleysta lyfseðla.
Rafræn upplýsingaskrá er ómetanleg
þegar sækja á upplýsingar um heilsufar,
aðgerðir eða lyfjanotkun sjúklinga sem
legið hafa inni á spítölum eða þegið með-
ferð á einkastofum og göngudeildum.
Stundum finnst mér samt vera til staðar
ákveðin hræðsla við notkun pappírs í nú-
tíma heilbrigðiskerfi, líkt og framtíð skóg-
anna standi og falli með þeirri notkun.
Rafræn kerfi eru nauðsynleg til að geyma
upplýsingar en ekki alltaf jafngóð að koma
þeim til skila í okkar sérstaka vinnu-
umhverfi. Rannsóknarsvör og skilaboð
geta auðveldlega farið forgörðum hvort
sem þau eru send rafrænt eða bréfleiðis.
Rannsóknasvör eru send þeim lækni sem
pantaði rannsóknina en hann getur verið
veikur eða í fríi þegar svörin berast. Ekki
hefur tekist að koma fram með viðunandi
lausn á slíkum vandamálum. Að mínum
dómi getur þurft að senda rannsóknar-
niðurstöður bæði rafrænt og í pósti til að
auka öryggi. Bréfi má síðan farga þegar
búið er að skoða niðurstöður og vinna
með þær.
Ég vinn í þeim geira læknisfræðinnar
þar sem rafræn skráning hefur ekki verið
innleidd nema að litlu leyti. Enn þarf að
handskrifa svæfingaskýrslur þó til séu
kerfi sem skrá sjálfkrafa allar upplýsingar
um lífsmörk í ákveðinni svæfingu. Slík
kerfi hafa þó ekki enn komist í gagnið hér-
lendis. Við svæfingalæknar skoðum því
ennþá handskrifaðar svæfingaskýrslur
til að kanna hvort eitthvað hafi farið
úrskeiðis í fyrri aðgerðum. Og það er
svo merkilegt að margt má lesa úr slíkri
skýrslu um ákveðin vandamál sem upp
hafa komið í skurðaðgerð, jafnvel þó að
ekkert annað standi í svæfingaskýrslunni
en tímasetningar, lífsmörk og lyfjagjafir.
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í
Þorbjörn jónsson, formaður
orri Þór ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
Björn Gunnarsson
Hildur Svavarsdóttir
Tinna Harper Arnardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Stjórn lÍ 2015
Um skráningu
björn
Gunnarsson
svæfingalæknir á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi
bjorn.gunnarsson@hve.is