Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2015/101 331
l Ö G F R æ ð i 1 4 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Bólusetningar barna
Þátttaka í bólusetningum barna hér á landi
hefur verið mikil. Það skiptir máli því
öðruvísi næst ekki svokallað hjarðónæmi
gegn hættulegum smitsjúkdómum. Til að
slíkt ónæmi náist þurfa bólusetningar að
ná til nær allra barna í hverjum fæðingar-
árgangi. Með hjarðónæminu tekst að koma
í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómanna þótt
upp komi eitt og eitt tilfelli. Þessi almenna
þátttaka í bólusetningum hefur orðið til
þess að við höfum talið ástæðulaust að
gera bólusetningar að skyldu.1
Blikur eru á lofti í þessum efnum. Þeim
virðist fjölga foreldrunum sem telja það
skynsamlegan kost að láta ekki bólusetja
börn sín.2 Ótta foreldra við bólusetningar
má að einhverju leyti rekja til greinar eftir
breskan lækni, Andrew J. Wakefield, sem
birtist árið 1998 í The Lancet. Í greininni
var því haldið fram að svonefnt MMR-
bóluefni (sem er bóluefni gegn mislingum,
hettusótt og rauðum hundum) gæti valdið
heilaskaða í börnum og leitt til einhverfu.
Síðar kom í ljós að Wakefield lét þess
ekki getið að bandarískur lögmaður í
málaferlum við framleiðendur MMR-bólu-
efnisins studdi rannsókn hans og að í húfi
voru miklir fjárhagslegir hagsmunir. The
Lancet afturkallaði greinina og Wakefield
var síðar sviptur lækningaleyfi sínu.3 Enn
gætir áhrifa þessarar fölsuðu greinar með
þeim hætti að fjölmargir foreldrar þora
ekki að láta bólusetja börn sín.
Afleiðingarnar láta ekki á sér standa.
Mislingafaraldur gekk í Þýskalandi í lok
síðasta árs og byrjun þessa. Fleiri hundruð
veiktust og að minnsta kosti eitt 18 mán-
aða barn lést. Faraldurinn kveikti umræðu
í Þýskalandi um nauðsyn þess að gera
bólusetningar að skyldu.4 Fleiri þúsund til-
felli kíghósta komu upp í Kaliforníu á síð-
asta ári. Hundruð sjúklinga voru lögð inn
á spítala, flest börn, og nokkrir tugir lentu
á gjörgæsludeild. Ástæðan er lág tíðni
bólusetninga.2 Á mbl.is var frétt hinn 23.
maí síðastliðinn um það að lítill hettusótt-
arfaraldur væri í uppsiglingu hér á landi
og að bólusetning væri eina öryggið gegn
sjúkdómnum.5
Smitsjúkdómafaraldrar, þótt litlir séu,
virðast því nýr raunveruleiki sem við, líkt
og mörg nágrannalönd, stöndum frammi
fyrir, algerlega að óþörfu. Ef foreldrar létu
bólusetja börn sín kæmi ekki til þeirra.
Allnokkur umræða var fyrr á þessu ári
í fjölmiðlum um bólusetningar barna. Hún
varð stjórn Læknafélags Íslands tilefni til
að álykta hinn 16. mars síðastliðinn um
málefnið. Í ályktuninni minnti stjórn LÍ
á þá staðreynd að fáar framfarir í læknis-
fræði hafi bjargað jafnmörgum manns-
lífum og bólusetningar um leið og stjórnin
hvatti foreldra og forráðamenn barna til
að láta bólusetja börn sín samkvæmt þeim
ráðleggingum sem í gildi eru hverju sinni
hjá Embætti landlæknis.7
Ráðleggingar Embættis landlæknis
um bólusetningar barna byggjast á
reglugerð um bólusetningar á Íslandi
nr. 221/2001. Reglugerðin styðst við sótt-
varnalög nr. 19/1997. Samkvæmt sótt-
varnalögum er yfirstjórn sóttvarna hjá
Embætti landlæknis og þar skal starfa
sóttvarnalæknir sem meðal annars sér
um að skipuleggja ónæmisaðgerðir um
land allt. Í 2. gr. reglugerðarinnar er
fjallað um bólusetningar barna. Þar kemur
fram að þeim sé ætlað að verja börn gegn
alvarlegum smitsjúkdómum og að börnum
með lögheimili hér á landi skuli boðin
bólusetning gegn nánar tilgreindum
sjúkdómum, þeim að kostnaðarlausu.
Þeir smitsjúkdómar sem tilgreindir eru í
2. gr. reglugerðarinnar eru meðal annars
barnaveiki, hettusótt, kíghósti, mænusótt,
mislingar, rauðir hundar og stífkrampi.
Fyrr í vor var lögð fram á Alþingi til-
laga til þingsályktunar um skipan starfs-
hóps er kanni tilhögun bólusetninga
barna.8 Tillagan sýnist eiga rætur að rekja
til þeirrar almennu umræðu sem áður
er getið um auk þess sem hún vísaði til
fyrirspurnar til heilbrigðisráðherra um
bólusetningar barna.9 Í tillögunni er lagt til
að heilbrigðisráðherra skipi starfshóp sem
kanni tilhögun bólusetninga barna, leggi
mat á þörf fyrir úrbætur og geri tillögur
um framkvæmd þeirra. Lagt er til að sér-
staklega verði hugað að gerð fræðsluefnis
um bólusetningar og dreifingu þess.
Óvíst er um afdrif þessarar tillögu,
því þetta er þingmannatillaga, og jafn-
vel líklegra en ekki að hana dagi uppi. En
vinna af þessu tagi er löngu tímabær. Til
viðbótar sýnist full ástæða til að hefja um-
ræðu hér á landi af fullri alvöru um það
hvort ástæða sé til að gera bólusetningar
að skyldu. Skyldan gæti verið almenn eða
afmörkuð með þeim hætti til dæmis að
börn fengju ekki pláss í daggæslu nema
bólusett. Slíkar reglur hafa verið settar
víða erlendis, bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum. Sjálfsagt munu ýmsir telja reglur
brot á friðhelgi einkalífs sem er varið af
1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Hafa
þarf þá hugfast að friðhelgi einkalífs má
takmarka ef brýna nauðsyn ber til vegna
réttinda annarra, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Skylda til bólusetninga virðist geta fallið
undir þá undanþágu. Það er varla boðlegt
á 21. öld að upp komi á ný faraldrar smit-
sjúkdóma af þeirri ástæðu einni að for-
eldrar láta ekki bólusetja börnin sín.
Heimildir
1. landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/bolusetningar/
2. Offit PA. The Anti-Vaccination Epidemic. Whooping
cough, mumps and measles are making an alarming
comeback, thanks to seriously misguided parents. Wall
Str J 2014; 24 sept.
3. Wakefield Aj, Murch SH, Anthony A, Linnell J, Casson
DM, Malik M, et al. Ileal-lymphoid-nodular hyperplasia,
non-specific colitis, and pervasive developmental disor-
der in children. Lancet 1998; 351: 637-41. RETRACTET.
4. Germany measles: Toddlers death fuels compulsory
vaccination debate: http://www.bbc.com/news/world-
europe-31585047 – maí 2015.
5. Bólusetning eina öryggið gegn hettusótt. mbl.is/frettir/
innlent/2015/05/23/bolusetning_eina_oryggid/ - maí 2015.
6. Ályktun stjórnar LÍ um bólusetningar barna frá 16. mars
2015. lis.is/lis/Frettir/nanar/8327/alyktun-stjornar-laekna-
felags-islands-um-bolusetningar-barna- maí 2015.
7. Tillaga til þingsályktunar um skipan starfshóps er kanni
tilhögun bólusetninga barna: althingi.is/altext/144/s/1046.
html. - maí 2015.
8. Svar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu
Sigmundsdóttur um bólusetningar barna: althingi.is/
altext/pdf/144/s/0944.pdf. - maí 2015.