Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 24
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð 1. október 2014, í
víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins, við sameiningu Heilbrigðis-
stofnunar Suð-Austurlands (HSSa), Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
(HSu) og Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSVe). Formleg
sameining tók gildi 1. janúar 2015. Heildarframlag til HSU á fjárlögum
2015 er um 3,6 milljarðar króna og hjá stofnuninni starfa ríflega 500
manns. Fjöldi íbúa í umdæminu eru um 26.000 manns. Hlutverk HSU er
að leggja grunn að skipulagi almennrar heilbrigðisþjónustu og tryggja
íbúum í heilbrigðisumdæmi Suðurlands og öðrum þjónustuþegum, s.s.
ferðamönnum á svæðinu, jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu
sem á hverjum tíma er tök á að veita.
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 60%. Laun eru samkvæmt gildandi
kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Ómar Ragnarsson, yfirlæknir Heilsugæslunni Hveragerði
netfang: omar.ragnarsson@hsu.is og Hjörtur
Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga, netfang:
hjortur.kristjansson@hsu.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2015
Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Umsókn óskast fyllt út á umsóknarblað á www.hsu.is og
henni þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun,
starfsleyfi, fyrri störf og reynslu.
Umsóknum er skilað rafrænt á hsu@hsu.is
Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um
nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og
stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af
greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Við erum að leita að metnaðarfullum liðsmanni til
starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands – nánar tiltekið
á Heilsugæsluna í Hveragerði. Starfið veitist frá 1.
september 2015 eða eftir samkomulagi.
Sérfræðilæknir í
heimilislækningum
í Hveragerði
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Þátttaka í vaktþjónustu heimilislækna á HSU/Selfossi
• Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt sérfræðileyfi í heimilislækningum
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
• Góð reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
• Breið þekking og reynsla