Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 34
322 LÆKNAblaðið 2015/101 ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Ný reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi var birt þann 21. maí síðastliðinn og er þar að finna ýmsar veigamiklar breyt- ingar frá fyrri reglugerð sem að mestu leyti hefur staðið óbreytt frá 1988. „Þessar breytingar eru löngu tímabærar,“ segja þau Óskar Reykdalsson og Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir en þau sátu í nefnd- inni sem heilbrigðisráðherra skipaði á fyrri hluta árs 2013 til að endurskoða gildandi reglugerð. „Í kjölfar nýrra heilbrigðislaga sem Alþingi samþykkti 2013 hafa verið gefnar út nýjar reglugerðir um nær allar 33 heil- brigðisstéttirnar sem þar eru tilgreindar. Reglugerðin um lækningaleyfin var einna flóknust og því skiljanlegt að lengstan tíma hafi tekið að fullgera hana,“ segir Óskar sem var formaður nefndarinnar, skipaður af ráðherra. Þórdís Jóna var til- nefnd af framhaldsmenntunarráði Land- spítala en auk þeirra voru í nefndinni Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands, Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir, tilnefndur af læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Há- skóla Íslands, Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir, tilnefndur af Emb- ætti landlæknis, og Guðrún W. Jensdóttir lögfræðingur í velferðarráðuneytinu sem var starfsmaður nefndarinnar. Skýr krafa um marklýsingar sérnáms „Meginbreytingin hvað varðar skilyrði til veitingar sérfræðileyfa er að nú er gerð skýr krafa um innihald og framvindu sér- námsins í stað þess að áður var einungis krafist tíma á deild til að öðlast sérfræð- ingsréttindin,“ segir Þórdís Jóna. „Íslensk- ir læknar hafa þó nánast undantekningar- laust stundað sérnám sitt á mjög þekktum og viðurkenndum háskólasjúkrahúsum erlendis en krafan um skipulagt sérnám er í samræmi við kröfur landanna í kringum okkur og því tímabært að okkar kröfur væru færðar til samræmis við það. Þetta misræmi varð til þess að erlendir sérnáms- læknar gátu sótt um sérfræðiviðurkenn- ingu hér á Íslandi sem síðan var tekin gild í heimalandi þeirra þó kröfurnar þar væru aðrar um tímalengd sérnámsins og skipulag þess,“ segir Þórdís Jóna. Í nýju reglugerðinni er lokað fyrir þennan möguleika þar sem í 7. grein hennar segir: Umsækjandi um sérfræðileyfi í sérgrein og undirsérgrein innan læknisfræði skal fyrst hafa hlotið sérfræðileyfi í því ríki þar sem sérnámið eða meirihluti sérnáms fór fram og þar sem sérnámi lauk. „Einnig er gerð skýr krafa um að sérnámið fari fram á viðurkenndri heilbrigðisstofnun þar sem mats- og hæfisnefnd, skipuð af ráðherra sam- kvæmt tilnefningum Læknafélags Íslands, læknadeildar HÍ og Embættis landlæknis, metur hæfi heilbrigðisstofnunar til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnun fyrir starfsnám til lækningaleyfis og til að annast sérnám,“ segir Óskar og segir þetta mikilvæga breytingu frá ákvæðum fyrri reglugerðar. „Það verður síðan hlutverk þessarar nefndar að setja niður kröfur um innihald og marklýsingar sérnáms til að það teljist fullgilt og þetta á við bæði um sérnám sem stundað er erlendis og hér heima þar sem boðið er uppá fyrrihluta sérnáms í nokkrum sérgreinum. Í einstaka til- vikum hafa læknar jafnvel alfarið stundað sérnámið hér heima og á það einkum við í heimilislækningum og geðlækningum,“ segir Þórdís Jóna. Skýrari kröfur um innihald og marklýsingar „Þessar breytingar eru löngu tímabærar,“ segja þau Óskar Reyk- dalsson og Þórdís Jóna Hrafnkels- dóttir um nýútkomna reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.