Læknablaðið - 01.06.2015, Síða 34
322 LÆKNAblaðið 2015/101
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Ný reglugerð um menntun, réttindi og
skyldur lækna og skilyrði til að hljóta
almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi
var birt þann 21. maí síðastliðinn og er
þar að finna ýmsar veigamiklar breyt-
ingar frá fyrri reglugerð sem að mestu
leyti hefur staðið óbreytt frá 1988.
„Þessar breytingar eru löngu tímabærar,“
segja þau Óskar Reykdalsson og Þórdís
Jóna Hrafnkelsdóttir en þau sátu í nefnd-
inni sem heilbrigðisráðherra skipaði á
fyrri hluta árs 2013 til að endurskoða
gildandi reglugerð.
„Í kjölfar nýrra heilbrigðislaga sem
Alþingi samþykkti 2013 hafa verið gefnar
út nýjar reglugerðir um nær allar 33 heil-
brigðisstéttirnar sem þar eru tilgreindar.
Reglugerðin um lækningaleyfin var einna
flóknust og því skiljanlegt að lengstan
tíma hafi tekið að fullgera hana,“ segir
Óskar sem var formaður nefndarinnar,
skipaður af ráðherra. Þórdís Jóna var til-
nefnd af framhaldsmenntunarráði Land-
spítala en auk þeirra voru í nefndinni
Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir,
tilnefnd af Læknafélagi Íslands, Pálmi
V. Jónsson öldrunarlæknir, tilnefndur af
læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Há-
skóla Íslands, Sigurður Guðmundsson
smitsjúkdómalæknir, tilnefndur af Emb-
ætti landlæknis, og Guðrún W. Jensdóttir
lögfræðingur í velferðarráðuneytinu sem
var starfsmaður nefndarinnar.
Skýr krafa um marklýsingar sérnáms
„Meginbreytingin hvað varðar skilyrði til
veitingar sérfræðileyfa er að nú er gerð
skýr krafa um innihald og framvindu sér-
námsins í stað þess að áður var einungis
krafist tíma á deild til að öðlast sérfræð-
ingsréttindin,“ segir Þórdís Jóna. „Íslensk-
ir læknar hafa þó nánast undantekningar-
laust stundað sérnám sitt á mjög þekktum
og viðurkenndum háskólasjúkrahúsum
erlendis en krafan um skipulagt sérnám er
í samræmi við kröfur landanna í kringum
okkur og því tímabært að okkar kröfur
væru færðar til samræmis við það. Þetta
misræmi varð til þess að erlendir sérnáms-
læknar gátu sótt um sérfræðiviðurkenn-
ingu hér á Íslandi sem síðan var tekin
gild í heimalandi þeirra þó kröfurnar þar
væru aðrar um tímalengd sérnámsins og
skipulag þess,“ segir Þórdís Jóna.
Í nýju reglugerðinni er lokað fyrir
þennan möguleika þar sem í 7. grein
hennar segir: Umsækjandi um sérfræðileyfi
í sérgrein og undirsérgrein innan læknisfræði
skal fyrst hafa hlotið sérfræðileyfi í því ríki þar
sem sérnámið eða meirihluti sérnáms fór fram
og þar sem sérnámi lauk.
„Einnig er gerð skýr krafa um að
sérnámið fari fram á viðurkenndri
heilbrigðisstofnun þar sem mats- og
hæfisnefnd, skipuð af ráðherra sam-
kvæmt tilnefningum Læknafélags Íslands,
læknadeildar HÍ og Embættis landlæknis,
metur hæfi heilbrigðisstofnunar til að
öðlast viðurkenningu sem kennslustofnun
fyrir starfsnám til lækningaleyfis og til
að annast sérnám,“ segir Óskar og segir
þetta mikilvæga breytingu frá ákvæðum
fyrri reglugerðar.
„Það verður síðan hlutverk þessarar
nefndar að setja niður kröfur um innihald
og marklýsingar sérnáms til að það teljist
fullgilt og þetta á við bæði um sérnám
sem stundað er erlendis og hér heima
þar sem boðið er uppá fyrrihluta sérnáms
í nokkrum sérgreinum. Í einstaka til-
vikum hafa læknar jafnvel alfarið stundað
sérnámið hér heima og á það einkum við
í heimilislækningum og geðlækningum,“
segir Þórdís Jóna.
Skýrari kröfur um innihald og marklýsingar
„Þessar breytingar eru löngu
tímabærar,“ segja þau Óskar Reyk-
dalsson og Þórdís Jóna Hrafnkels-
dóttir um nýútkomna reglugerð um
menntun, réttindi og skyldur lækna
og skilyrði til að hljóta almennt
lækningaleyfi og sérfræðileyfi.