Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 59
LÆKNAblaðið 2014/100 555
Forðalyf eru venjulega þróuð í tvenns kon-
ar tilgangi. Til að gefa megi lyfið sjaldnar
og til að draga úr aukaverkunum. Í flestum
tilfellum er miðað við að hæfilegt sé að
gefa lyfið einu sinni á dag sem getur bætt
meðferðarheldni. Forðalyf eins og Ritalin
Uno, Concerta og Methylphenidate Sandoz
eru hönnuð til að takast inn að morgni og
endast allan daginn. Einstaka sjúklingar
þola illa að taka allan dagsskammtinn að
morgni og það má leysa með því að skipta
dagsskammtinum milli morguns og há-
degis. Að bæta við þriðja skammtinum síð-
degis er tæplega réttlætanlegt og útheimtir
sérstakar skýringar.
Hvenær sólarhrings?
Dægursveiflulyfjafræði (chronopharmaco-
logy, chronotherapeutics) fjallar um það
hvenær sólarhrings best er að gefa til-
tekið lyf til að fá besta verkun og minnst
af aukaverkunum. Vitað er að verkanir,
lyfjahvörf og aukaverkanir margra lyfja eru
háðar dægursveiflu. Þar kemur margt til
og má nefna dægursveiflu í tjáningu við-
taka, hormónastarfsemi, frásogi, tjáningu
ensíma, nýrnastarfsemi og fleira. Það getur
skipt miklu fyrir árangur meðferðar og
aukaverkanir hvenær dags sum lyf eru
gefin og má þar nefna sem dæmi svefnlyf,
örvandi lyf, barkstera, sum krabbameins-
lyf og kalsíumgangaloka. Stundum er
hægt að fletta þessum upplýsingum upp í
handbókum en stundum þarf að prófa sig
áfram. Ein aukaverkun af rangri tímasetn-
ingu á töku örvandi lyfja er svefnleysi og í
kjölfarið óþörf notkun svefnlyfja.
Sérlyfjaskráin
Líta má á Sérlyfjaskrána sem eins konar
klínískar leiðbeiningar. Hana er að finna á
aðgengilegu formi á vef Lyfjastofnunar og
fletta má upp í henni á ýmsan hátt. Hægt
er að fletta upp eftir samheiti, sérheiti eða
ATC-flokki og hægt er að fá upp lista yfir
lyf með sambærilega verkun. Í samantekt
um eiginleika (SmPC) eru upplýsingar sem
eru vandlega unnar og yfirfarnar af sér-
fræðingum hjá Lyfjastofnun eða Lyfjastofn-
un Evrópu (EMA) og þessum upplýsingum
á að vera hægt að treysta. Heilbrigðisstarfs-
menn sem vinna með lyf eru hvattir til að
nýta sér Sérlyfjaskrána til hins ýtrasta.
Lyf með svipaða verkun
Stundum eru gefin saman tvö eða jafnvel
fleiri lyf með sambærilega verkun. Í mörg-
um tilfellum er ávinningurinn vafasamur.
Stundum er röksemdafærslan sú að verkun
annars lyfsins komi fljótt og standi stutt en
verkun hins lyfsins standi lengur. Þetta er
oftast byggt á hæpnum grunni. Svipað má
segja um það þegar gefin eru tvö lyf með
svipaða verkun í þeim tilgangi að draga
úr hættu á þolmyndun og/eða ávana. Sem
dæmi um þetta síðasta má taka róandi-,
kvíðastillandi- og svefnlyf (ATC-flokkana
N05B og N05C). Öll þessi lyf hafa í raun
svipaða verkun á boðefni og viðtaka í mið-
taugakerfinu og telja má víst að ávanabind-
ing og þolmyndun gerist með sama hætti.
Vélskömmtun, skammtaöskjur
og meðferðarsamband
Vélskömmtun lyfja getur verið góð lausn
fyrir vissa sjúklinga, einkum aldraða,
fatlaða eða aðra sem eiga erfitt með dag-
legar athafnir. Sama gildir um afgreiðslu í
skammtaöskjur. Þegar skömmtunarlyfseðill
er gefinn út gildir hann í eitt ár nema ann-
að sé tekið fram og mikilvægt er að allir
geri sér grein fyrir því. Nokkuð hefur borið
á því að meðferðarsambandi sé ábótavant
og skömmtun jafnvel endurnýjuð ár eftir
ár án þess að ástand sjúklings sé kannað á
fullnægjandi hátt. Einnig er nokkuð um að
ávanabindandi lyf séu afgreidd samtímis
í skömmtun og með stökum lyfseðlum en
slíkt getur verið vísbending um lyfjafíkn
eða sölu lyfja. Sum lyf á ekki að nota nema
í takmarkaðan tíma en fyrir kemur að þau
eru sett í vélskömmtun eða ávísað endur-
tekið í langan tíma. Á sumum hjúkrunar-
heimilum hefur verið ráðist í átak til að
taka á þessu og má nefna að sjúklingum
fækkaði úr 987 einstaklingum árið 2011
í 833 árið 2013 sem skráðir voru í vél-
skömmtun fyrir zópíklón.
Gleymast sjúklingar á lyfjum?
Þekkt eru fjölmörg dæmi um að sjúklingar
„gleymast“ á lyfjum. Þetta gerist meðal
annars á þann hátt að lyf er gefið í sjúkra-
húslegu, eftir rannsókn eða aðgerð. Sjúk-
lingurinn er síðan útskrifaður á lyfinu til
hálfs eða heils árs og að þeim tíma liðnum
er lyfjaávísunin endurnýjuð án þess að fari
fram endurskoðun á þörf fyrir lyfið. Þetta
getur einnig gerst með ýmsum öðrum
hætti. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk
sé vakandi fyrir þessu, heildarendurskoð-
un lyfjagjafa sé gerð reglulega en með því
móti er hægt að spara fjármuni og forða
sjúklingum frá ýmis konar óþægindum.
Töflur muldar
Sumir sjúklingar eiga erfitt með að gleypa
töflur og hylki og stundum er hægt að
mylja töflur eða opna hylki til að auðvelda
inntöku. Þetta má þó alls ekki gera nema
viðkomandi hafi öruggar upplýsingar um
að það megi. Þegar um er að ræða forða-
lyf eða lyf sem eru varin fyrir magasýru
má sjaldan meðhöndla töflur og hylki á
þennan hátt, að öðrum kosti getur slík
meðferð á lyfjunum leitt til þess að lyfið
missi virkni sína, tapi forðavirkninni eða
fram komi aukaverkanir til dæmis frá
vélinda eða maga. Upplýsingar um þetta er
oftast að finna í Sérlyfjaskrá.
Lyf eru öflug tæki til lækninga en geta
verið hættuleg ef þau eru ekki notuð af
skynsemi.
Embætti landlæknis hlutast yfirleitt ekki
til um meðferð einstakra sjúklinga en veitir
upplýsingar og fræðslu eins og gert er í
þessum pistlum.
Skynsamleg notkun lyfja
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir.is
Ólafur b. Einarsson
sérfræðingur
lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
leifur bárðarson
læknir
F R Á E M b æ T T i l a n D l æ k n i S 6 . p i s t i l l
13,5 MG LEVONORGESTREL
Ég hef ekki
verið á pillunni í
og samt verið yfir 99% örugg
um að verða ekki þunguð
2 ár, 3 mánuði
og 4 daga
1. Gemzell-Danielsson K, et al. Fertil steril 2012; (97): 616-622. e3.
Upplýsa ber notendur um hættu
á utanlegsfóstri og einkenni þess
Ný getnaðarvörn
Jaydess® er smálykkja sem veitir
örugga vörn gegn þungun í allt að 3 ár
Lítil og auðveld í uppsetningu1
Lítið magn hormóna og verkun að
mestu staðbundin
Rannsökuð hjá konum sem hafa fætt
barn sem og þeim sem ekki hafa fætt
barn
-Jaydess® er ekki fyrsta val fyrir
konur sem ekki hafa fætt barn,
vegna takmarkaðrar klínískrar
reynslu
L.
IS
.0
5
.2
0
14
.0
0
70
Skannaðu QR kóðann
eða farðu inn á smalykkjan.is
til að nálgast rafrænar
upplýsingar