Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 549 & Victoza (líraglútíð) leiðir til allt að:1 1,5% lækkunar á HbA1c frá 8,4 % HbA1c til 6,9 % HbA1c 3,7 kg þyngdartaps Magi Victoza seinkar magatæmingu og veitir því aukna mettunartilnningu. 2,3 Briskirtill Victoza virkjar betafrumurnar sem losa insúlín þegar blóðsykur er hár. 2,3 Lifur Victoza hamlar seytingu glúkagons og dregur úr útskilnaði glúkósa frá lifur. 2,3 Matarlyst Victoza dregur úr matarlyst, sem leiðir til minnkaðrar fæðuneyslu. 2 líraglútíð U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Samninganefnd LÍ hefur fundað nokkuð þétt með Samninganefnd ríkisins undan- farnar vikur hjá Sáttasemjara ríkisins og kveðst Sigurveig Pétursdóttir formaður samninganefndar LÍ vonast til þess að niðurstaða fáist áður en langt um líður. „Þetta leit ekki gæfulega út í byrjun þar sem okkur var einfaldlega boðin 2,8% grunnlaunahækkun yfir línuna og samninganefnd ríkisins leit ekki einu sinni á kröfugerð okkar. Það var því ekki um annað að ræða en vísa deilunni til sáttasemjara og í framhaldinu hafa viðsemjendur ljáð máls á því að semja á raunhæfari nótum.“ Sigurveig segir samningaferlið á því stigi að ómögulegt sé að nefna einhverjar prósentur eða launatölur. „Grunnkröfur okkar snúa að grunnkaupshækkunum og ýmsum leiðréttingum þar að lútandi. Þar er annars vegar um að ræða hluti sem hafa verið utan við grunnlaun og við viljum fá þar inn. Einnig ýmis atriði sem ágreiningur hefur staðið um; ólík túlkun á ákvæðum samninganna sem skapað hefur núning á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu öllu viljum við skerpa á svo hafið sé yfir mismunandi túlkun. Þarna er um að ræða hvíldartímaákvæði, vaktahámark á spítölunum og hámarksfjölda sjúklinga lækna innan heilsugæslunnar.“ Sigurveig segir ljóst að nýr samningur verði gerður til lengri tíma. „Ef við náum samningi á annað borð,“ segir hún og kveðst hóflega bjartsýn. „Viðsemjendur okkar gera sér fulla grein fyrir því að við svo búið má ekki standa. Markmið okkar er tvíþætt. Annars vegar að ná þannig samningi að læknar geti sæmilega vel við unað. Hins vegar verður þessi samningur að vera þannig að íslenskir læknar búsettir erlendis geti hugsað sér að koma heim. Í dag er ítrekað verið að auglýsa sér- fræðilæknastöður og enginn sækir um. Stundum sækir jú einn um. Hvorugt er ásættanlegt. Bjartsýni mín varðandi ásætt- anlega niðurstöðu byggir á því að stjórn- völd gera sér ágætlega grein fyrir stöðunni sem blasir við. Og henni verður ekki snúið við nema með því að bæta kjör lækna og reyndar líka að bæta starfsaðstöðuna en okkar hlutverk í samninganefndinni er ekki að byggja nýjan spítala svo við ein- beitum okkur að laununum.“ Þó ekki sé hægt að nefna prósentutölur á þessu stigi er ljóst að verið er að ræða hækkanir umfram þau 2,8% sem boðin voru í byrjun. „Annars værum við einfald- lega ekki að tala saman,“ segir Sigurveig. Hún kveðst vongóð um að niðurstaða liggi fyrir áður en langt um líður þar sem samningar annarra aðila vinnumarkaðar- ins verði lausir um áramót og í byrjun næsta árs og samninganefnd ríkisins því talsvert í mun að ljúka samningum við lækna svo hún geti snúið sér að öðrum. „Skyldi maður ætla,“ segir hún og bætir því við af festu að ekki verði samið bara til að semja. „Við ætlum okkur að ná fram okkar helstu markmiðum og þrátt fyrir bjartsýni erum við jafnframt tilbúin með plan B ef samningar nást ekki. Verkfall er vopn sem við viljum ekki beita nema við séum þvinguð til þess. En verkfallsréttur- inn er til staðar og verkfall lækna myndi hafa veruleg áhrif á heilbrigðiskerfið, öll sjúkrahús landsins og heilsugæsluna einnig. Langtímaáhrifin á heilbrigðiskerfið ef ekki næst samningur núna yrðu þó versta afleiðingin þar sem læknar myndu eflaust flytja af landi brott í meira mæli en þegar er. Ungu læknarnir geta horfið með stuttum fyrirvara þar sem uppsagnar- frestur þeirra er aðeins einn mánuður. Staðan er því mjög alvarleg og við vonum í lengstu lög að niðurstaðan verði þannig að sem flestir geti sætt sig við hana,“ segir Sigurveig Pétursdóttir formaður samn- inganefndar LÍ. segir Sigurveig Pétursdóttir formaður samninganefndar LÍ Vonumst eftir ásættanlegri niðurstöðu „Við ætlum okkur að ná fram okkar helstu markmiðum og þrátt fyrir bjartsýni erum við jafnframt tilbúin með plan B ef samningar nást ekki,“ segir Sigurveig Pétursdóttir for- maður samninganefndar Læknafélags Íslands. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.