Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 50
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Það var þétt setinn bekkurinn við setn-
ingu aðalfundar Læknafélags Íslands
fimmtudaginn 25. september síðast-
liðinn. Greinilegt að læknar hugðu gott
til glóðarinnar að eiga skoðanaskipti við
ráðherra heilbrigðismála, Kristján Þór
Júlíusson, sem hafði boðað komu sína á
fundinn.
Af þeim fjölmörgu málum sem brenna
á íslenskri læknastétt þetta haustið ber
launamálin hæst en málefni þjóðar-
sjúkrahússins, Landspítalans, vega þó
síst minna; ástand húsnæðisins, slæm
vinnuaðstaða, undirmönnun, úr sér geng-
inn tækjakostur svo það helsta sé nefnt af
því sem læknar telja hindra sig eða tefja
í að sinna faglegum skyldum gagnvart
sjúklingum sínum.
Ráðherrann hvatti lækna til að vera
jákvæða og líta á björtu hliðarnar og sagði
engum til góðs að mála skrattann á vegg-
inn en tók þó fram að með þeim orðum
ætti hann fremur við stjórnmálamenn en
lækna.
Margoft varað við þróuninni
Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags
Íslands hóf fundinn með yfirlitstölu um
hvernig hann sem formaður Læknaráðs
Landspítalans og síðar formaður Lækna-
félagsins ásamt öðrum talsmönnum lækna
hefðu ítrekað komið fram í fjölmiðlum á
umliðnum árum og varað við þeirri þróun
sem nú væri orðin að staðreynd með við-
varandi læknaskorti í mörgum spítalasér-
greinum og ekki síður heilsugæslunni.
Hann lagði áherslu á að ef læknar ættu að
fást til starfa yrði að bæta launakjör þeirra
og gera þau samkeppnishæfari við þau
laun sem bjóðast annars staðar.
Ekki alltaf samkeppnisfær
Kristján Þór velferðarráðherra hóf mál sem
með því að hvetja til hófsemi í tjáningu
um málefni heilbrigðiskerfisins og sagði:
„ Mér finnst hins vegar mikilvægt að þeir
sem best þekkja til, þ.e.a.s. heilbrigðisyfir-
völd, heilbrigðisstarfsfólk og stjórnmála-
menn, reyni eftir bestu getu að draga upp
sanna mynd af þeim aðstæðum sem eru
til umfjöllunar hverju sinni – máli ekki
skrattann á veginn til að þjóna eigin hags-
munum en vekja um leið ótta í hugum
þeirra sem við eigum að þjóna.“
Varðandi launakjör lækna og heilbrigð-
isstarfsfólks almennt sagði Kristján Þór:
„Því miður erum við sem þjóð ekki alltaf
samkeppnisfær við önnur og stærri lönd
til að mynda hvað varðar launakjör fyrir
þessi störf. En þar eigum við að gera betur
og þurfum að gera það til að standast
samkeppnina sem við blasir.”
Ráðherrann ræddi einnig byggingu nýs
Landspítala og sagði vilja Alþingis birtast
í einróma samþykkt þingsályktunartillögu
um endurnýjun og uppbyggingu Land-
spítalans á síðasta þingi. „Ég geri mér
vonir um að tillögur um hvernig best sé
staðið að málum Landspítalans líti dagsins
ljós fyrri hluta komandi ár.”
Flutningsstyrkur og skattaafsláttur
Þá sagði ráðherrann eflingu heilsugæsl-
unnar forgangsmál og kvað þau sjónarmið
sín birtast skýrt í áætluninni Betri heil-
brigðisþjónusta sem gefin hefði verið út og
má lesa á vef velferðarráðuneytisins. Ræðu
ráðherrans í heild má einnig lesa þar.
Í umræðum lækna við ráðherrann í
kjölfar ræðunnar var ljóst að þolinmæði
læknastéttarinnar eru takmörk sett og
langlundargeð ekki síður. Allir þeir er
tóku til máls voru einhuga um að við svo
búið mætti ekki standa ef ekki ætti að
stefna í algjört óefni á þessu hausti. Bent
var á að starfsmönnum Fiskistofu væri
boðinn þriggja milljóna króna styrkur
ef þeir vildu flytja til Akureyrar, en
aldrei hefðu íslensk stjórnvöld ljáð máls
á greiðslu flutningsstyrk eða skattaaf-
sláttar til íslenskra lækna ef og þegar þeir
vildu flytjast heim eftir langt sérnám. Á
hinn bóginn byðist íslenskum læknum
skattaafsláttur ef þeir flyttust frá Íslandi til
Norðurlandanna.
Flótti lækna frá Landspítalanum var
einnig tíundaður og bent á að ekki væri
eingöngu um að ræða flutning þeirra af
landi brott heldur færðist sífellt í vöxt
að læknar minnkuðu starfshlutfall sitt á
spítalanum til þess ýmist að starfa sjálf-
stætt á stofu eða færu einfaldlega heim í
stofu og sinntu þaðan myndgreiningum
og ráðgjafarstarfi fyrir erlend sjúkrahús.
Kandídatar sækja ekki um
Þegar nokkuð var liðið á umræður stóð
Daði Helgason formaður félags 6. árs
læknanema upp og afhenti ráðherra
undirskrifaða yfirlýsingu nær allra 6. árs
læknanema þess efnis að þeir muni ekki
sækja um störf á íslenskum heilbrigðis-
stofnunum næsta vor ef ekki verður samið
um hækkun grunnlauna fyrir 1. júní 2015.
Hvert stefna íslenskir læknar?
Aðalfundur Læknafélags Íslands 2014
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Fjölmennt var við setningu fundarins og mörgun heitt í hamsi um ástand heilbrigðiskerfisins.
546 LÆKNAblaðið 2014/100
Nokkrar ályktanir voru samþykktar
á fundinum, meðal annars um að
félagið fordæmi stríðsátök og ófrið þar
sem börn og saklausir borgarar líða,
um skipulagsmál, kosningar og fyrir-
komulag aðildarfélaga LÍ, um að skipa
5 manna nefnd sem gerir tillögur að
því hvernig minnst verður 100 ára
afmælis félagsins 2018, og stjórnin
fékk leyfi aðalfundar til að sækja um
og hefja undirbúning að því að halda
aðalfund Alþjóðasamtaka lækna
(WMA) hér haustið 2018.