Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2014/100 529 Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S ur fyrst og fremst vegna breytinga á mannfjölda, og hins vegar rannsókn á heilsufari 32.000 fullorðinna einstaklinga sem höfðu greinst með krabbamein á barns- eða unglingsaldri. Norðurlönd- in bjóða upp á einstök tækifæri til stórra eftirfylgdarrannsókna vegna kennitölu og einstakra heilsufarsskráa. ANCR rekur Nor- ræna sumarskólann í faraldsfræði krabbameina sem er að mestu fjármagnaður af norrænu krabbameinssamtökunum (NCU). Þar hafa nokkrir tugir íslenskra lækna- og líffræðinema stundað nám með góðum árangri. Ísland tekur þátt í NORDCAN verkefninu en á heimasíðu þess (www.ancr.nu) er hægt að skoða og bera saman upplýsingar um krabbamein á Norðurlöndunum, meðal annars sem línurit og töflur og gera margvíslegar fyrirspurnir. NORD- CAN grunnurinn er auðveldur í notkun og aðgengilegur öllum á netinu. Krabbameinsskráin hefur tekið þátt í EUROCARE lifunar- verkefninu í yfir tvo áratugi og því er hægt að bera saman horfur íslenskra og evrópskra krabbameinssjúklinga. Í rannsóknum Krabbameinsskrárinnar hefur meðal annars verið lögð áhersla á áhrif erfða og umhverfis, meinafræði krabba- meina, lýsandi faraldsfræði og horfur krabbameinssjúklinga. Stór- an sess skipa rannsóknir á áhrifum BRCA2-stökkbreytingarinnar en á því sviði getur Ísland komið með einstakt framlag.10,11 Einnig hafa verið gerðar umfangsmiklar rannsóknir á forspárþáttum og meinafræði.12,13 Loks sér skráin um eftirfylgd kvenna sem tóku þátt í fjölþjóðlegri rannsókn á langtímaáhrifum bóluefnis gegn leghálskrabbameini og tekur þátt í rannsóknum tengdu því verk- efni.14 Sérfræðingar skrárinnar hafa síðustu áratugi leiðbeint fjölda nemenda á háskólastigi í lokaverkefnum og öðrum rannsóknar- verkefnum sem byggjast á gögnum skrárinnar. Krabbameins- skráin liggur til grundvallar yfir 500 birtum vísindagreinum15 sem bæði byggjast á rannsóknum starfsmanna skrárinnar og aðila utan hennar,16 en skráin gegnir þjónustuhlutverki varðandi aðgang að lýðgrunduðum gögnum til krabbameinsrannsókna. Vönduð krabbameinsskráning er einkar mikilvæg fyrir lýð- heilsu því hún er grunnur faraldsfræðilegra rannsókna á orsökum krabbameina en þær eru aftur forsenda forvarna gegn krabba- meinum. Lýðgrunduð krabbameinsskráning er einnig mikilvæg fyrir rannsóknir á horfum sjúklinga og á gæðum þjónustunnar auk þess að vera forsenda þess að stjórnvöld geti fengið upplýs- ingar um áætlaðan fjölda krabbameinsgreindra í framtíðinni. Styrkir til krabbameinsrannsókna Samtök norrænna krabbameinsfélaga, Nordisk Cancer Union (NCU), hófu árið 1960 að veita ferðastyrki fyrir vísindamenn til að kynna sér nýjungar á sviði krabbameinsrannsókna og féll styrkurinn í skaut Íslendings fimmta hvert ár. Síðar varð til sam- keppnissjóður NCU sem veitir veglega styrki í samnorrænar krabbameinsrannsóknir, nú að heildarupphæð 1 milljón evra ár- lega. Undanfarna áratugi hefur Krabbameinsfélagið veitt styrki til krabbameinsrannsókna á Íslandi og er nú stefnt að eflingu þeirra með nýjum sjóði. Tóbaksvarnir Lungnakrabbamein var afar sjaldgæfur sjúkdómur áður en sígar- ettureykingar urðu almennar, en snemma á 20. öld fór að bera á faraldri lungnakrabbameins hjá karlmönnum víða um hinn vestræna heim. Um miðja öldina komu fram hugmyndir um að faraldurinn gæti tengst mikilli aukningu sígarettureykinga hjá karlmönnum17 og var þessi grunur staðfestur með faraldsfræði- legum rannsóknum.18 Níels Dungal ritaði þegar árið 1950 grein í Lancet þar sem hann spáði að vegna ört vaxandi reykinga á Íslandi yrði mikil aukning á nýgengi lungnakrabbameins næstu áratugi þótt enn væru reykingar íslenskra karla minni en í nágrannalönd- Suðurgata 22. Krabba- meinsfélagið eignaðist Suðurgötu 22 árið 1964 og Suðurgötu 24 árið 1970. Mynd Krabbameinsfélagið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.