Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 54
550 LÆKNAblaðið 2014/100
Röntgenlæknar fengu góða heimsókn
um miðjan september þegar þrír forystu-
menn í innleiðingu gæðaeftirlitskerfis í
myndgreiningu og röntgenrannsóknum
á Írlandi héldu fyrirlestra og námskeið
á Landspítalanum á vegum Félags ís-
lenskra röntgenlækna. Þetta voru þeir
Max F. Ryan, Adrian Brady og Barry
Kelly en þeir eru fyrirlesarar og sérfræð-
ingar við myndgreiningardeild Royal
College of Surgeons á Írlandi.
Þeir skiptu þannig með sér verkum að
Ryan og Brady héldu hvor sinn fyrir-
lesturinn en Kelly stýrði námskeiði fyrir
deildarlækna til undirbúnings fyrir Euro-
pean Board of Radiology.
Í fyrirlestri Ryans kom fram að frum-
kvæði að gæðaeftirlitskerfi á landsvísu á
Írlandi hafi komið frá Félagi írskra röntg-
enlækna og tilgangurinn hafi verið þrí-
þættur; að koma á fót stöðluðu gæðakerfi
undir forystu röntgenlækna, að byggja
upp gæðakúltúr, og tryggja umönnun og
öryggi sjúklinga með skjótum, nákvæm-
um og endanlegum myndgreiningum og
skýrslum.
Ryan setti þessi markmið í samhengi
með því að lýsa stöðunni eins og hún var
áður en hafist var handa við innleiðingu
gæðakerfisins.
„Það voru ekki til staðar formleg við-
mið til að sannfæra almenning um að
röntgensérfræðingar ynnu ávallt eftir
ítrustu kröfum, hvorki staðlar á landsvísu
né önnur viðmið í lykilþjónustu mynd-
greiningar. Þá komu upp mjög áberandi
tilfelli rangrar greiningar krabbameina
á Írlandi á árunum 2005-2009. Flest til-
fellin áttu við brjóstakrabbamein, þó röng
greining annarra krabbameina ætti sér
einnig stað.“
Kostirnir við innleiðingu gæðakerfisins
hafa verið ótvíræðir að sögn Ryans. Með-
ferð sjúklinga hefur batnað og almenn-
ingur fær sannreyndar staðfestingar á
gæðum myndgreiningarþjónustu. Þörfin
fyrir yfirlit aftur í tímann hefur minnkað
og ábendingar og samstarf um góð vinnu-
brögð aukist. Þá koma einnig fram ábend-
ingar um þau atriði sem þörf er á að bæta
og þróa og bætt samskipti milli stofnana
leiða til skipulegrar tengslamyndunar.
Loks nefnir Ryan að skilvirkari þjónusta
auki hagkvæmni og dragi úr kostnaði.
Mikilvægt að greina mynstur mistaka
Ryan sagði gæðakerfið samstarfsverkefni
Félags írskra röntgenlækna, Krabba-
meinsvarna Írlands (National Cancer
Control Programme) og heilbrigðisyfir-
valda á sviði sjúklingaöryggis og Konung-
lega læknaháskólans. (Royal College of
Physicians). Hann sagði forystu læknanna
lykilatriði í innleiðingu kerfisins og
áhersla væri lögð á innra eftirlit læknanna
sjálfra með því að beita skipulegu jafn-
ingjamati, umsögnum á greiningum og
gæðaeftirlitsfundum. Hindranir sem
komast hefði þurft yfir væru meðal annars
breytingar í forgangsröðun í hinu daglega
vinnuumhverfi til að koma gæðaeftirlitinu
að og ekki síður að tryggja trúnað í með-
ferð upplýsinga.
„Myndgreining er ekki hárnákvæm vís-
indi,“ sagði Ryan. „Í myndgreiningu felst
ákvarðanataka þar sem óvissa er ávallt
til staðar og mistök að einhverju leyti
eru óumflýjanleg. Innleiðing gæðakerfis
snýst um að draga úr líkum á mistökum
og rangri myndgreiningu að svo miklu
leyti sem það er í mannlegu valdi. Tíðni
mistaka meðal röntgenlækna í rauntíma í
daglegu starfi er að meðaltali 3-5%. Það er
ekki auðvelt að fá almenning til að sætta
sig við þessar tölur þó lágar séu. Mistök
hafa tilhneigingu til að endurtaka sig í
ákveðnum mynstrum og því er mikilvægt
að koma auga á mynstrin og benda á þau
í kennslu, rannsóknum og umfjöllun um
myndgreiningu.“
Ryan sagði í lok erindis síns að megin-
fyrirstaðan meðal írskra lækna væri ótti
við lögsóknir og að þeir treystu ekki fylli-
lega á nafnleysi upplýsinga sem safnað
væri og hægt væri að rekja tilfelli til ein-
staklinga í læknastétt. „Lagaumhverfið á
Írlandi er ekki nógu afgerandi hvað þetta
varðar og við höfum lagt áherslu á að
lögin taki af öll tvímæli um nafnleysi og
persónuvernd lækna til að hægt sé að inn-
leiða gæðakerfið á landsvísu með þátttöku
allra starfandi röntgenlækna á Írlandi.“
Mistök og ósamræmi
Brady nefndi fyrirlestur sinn Mistök
og ósamræmi í röntgenlækningum og
sagði skilin þarna á milli iðulega óljós
og misvísandi. „Mistök fela í sér ranga
niðurstöðu sem aftur felur í sér að rétt
niðurstaða sé möguleg. Skilgreining á mis-
Undirmönnun og óhóflegt
vinnuálag veldur mistökum
Segja írskir myndgreiningarsérfræðingar
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R