Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 20
516 LÆKNAblaðið 2014/100
Innlagnir á gjörgæsludeild
Farið var afturskyggnt yfir innlagnarskrár allra sjúklinga sem
legið höfðu á gjörgæsludeildum Landspítalans árin 2003-2007
og leitað upplýsinga um hugsanlega vímuefnanotkun. Ef grun-
ur vaknaði um slíkt voru sjúkraskrár einnig yfirfarnar. Leitað
var upplýsinga um sjúklinga sem höfðu verið lagðir inn vegna
eituráhrifa af vímuefnum, svo sem meðvitundarleysis, öndunar-
bilunar eða blóðrásarbilunar, en einnig vegna óbeinna áhrifa
vímuefnanotkunar, svo sem sýkingar eða fjöláverka. Safnað var
upplýsingum um aldur, kyn, ástæðu innlagnar, vímuefni sem
notuð voru, legutíma á sjúkrahúsi, gjörgæslumeðferð, sjúkdóms-
greiningu og afdrif. Einnig voru skráð APACHE II stig (Acute
Physiology and Chronic Health Evaluation) einstaklinga, en það
er stigunarkerfi fyrir sjúkdómsástand sjúklinga við innlögn á
gjörgæsludeild og gerir samanburð milli einstaklinga og sjúk-
lingahópa mögulegan.17 Til að kanna langtímahorfur var farið
yfir sjúkraskrár einstaklinga í lok ársins 2012 og kannað hvort
þeir væru lifandi eða látnir. Upplýsinga um dánarorsök var aflað
úr Dánarmeinaskrá Hagstofu Íslands. Haft var samband við
gjörgæslulækna Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri varðandi
innlagnir á gjörgæsludeild þar í tengslum við notkun vímuefna í
æð en að mati þeirra hafði ekki verið um slíkar innlagnir að ræða
á rannsóknartímabilinu.
Réttarefnafræðilegar rannsóknir
Farið var yfir niðurstöður réttarefnafræðilegra rannsókna á
Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði á árunum 2003-2007 og
greindir einstaklingar þar sem grunur var um notkun vímuefna
í æð. Vísbendingar sem stuðst var við voru stunguför greind við
krufningu, sprautur á vettvangi andláts, þekkt saga um vímu-
efnanotkun í æð, ólögleg ávana- og fíkniefni greind í lífsýnum,
metadon greint í lífsýnum, greind lifrarbólga C og andlát í fang-
elsi. Kannað var hvort þessir einstaklingar hefðu skráðar inn-
lagnir á Landspítala og þá farið yfir sjúkraskrár þeirra varðandi
þær innlagnir. Upplýsingar um dánarorsök var fengin úr Dánar-
meinaskrá Hagstofu Íslands.
Niðurstöður lyfjamælinga voru skráðar og voru lyf, vímu- og
eiturefni flokkuð á sama hátt og gert hefur verið í samnorrænum
rannsóknum á dauðsföllum vímuefnaneytenda4-7 en það er byggt
á flokkunarkerfi International Narcotics Control Board og er eftir-
farandi:
Flokkur I: Kókaín, fentanýl, heróín/morfín, metadon, kódein og trama-
dól.
Flokkur II: Amfetamín, metamfetamín, MDMA (ecstasy), metýlfenídat
og tetrahýdrókannabínól.
Flokkur III: Benzódíazepín, karísópródól/mepróbamat og zolpídem.
Flokkur IV: Öll önnur lyf og eiturefni, þar með talið etanól.
Ef um mörg efni var að ræða var það efni sem hafði lægsta
flokkunartölu talið orsök andláts, í samræmi við fyrri rannsóknir
sem stuðst hafa við þetta flokkunarkerfi.
Tölfræði
Upplýsingum var safnað í Microsoft Excel tölvuforritið (Microsoft
Corporation, Seattle, USA) og notast við lýsandi tölfræði. Niður-
stöður eru birtar sem fjöldi, hlutföll, meðaltal (± staðalfrávik) og
miðgildi (25.:75. hundraðsmark, bil).
Horfur einstaklinga eftir legu á gjörgæsludeild voru bornar
saman við dánartíðni aldurshóps 20-39 ára í þjóðfélaginu (www.
statice.is), sem samsvarar til meðalaldurs rannsóknarhópsins ±
eitt staðalfrávik.
Dánartíðni samkvæmt réttarfræðilegum rannsóknum á andlát-
um tengdum vímuefnanotkun í æð var reiknuð sem fjöldi látinna á
hverja 105 íbúa á aldursbilinu 15-59 ára. Upplýsingar umfjölda íbúa
á aldrinum 15-59 voru fengnar frá Hagstofu Íslands (www.statice.
is). Notast var við þetta aldursbil til þess að auðvelda samanburð
við sambærilegar erlendar rannsóknir.4-7
Niðurstöður
Innlagnir á gjörgæsludeild
Á rannsóknartímabilinu var árlegur meðalfjöldi innlagna á
gjörgæsludeildir Landspítala 1280. Meðaltal APACHE II stiga við
innlögn var 12,5 og dánarhlutfall var 7,5%. Alls reyndust 62 gjör-
gæsluinnlagnir tengjast vímuefnanotkun í æð. Þetta samsvarar
12,4 innlögnum á ári að meðaltali, eða um 1% allra gjörgæsluinn-
lagna á Landspítala. Tveir einstaklingar voru tvisvar lagðir inn og
einn einstaklingur fjórum sinnum. Heildarfjöldi einstaklinga var
því 57. Hægt var að nálgast sjúkraskýrslur allra sjúklinga og kanna
afdrif þeirra. Karlar voru 36 (63%) og konur 21 (37%). Meðalaldur
innlagðra var 29 ± 9 ár og miðgildi aldurs var 26 ár (22:35, bil 18-
50). Miðgildi APACHE II stiga var 12 (8:15, bil 0-33). Eins og sést á
mynd 1 voru innlagnir flestar árið 2007 (n=20, 32%) og fæstar árið
2005 (n=9, 15%). Meðallegutími á gjörgæsludeild var 3 ± 5 dagar
og miðgildi legutíma var einn dagur (1:3, bil 1-28).
Algengasta innlagnarástæða var eitrun (n=32, 52%), annað-
hvort fyrir slysni (n=21, 34%) eða í sjálfsvígstilgangi (n=11, 18%).
Notkun margra lyfja samtímis var algeng. Helstu vímuefnin voru
ópíöt í 14 tilfellum (45%), amfetamín eða metýlfenídat í 5 tilfellum
(16%) og kókaín í þremur tilfellum (9%). Hjá 9 sjúklingum (29%)
kom ekki fram í sjúkraskýrslu hvaða lyf höfðu verið notuð þar sem
þeir vissu það ekki sjálfir eða vildu ekki gefa það upp.
Lyf af flokki ópíata voru oftast lyfseðilsskyld lyf, morfíntöflur
(Contalgin®) uppleystar og notaðar til inndælingar og verkja-
Mynd 1. Innlagnir á gjörgæsludeild vegna fylgikvilla vímuefnanotkunar í æð árin
2003 til 2007. Sýndur er fjöldi sjúklinga, kynjadreifing og fjöldi látinna fyrir hvert ár.
R a n n S Ó k n