Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2014/100 543 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R á auðvitað við um bæði karlana og kon- urnar. Læknisstarfið á ekki að útiloka fólk frá fjölskyldulífi.“ Hér staldrar Arna við og segir annan flöt fylgja því að konum fjölgi í læknastétt. „Á það hefur verið bent að fylgni sé á milli þess að þegar konum fjölgi í tiltekinni stétt þá lækki launin. Þetta má alls ekki gerast í læknastéttinni og ég mun leggja á það mikla áherslu að konur slaki ekki á kröfum sínum í launamálum. Það eru tvær einfaldar ástæður fyrir því að læknar verða að vera vel launaðir. Í fyrsta lagi er námið svo langt að starfsferillinn byrjar ekki fyrr en fólk er komið hátt á fertugs- aldur. Í öðru lagi er svo mikil samkeppni um lækna í löndunum allt í kringum okkur að hér munu ekki fást læknar til starfa nema í boði séu sómasamleg laun og góð starfsaðstaða sem í mínum huga þýðir ekkert annað en nýjan spítala sem svarar kröfum samfélagsins og nútíma læknisfræði. Nýr landspítali er því ein af forsendum þess að takist að snúa við þeirri þróun sem við blasir.“ Góðu læknana heim Arna dregur upp kvíðvænlega mynd af ástandinu ef ekkert verður að gert í kjara- málum íslenskra lækna. „Þeir sem eru að hefja nám í læknadeild núna verða útskrifaðir sérfræðingar eftir 15-16 ár. Þá verð ég orðin 64 ára og foreldr- ar mínir 86 ára. Við verðum hluti af stærri hóp roskinna og aldraðra en Ísland hefur áður séð. Til að sinna okkar margvíslegu heilsufarslegu þörfum, eins og sjón- og heyrnardepru, gigtarsjúkdómum, hjarta- og lungnasjúkdómum, krabbameinum, kvensjúkdómum, þvagfærasjúkdómum, offitu og sykursýki svo eitthvað sé nefnt, verða færri læknar starfandi á landinu en í marga áratugi þar á undan. Við þurfum sem sagt sárlega á þessu unga fólki að halda og megum ekki missa það frá okkur til starfa annars staðar. Við verðum að bjóða því sómasamleg laun og vinnuað- stöðu svo þau vilji koma heim og starfa hér. Við viljum líka fá góðu læknana heim. Ekki bara einhverja lækna. Þau rök hafa heyrst að ef íslenskir læknar vilji ekki starfa hér megi bara ráða erlenda lækna. Hvaða læknar eru það sem vilja koma hingað og vinna fyrir miklu lægri launum en bjóðast annars staðar? Varla eru það bestu læknarnir? Varla eru það læknar sem eru eftirsóttir annars staðar? Og eru það læknarnir sem við viljum að sinni okkur?“ „Á það hefur verið bent að fylgni sé á milli þess að konum fjölgi í tiltekinni stétt og lækkun launa. Þetta má alls ekki gerast í læknastéttinni og ég mun leggja á það mikla áherslu að konur slaki ekki á kröfum sínum í launamálum,“ segir Arna Guðmundsdóttir nýr formaður Læknafélags Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.