Læknablaðið - 01.10.2014, Síða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 549
&
Victoza (líraglútíð)
leiðir til allt að:1
1,5%
lækkunar á HbA1c
frá 8,4 % HbA1c til 6,9 % HbA1c
3,7 kg
þyngdartaps
Magi
Victoza seinkar
magatæmingu og
veitir því aukna
mettunartilnningu. 2,3
Briskirtill
Victoza virkjar
betafrumurnar sem
losa insúlín þegar
blóðsykur er hár. 2,3
Lifur
Victoza hamlar
seytingu glúkagons
og dregur úr útskilnaði
glúkósa frá lifur. 2,3
Matarlyst
Victoza dregur úr
matarlyst, sem leiðir til
minnkaðrar fæðuneyslu. 2
líraglútíð
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Samninganefnd LÍ hefur fundað nokkuð
þétt með Samninganefnd ríkisins undan-
farnar vikur hjá Sáttasemjara ríkisins og
kveðst Sigurveig Pétursdóttir formaður
samninganefndar LÍ vonast til þess að
niðurstaða fáist áður en langt um líður.
„Þetta leit ekki gæfulega út í byrjun
þar sem okkur var einfaldlega boðin
2,8% grunnlaunahækkun yfir línuna og
samninganefnd ríkisins leit ekki einu
sinni á kröfugerð okkar. Það var því
ekki um annað að ræða en vísa deilunni
til sáttasemjara og í framhaldinu hafa
viðsemjendur ljáð máls á því að semja á
raunhæfari nótum.“
Sigurveig segir samningaferlið á því
stigi að ómögulegt sé að nefna einhverjar
prósentur eða launatölur. „Grunnkröfur
okkar snúa að grunnkaupshækkunum
og ýmsum leiðréttingum þar að lútandi.
Þar er annars vegar um að ræða hluti
sem hafa verið utan við grunnlaun og við
viljum fá þar inn. Einnig ýmis atriði sem
ágreiningur hefur staðið um; ólík túlkun á
ákvæðum samninganna sem skapað hefur
núning á milli launþega og vinnuveitanda.
Þessu öllu viljum við skerpa á svo hafið sé
yfir mismunandi túlkun. Þarna er um að
ræða hvíldartímaákvæði, vaktahámark á
spítölunum og hámarksfjölda sjúklinga
lækna innan heilsugæslunnar.“
Sigurveig segir ljóst að nýr samningur
verði gerður til lengri tíma. „Ef við náum
samningi á annað borð,“ segir hún og
kveðst hóflega bjartsýn. „Viðsemjendur
okkar gera sér fulla grein fyrir því að við
svo búið má ekki standa. Markmið okkar
er tvíþætt. Annars vegar að ná þannig
samningi að læknar geti sæmilega vel við
unað. Hins vegar verður þessi samningur
að vera þannig að íslenskir læknar búsettir
erlendis geti hugsað sér að koma heim.
Í dag er ítrekað verið að auglýsa sér-
fræðilæknastöður og enginn sækir um.
Stundum sækir jú einn um. Hvorugt er
ásættanlegt. Bjartsýni mín varðandi ásætt-
anlega niðurstöðu byggir á því að stjórn-
völd gera sér ágætlega grein fyrir stöðunni
sem blasir við. Og henni verður ekki snúið
við nema með því að bæta kjör lækna og
reyndar líka að bæta starfsaðstöðuna en
okkar hlutverk í samninganefndinni er
ekki að byggja nýjan spítala svo við ein-
beitum okkur að laununum.“
Þó ekki sé hægt að nefna prósentutölur
á þessu stigi er ljóst að verið er að ræða
hækkanir umfram þau 2,8% sem boðin
voru í byrjun. „Annars værum við einfald-
lega ekki að tala saman,“ segir Sigurveig.
Hún kveðst vongóð um að niðurstaða
liggi fyrir áður en langt um líður þar sem
samningar annarra aðila vinnumarkaðar-
ins verði lausir um áramót og í byrjun
næsta árs og samninganefnd ríkisins því
talsvert í mun að ljúka samningum við
lækna svo hún geti snúið sér að öðrum.
„Skyldi maður ætla,“ segir hún og bætir
því við af festu að ekki verði samið bara
til að semja. „Við ætlum okkur að ná fram
okkar helstu markmiðum og þrátt fyrir
bjartsýni erum við jafnframt tilbúin með
plan B ef samningar nást ekki. Verkfall er
vopn sem við viljum ekki beita nema við
séum þvinguð til þess. En verkfallsréttur-
inn er til staðar og verkfall lækna myndi
hafa veruleg áhrif á heilbrigðiskerfið,
öll sjúkrahús landsins og heilsugæsluna
einnig. Langtímaáhrifin á heilbrigðiskerfið
ef ekki næst samningur núna yrðu þó
versta afleiðingin þar sem læknar myndu
eflaust flytja af landi brott í meira mæli en
þegar er. Ungu læknarnir geta horfið með
stuttum fyrirvara þar sem uppsagnar-
frestur þeirra er aðeins einn mánuður.
Staðan er því mjög alvarleg og við vonum
í lengstu lög að niðurstaðan verði þannig
að sem flestir geti sætt sig við hana,“ segir
Sigurveig Pétursdóttir formaður samn-
inganefndar LÍ.
segir Sigurveig Pétursdóttir
formaður samninganefndar LÍ
Vonumst eftir
ásættanlegri
niðurstöðu
„Við ætlum okkur að ná fram okkar helstu markmiðum og þrátt fyrir bjartsýni erum við
jafnframt tilbúin með plan B ef samningar nást ekki,“ segir Sigurveig Pétursdóttir for-
maður samninganefndar Læknafélags Íslands.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson