Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 3

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 3
LÆKNAblaðið 2014/100 435 læknablaðið the icelandic medical journal www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1750 Áskrift 12.400,- m. vsk. Lausasala 1240,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Myndin á kápu blaðsins var tekin í Austurbæjarskólanum í nóvember árið 1953, ljósmyndari: Sigurhans E. Vignir. Það tíðkaðist hérlendis að nemendum væri gefið lýsi í skólanum á árunum uppúr 1930 og fram undir 1970. Mikil- vægt var að „uppáhellingin“ tækist vel enda var fátt verra en að fá lýsi í skólafötin! Samspil mataræðis og heilsufars er ótvírætt en margslungið og deildar meiningar hafa löngum verið um það hvað er heilsunni hollast. Læknar byrjuðu snemma að gagnrýna meðferð matvæla og mataræði landsmanna enda sáu þeir þess merki að víða var pottur brotinn. Þegar konur voru kosnar í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1908 hófu þær að beita sér fyrir bættum aðbúnaði barna og fengu því einnig framgengt að ráðinn var læknir við barnaskólann, Guð- mundur Hannesson (1866-1946). Skólalæknirinn annaðist almenna heilbrigðisskoðun og benti á leiðir til úrbóta og ef foreldrar gátu ekki brugðist við var reynt að aðstoða þá sem þess þurftu. Þegar lögbundnu skólaeftirliti var komið á árið 1916 kynntust læknar heilsufari og aðbún- aði flestra barna í sínu héraði og þau kynni urðu til þess að lögð var meiri áhersla á samfélags- legar úrbætur. Landlæknir hvatti til almennrar heilbrigðis- skoðunar í skólum árið 1921 en frá því ári er kunn skýrsla Steingríms Matthíassonar (1876-1948) héraðslæknis á Akureyri um heilsufar skólabarna. Hann bar saman ýmsa þætti í heilsufari barna á Akureyri og í nærliggjandi sveitum og niðurstaða hans var að sveitabörnin væru heil- brigðari og gáfaðari. „Meiri mjólk, styttri skólatími, færri kennslustundir, meira næði, minni sollur og svo það atriði, og ekki minnst, það að sveitabörnin eru fljótt vanin á að vinna og vinna þarflega vinnu sem þroskar heila, hendur og vöðva.“ Þessi skoðun féll í góðan jarðveg meðal margra Íslendinga. Næringarskortur og „útmánaðasvelti“ var staðreynd meðal íslenskra skólabarna. Í Reykjavík var fátækum börnum gefinn matur í skólanum og um 1930 var farið að gefa börnum mjólk að drekka og skömmu síðar einnig lýsi. Lýsi hefur fylgt þjóðinni frá upphafi og verið notað sem ljósmeti, til matar og við ýmsum kvillum. Hvernig og með hvaða hætti menn gerðu sér grein fyrir því að lýsi væri einna heppilegast til að stuðla að heil- brigði skólabarna er ekki vitað. Þekking á vítamínum og hvaða matvæli innihalda vítamín var takmörkuð en þó töldu menn sig sjá samhengi milli skorts á ákveðinni fæðu og heilsuleysis. Menn lögðu áherslu á þjóðlega innlenda framleiðslu eins og mjólk og lýsi sem innihalda A- og D-vítamín sem vissulega var skortur á. Skorturinn á C-vítamíni var kannski öllu alvarlegri en úr honum varð ekki auðveld- lega bætt nema með innflutningi matvæla, t.d. appelsína, og slíkt þótti ekki heppilegt á tímum þjóðlegs rétttrúnaðar. Heilbrigðiseftirlit í skólum var eitt mikilvægasta fram- lag til heilsuverndar og síðar heilsueflingar í landinu um áratugaskeið. Jón Ólafur Ísberg Ný meðferð fyrir sjúklinga með sykursýki tegund 2 Ný leið til að lækka umframmagn af glúkósa - fjarlægir hann1 Eina meðferðin sem fjarlægir umframmagn af glúkósa um nýrun1 FJARLÆGIR um 70 g af glúkósa daglega. Getur leitt til þyngdartaps1 1 Heimild: Sérlyfjaskrártexti Forxiga (dapagliflozin), apríl 2013. LÆKKAR BLÓÐSYKUR HbA1C1 Nýtt! 08 -2 01 4- 01 En sá er háttur á að gefa börnum lýsi svo þau fái ekki innfallna maga, verði afskræmd af kröm og þurfi að fara í ljós. Lýsis- hellandi hjúkrunarkonur geta birst þegar minnst varir. Klukkulausir krakkar vita ekki hvenær á þeim er von. Hann horfir út um gluggann án þess að sjá nokkuð nema sælan blikflöt skynjunarinnar. En hann er alltaf á ómeð- vituðum verði gagnvart lýsinu. Stofurnar hér í norðurálmunni eru sér og gengið þangað frá hjúkrunarstofum, tannlæknastofu og ljósabaðstofu á ská yfir portið. Hann vaknar við vondan draum og sér lýsiskvendin storma yfir portið með könn- urnar, þær fjölmenna, þetta er heill lýsishellandi her í hjúkkubúningi á leið að hella klígju vægðarlaust í hin vondu börn. Þetta eru meintar hjúkrunarkonur sem styðja hvor aðra í erfiðu starfi. Þar kom inn önnur og hélt á lýsis- könnu. Hún kemur og þú átt að rétta upp hökuna og gapa á meðan hún hellir í þig þessu ógeði. Þetta er niðurlæging hinna varnarlausu. Lýsisbrunnurinn er svo vemmilegur að maður afber ekki þá kvöl að sjá lýsiskönnurnar sem þær dýfa daglega í brunninn, hvað þá að fá þetta ógeð ofan í sitt ofurnæma smáfuglsgin. Þórunn Valdimarsdóttir, Megas. Sól í Norðurmýri. Píslarsaga úr Austurbæ. Forlagið, Reykjavík 1990: 127. Eftir er þá að ljúka síðasta kafla þessarar frásagnar með því að lýsa rómantísku aðferðinni, hvernig hvallýsið er látið á ámurnar og því komið fyrir í lestinni þar sem stórhvelið hverfur aftur í djúpið og rennur áfram undir yfirborðinu eins og að fornu, en því miður ekki til þess að koma upp aftur að blása. Meðan lýsið enn er volgt er það, líkt og heitur púnsdrykkur, sett á svonefndar sextunna ámur og þótt skipið ef til vill taki dýfur og velti er þessum stóru ámum sveiflað, velt og við þær bisað og getur þá vel svo farið að þær renni ógnandi yfir sleipt dekkið eins og skriðufall uns tökum er á þeim náð og þær stöðvaðar á flóttanum. Jafnframt er barið með öllum sleggjum sem við verður komið á gjarðirnar því sérhver háseti er á þess- ari stundu fæddur beykir. Þegar loks er lokið að fylla á síðasta pelann og lýsið allt kólnað er tekið ofan af stóru lúkuopunum, iður skipsins opnuð og ámurnar látnar síga niður að síðasta hvílustað þeirra á hafinu. Þegar þessu er lokið er lúkuhler- unum komið aftur á sinn stað og allt er loftþétt lokað eins og skápur sem búið er að múra upp í. Hermann Melville. Mobý Dick – eða hvalurinn. Þýðing: Júlíus Havsteen/Ísak Harðarson. JPV útgáfa, Reykjavík 2005: 484. Verði bæði lýsi og ljós! Úr lýsisbræðslu í Reykjavík á fyrsta áratug 20. aldar. Ljósmyndari Pétur Brynjólfsson. Birt með leyfi Ljós- myndasafns Íslands í Þjóðminjasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.